Vísir - 04.12.1958, Blaðsíða 12

Vísir - 04.12.1958, Blaðsíða 12
12 JÓLABLAÐ VÍSIS og grænblá augu, dekursleg hispursmey fljótt á litið, en ljúf í viðmóti. Útlit hennar, framkoma og fas höfðaði mjög til verndarvilja karlmannanna. En þessi brosmilda brúðustúlka, sem leit út. eins og viljalaust leikfang, hafði nokkrum sinn- um vafið Gestapó svo rækilega um fingur sér, að meðlimir and- spyrnuhreifjngarinnar báru mikla virðingu fyrir henni. „Á hvað var loftárásin gerð?“ spurði Almar Rank. Rödd hans var róleg og karlmannleg, en dulinn ákafi í henni, sem benti til að taugarnar væru ekki í góðu lagi. „Stjórnarráðshúsin!“ svaraði Per Christensen og leit bros- andi til hans. „Þeim tókst að verpa nokkrum gaukseggjum í gestapóhreiðrið. Og kofana syrgir víst engirin, þeir eru lengi búnir að vera bænum til skammar.“ „Urðu ekki skemmdir annars staðar?“ „Vitum það ekki. Kannske lítils háttar.“ Hann þagði and- artak og skimaði í kringum sig, síðan mælti hann: „En nú er bezt að við förum að sofa; erf- iður dagur á morgun! — Það eru til rúmföt handa ykkur öll- um hérna — eða þarf nokkur að fara heim?“ Almar Rank reis á fætur. — „Já,“ sagði hann. „Ég ætla heim til mín.“ „Varlega,“ sagði Per. „Þeir eru skrambi taugaóstyrkir í nótt.“ „Engin hætta. Ég hef skjölin í lagi!“ Irma hafði gengið að skáp, sem stóð í einu horni stofunnar og var að leita að sárabindi handa manni sínum. Almar leit til hennar og augu þeirra mætt- ust eitt andartak. „Góða nótt,“ sagði hann og Per brosti til hans en Irma laut höfði. ' Honum var hleypt út bak- dyramegin. Hann leit snöggt við um leið og hurðin lokaðist; — hún líktist helgimynd, þar sem hún stóð við skápinn og fálmaði við læsinguna, eins og hún sæi hana ekki. Slíkt hik var ólíkt henni, hún var rösk og róleg og ákveðin, hvað sem á gekk. — Þreytt, hugsaði hann; hún var ein af þeim, sem kunna ekki að gefast upp; sem aldrei hlífa sjálfum sér. Ef kraftar hennar þrytu, — ef hún dæi, — æ, bara að þessi hræðilega martröð færi nú að taka enda! Loftið var svalt í garðinum bak við húsið, rakt vor, skýj- aður himinn. Hann grillti há tré og dökkan gráma milli greinanna, sem naumast voru byrjaðar að laufgast. Það var talsvert dimmt. Hann gekk hljóðlega út um bakhlið garðs- ins. Gatan minnti á myrka gjá. Húsin líktust klettum og ekk- ert hljóð heyrðist. Það var ilm- ur í loftinu af hálfútsprungnu birkibrumi, friðandi angan, sem vakti minningar um æskuástir. Undir öðrum kringumstæðum hefði þetta verið friðsæl nótt. En nú var dimman hrönnuð einhverju uggvænlegu, sem ekki var unnt að gleyma eitt andartak. Það var sem svartir vængir blökuðu hægt í myrkr- inu og köld augu störðu úr hverjum kima. Taugar Almars voru spenntar til hins ýtrasta; hann var á valdi eðlisávísana eins og villt dýr, er væntir dauðans hverja stund og er sí- fellt búið til varnar upp á líf og dauða. Gatan var dimmur slakki í heimi frumaldar, þar sem skelfingin duldist í hverju spori. Og þó var þetta Osló, höfuðborg einnar fremstu menningarþjóðar heimsins, og á því herrans ári 1945. — Hann hafði gengið þarna að næturlagi um sama leyti árs 1940. Einnig þá kom hann frá Irmu, — það var kvöldið, sem hann sá hana í fyrsta sinn! Ef hún dæi! — Hann laut höfði og kuldahrollur fór um hann, — ef hann ætti aldrei eftir að sjá hana og heyra rödd hennar, þá hefði liann tapað stríðinu, þá hefðu Þjóðverjar unnið í heimi hans! Að sjá hana og heyra, var honum ljós' og loft, það var honum frelsið! Væri hann sviptur því, myndi hann ekki lengur geta borið byrði hins illa draums, sem ó- mögulegt var að vakna af. Hann gekk hratt, en mjög gætilega. Öll skilningarvit