Vísir - 04.12.1958, Page 23

Vísir - 04.12.1958, Page 23
JÓLABLAÐ VÍSIS £3 Hann var nú eiginlega vel ern enn þá, þó hann væri kominn á sjötugsaldurinn. Hann hafði náð því takmarki í lífinu, sem hann hafði stefnt að: var kominn á full eftirlaun og hafði að lokum orðið yfireftirlitsmaður. Að vísu voru eítirlaunin ekki mikil. En börnin voru uppkomin og konan var iðin og nýtin og þau gátu svo sem lifað áhyggjulaus. Það var eiginlega erfiðast að finna sér eitthvað til dundurs. Hánn hafði aldrei lagt sérstaka áherzlu á hina andlegu hlið, enda krafðist starfið ekki mikils á því sviði. Aldrei hafði hann haft áhuga á íþróttum, enda þurffi til þess meira þrek en honum hafði verið gefið, nú og svo krafðist starfið ekki mikillar líkamlegrar áreynslu. Ekki hafði hann lagt það í vana sinn að spila, hvorki á spil né á annan hátt, til þess skorti hann fé og nautnamaður hafði hann aldrei verið — það voru bara þessir ungu og léttúðugu, sem féllu fyrir sliku. Eiginlega hafði hann lítið haft af þeim hættum að segja, sem æskan fellur fyrir — hann varð snemma roskinn og ráðsettur eins og góðum embætt- ismanni sæmir. Nú sat hann mestan hluta dagsins í stólnum sínum þægi- lega og horfði á konuna sína , snúast í kringum sig. Það var annars undarlegt hvað þessi kona gat alltáf verið að gera, aldrei leit hún upp frá verkun- um. Vinnutíminn var ótakmark- aður, það var ekki neinn átta stunda vinnudagur hjá henni. hún settist víst aldrei niður, þessi kona. Þó var h.ún nú eigin- lega vel til þess fallin að sitja: þung á sér, þybbin og. fæturnir ekki burðugir. Hann reyndi stundum að rifja það upp, hvernig hún hefði nú litið út þá daga, þegar hún opnaði augu hans fyrir kvenlegum yndis- þokka. Fyrir hádegið, þegar hún stóð erinn. * sveitt yfir matarpottunum, fór hann vanalega í svolitla skemmtigöngu um húsið. Hann lagði þá leið sína fram í eld- húsið, lyfti lokinu af pottinum og leit á innihaldið. „Na, já, jæja,“ sagði hann þá, því vana- lega var uppáhaldsréttur hans í pottinum. „Ertu eitthvað ó- ánægður?" spurði konan, og það var eins og kvíði eða vonbrigði í röddinni. „Ég hefði nú heldur viljað eitthvað annað,“ umlaði hann, „en það er nú svo sem ekkert. Eg get allt .... á meðan ég þoli það fyrir magan- um,“ bætti hann svo við. Svq fór hann aftur á sinn stað, i stólinn sinn. Þaðan gat hann líka heyrt, þegar hún hrærði í pottinum. Þegar hann var búinn að borða, strauk hann með handarbakinu yfir skeggið og umlaði.. „Na, já, jæja.“ „Líkaði þér kannske ekki mat- urinn?“ spurði konan og . það var þessi sami kvíða- og von- brigðatónn i röddinni eins og um morguninn.- „Kannske heldur mikið salt- kjötið nokkuð seigt — nú, ég þoli það svo sem enn þá.“ „Það er ekki rétt, kjötið var gott og meyrt og ég saltaði það eins og . ég er vön.“ Hann vissi, að hún hafði á réttu að stánda, en það var svo sem ekkert um þetta að segja. „Na, já, jæja.“ Hún sat þarna á móti hojium góða stund og það var ekki laust við að hún væri ólundarleg. „Ertu búinn að fara með jakk- an minn til klæðskerans?" spurði hann. Konan. þaut á fætur. „Hvenær hefði ég nú eiginlega átt að gera það? Hvenær? Hef ég ekki verið að allan morguninn. Taka húsið — ganga frá þvottinum — elda matinn.. Það er eins og , eldur í þínum beinum, ef mér fellur verk úr hendi." „Na, ja, jæja. Ég veit, ég veit. Alltaf það sama.", i Hún var orðin blóðrauð í fram- an. Hann hallaði sér afturábak og hóstaði. Þau þögðu bæði. Hann vissi hvað nú mundi ske. Var þetta ekki einmitt tilbreyt- ingin í lífinu? Nú skyldi hann láta það ske. „Svikari.“ hvæsti hann. Hún þaut upp úr sætinu. Hún kom engu orði upp fyrir geðs- hræringu. Svo var hún horfin fram i eldhúsið og skellti á eftir sér hurðinni. Hann hlustaði á hvernig glamraði í pottum og pönnum, hnifum og göfflum fram í eld- húsinu og svo kvað við þess á milli: Vanþakklæti.... allir eins ....eigingjarnir .... Hann brosti og lokaði augun- um. Hann ætlaði að klappa á öxlina á henni, þegar hún kæmi með eftirmiðdagskaffið, og segja. „Na, já, jæja, þetta var bara svona til gamans.