hans voru á verði, strengd og spennt. Lífið með gleði sinni og ánægju var orðið fjarlæg minning, hver líðandi stund var ekki annað en þjáningarfull bið og gáta, hræðsla og kvíði. Það var ekki hægt að njóta neins, jafnvel fegurðarskynið sljófgaðist. Og þó var hungrið eftir fegurð meira en nokkru sinni áður. Hann bjó í Valkyriegötu, en nú var hann kominn úr leið og vissi naumast hvernig það hafði atvikazt. Þetta var Neu- berggatan. — Neuberggatan! — hann þekkti hana hversu svart sem myrkrið var. Eitthvað blítt snart hann ætíð, þegar hann nálgaðist dómínikanakapelluna í Neuberggötu, kirkjuna, sem stóð opin nótt og dag þrátt fyr- ir hernám og stríð. Þar andaði friði og huggun að þreýttri sál og hann átti þangað mörg spor, enda þótt öll kirkjufélög myndu vaíalaust kalla hann villutrúar- mann! Hann læddist að hurðinni og reyndi srierilinn. Það var ávallt sami létti að finna að þarna var opið — opið hvernig sem á stóð. Allt hið óráðskennda og djöfullega, sem þjakaði heim- inn, virtist engin áhrif hafa á þetta hús Guðs. Það var alltaf opið öllum og allir velkomnir, vinir sem fjendur. Hann fór inn og lokaði á eft- ir sér. Dauf, bláleit skíma af hálfbyrgðum ljósum á altarinu, en kirkjan sjálf full af þöglu, friðandi húmi; veggmyndirnar fögru sáust mjög óljóst. (Kvöldið, sem ég sá Irmu fyrst, fór ég einnig hingað í fyrsta sinn. Hvers vegna?) Hann settist innarlega, hall- aðist fram á bak næsta bekkjar og hvíldi höfuðið í höndum sér. Það var gott, — betra en vínið, sem hann greip til stundum. Vínið gaf raunar svíun, hug- rekki og hvíld, en það var að- eins deyfing; — kvislingarnir drukku eins og brjálaðir menn! — Þetta var annað, en ekki hægt að skilgreina það. Nú voru fimm ár liðin frá því að hann kom þarna fyrst. — Hann hafði setið niðri í Thea- terkaféen með kunningja sín- um, sem þekkti Per Christen- sen. Per kom að borðinu og þeir voru kynntir. Honum féll þá þegar prýðisvel við hann.' Þeir ræddu um hlutleysi og honum voru enn í fersku minni orð Pers: — „Við eigum að vera með þeim, sem við óskum sigurs, og berjast eins og menn. Þetta helvítis hlutleysi drepur siðferðisþrekið, sjálfsvirðing- una, ábyrgðartilfinninguna — allt! Hlutlaus maður er hálfur maður og -endar sem ómenni!“ Þeir fóru heim með Per og settust þar inn í stofu. Skömmu síðar kom Irma. Hún opnaði allt í einu dyrnar og kom bros- andi inn. Honum hnikkti við og á samri stundu var sem allt breyttist;; stofan fylltist ljóma, það varð vor. Hann mundi enn hvernig hún var klædd og hvern drátt í andlitinu. Hann hafði ekki elskað áður, naumast vitað hvað það var. Um nóttina fór hann í fyrsta sinn inn í kapellu Dómínikan- anna í Neuberggötu. Síðan voru fimm ár, og enn var hann þarna kominn. Skyndilega var ,sem líkami hans stirðnaði: eitthvað hafði hreyfzt í skugganum hægra megin við altarið! Leiftursnöggt lyfti hann höfði og horfði þang- að hvössum augum. — Dökk mannvera kom hægt fram eft- ir gólfinu í átt til hans. „Láttu þér ekki bregða, son- ur minn.“ Faðir Tómas! — Spenningm slaknaði í taugum hans, líkt og holskefla fjaraði út, en um stund titraði líkami hans frá hvirfli til ilja. „Þú gerðir mér bilt við, fað- ir,“ sagði hann og reyndi að brosá. „Við erum orðnir eins og dýr, sem allsstaðar eiga sér ills von!“ Framh. á 27. síðu. Munið að ávallt er mest og bezt úrvalið af barna- og kvenpeysum í HLÍN Komið og sannfærist Hvergi iægra verð PR JÓIXIASTOFAIXI HLÍN H.F. SkólavörSustíg 18. — Sími 12779. Sendum gegn póstkrÖfu um land allt. [yr'jtut ég þér efái - auii/in þtnn - að h<Xupa heldur POLAR rafóeymi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.