“ Nú þótti honum vænt um hana. samþykkt, að þau, hann og Ju- dith, yrðu hjá læknishjónunum á jólanóttina. Daginn eftir — jóladag — skyldi hann svo aka Judith til Karenar móðursyst- ur hennar, Karen tók þessu máli vel, og kvaðst ,vel við það una, að frænka sín væri hjá læknis- hjónunum yfir nóttina. Að hálfri klukkustund lið- inni var hin gómsæta gæs komin á borðið, búið að kveikja öll Ijós og fylla glösin af dýrindis víni. Jelling læknir hafði hrist vonbrigðin af sér og brosti vin- gjarnlega til Judith. Hann sagði, að sér væri það mikil ánægja, að Freddy hefði valið sér unga stúlku, sem væri eins sæt og hrífandi og Kirtsen — já, nieira að segja líkist henni. Og svo bætti hann við: „Ég hafði ekki hugmynd um, að þú værir trúlofaður, drengur minn.“ , ... „Það hafði ég heldurc.ekki,“ sagði Freddy og greip hönd Ju" dith undir dúknum. „En ég er afar glaður yfir því, að mér er orðið það ljóst.“ Lagt á borð — Framh. af bls. 17, úr áramótunum. Meira þarf ég ekki að segja. Þið skiljið mig. Berið Freddy kæra kveðiu mína. Svo óska ég ykkur öll- um þrem gleðilegra jóla. Ykkar einlæg Kirsten.“ „Hm,“ sagði læknirinn, „ef Kirsten hefði alltaf .dreymt um þig, drengur minn, hefði hingað- koma hennar ekki orðið mjög skemmtileg. Öllum mun vera fyrir beztu, að ráðagerð okkar hjónanna fór út um þúfur.“ Læknirinn klappaði á öxl hins unga manns og hallaði honum að brjósti sér. „Sæktu glös, Ragna,“ sagði Jelling læknir. Frúin flýtti sér fram í eld- húsið. „Má ég nota símann og hringja til Karenar móðursyst- ur minnar,* spurði Judith. „Auðvitað.“ En áður en samband tókst við .Karen, hafði Freddy fengið það Tveim hæfustu starfsmönn- um stórfyrirtækis í New York var einu sinni faíið að ráða yf- iréinkaritara til fyrirtækisins. Þeír vildu vanda valið sem allra mest og kölluðu sálfræð- ing til ráða. Fóru nú fram mikl- ar rannsóknir og stóðu þær at- huganir vikum saman. Loks voru aðeins þrjár eftir af öllum þeim fjölda kvenna, sem sótt höfðu um stöðuna — öllum hin- um hafði verið hafnað. Taldi sáifræðingurinn, að þessar þrjár væru bezt hæfar til starfs ins og byggði hann það á hin- um nákvæmustu rannsóknum og nú skyldi þyngsta þrautin ,lögð fyrir þær — þrautin, sem ráða skyldi úrslitum. Var nú ein hinna þriggja kvöad á fund sálfræðingsins og eftirfarandi spurning lögð fyrir hana: Hvað er 2+2? „Fjórir,“ svaraði stúlkan og það brá fyrir drýldni í röddinni. Sú mæsta fékk sömu spurn- ingu. „Það gæti verið tuttugu og tveir,‘í sagði hún varlega, því hún var orðin hvekkt spurningunum, sem fvrir hana höfðu verið lagðar. Sú þriðja svaraði hinsvegar: ..Það getur verið fjórir cg það getur verið tuttugu og tveir.“ Þegar stúlkurnar höfðu svarað spurningunum og voru komnar út, sneri sálfræðingur- inn sér að mönnunum tveim og sagði: ,,Nú skuluð þið skera úr, herrar mínir, og notfæra ykkur þessar rannsóknir. Þið munuð hafa séð, að sú fyrsta svaraði rétt að því er virtist, sú næsta hafði meira hugmyndaflug, en sú síðasta sýndi hvorttveggja — bæði rökvísi og raunhæfar gáfur. Hverja þeirra ætlið þið nú að ráða?“ Þeim fannst víst úr vöndu að ráða, því þrjár stundir liðu, áður en þeir komu fram úr skrifstofu sinni og einn þeirra kvað upp úrskurðinn, sem þeir höfðu loksins komið sér saman um. A ^ „Við höfum komið okkur saman,“ sagði sá, sem orð hafði fyrir þeim, „við tökum þessa með Marilyn-Monroe_-mjaðm- irnar“. P. R. Lang. ] ---•—— OFT Klapparstíg 26 Stini 11372 JOLAGJOFINA Eftl VIÐ XEVSIIM VANSI ANN Við eigum jólagjáíir sem heníQ.- hv.er-ju i|ianpsbami. VinQuljósgleraugun eru ómissandi í hverjum bíl og á hverju heimili .og verkstæði og eru auk þess ágætt leikfang. Fáanfeg fyrir ýasaljósageymi cg 6..eg. 12 voita bíl- geyma. . t , ; » ‘ * KOLIBRI léttasta ferðaritvélin, J?em hér er fáanleg. ’ V

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.