Vísir - 11.01.1977, Blaðsíða 6

Vísir - 11.01.1977, Blaðsíða 6
6 Þriðjudagur 11. janúar 1977 Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 12. janúar. Hrúturinn 21. mars-20. aprfl:' Eftir að hafa lokið skyldustörf- um, skaltu sinna hugðarefnum þinum og leggja þig vel fram. Stattu fast á þinu og krefstu þess að aðrir fari að ráðum þinum. Nautift 21. april—21. mal: Fyrri hluta dagsins ættirðu að helga snyrtingu og taka vel til i kringum þig. Taktu tillit til and- stæðings þins ef hann verður á vegi þinum seinni partinn. Tviburarnir 22. raai—21. júnf? Þú verðurekki i vandræðum með skemmtilegan félagsskap i dag, ef hugur þinn stendur til þess. Hugsaðu raunhæft um fjármálin i dag. Krabbinn 21. júni—23- júlí: Ef þú sýnir framúrskarandi kurteisi og hefur þig ekki allt of mikið i frammi verður ágætur dagur. Þú hittir einhvern og verð- ur það þér til ánægju. Farðu var- lega i kvöld. I.jóniö 24. júlí—2ö. ágúst: Dagurinn er heppilegur til að hitta fólk og fara i heimsóknir. Þú kynnist liklega nýrri persónu. Seinna i kvöld skaltu hugsa gaumgæfilega um fjármálin. Mpyjan 24. águst—23. sept.: Þú ættir að trúa ákveðinnt per- sónu fyrir trúnaðarmálum þin- um. Vertu óspar á að hæla þeim sem i kringum þig eru. Þú færð einhverja góða hugmynd seinni hluta dagsins. Vogin 24. sept.—22. okt.: Þér kunna að bjóðast nýtækifæri i sambandi við vinnu þina og frama. Hafðu ekki óþarfa áhyggj- ur og littu fram á veginn. Drekinn 21. c*kt.—22. nóv.: Eftir að hafa lokið skyldustöfum i dag þá skalt þú nota timann i skipulagningu á framtiðar- áætlunum. Láttu reynsluna stjórna gerðum þinum. Ilogm nöurinn 2:1. nov.—21 h!p>.- Farðu troðnar slóðir i dag. Ljóstraðu ekki upp um leyndar- máli sem þér var trúað fyrir. Vertu gjafmildur i kvöld ef þann- ig stendur á. Steingeitin 22. des.—20. jaii.. Þetta er góður dagur til að sinna erindum sem krefjast einhverra ferðalaga. Vinur þinn endurgeld- ur þér greiða. Gefðu þeim styrk sem á honum þurfa að halda. Vatnsberinn 21. jan.—10. febr.: Athyglin beinist að vandamálum einhverra nákominna eða vina i dag. Reyndu að ljúka verkefnum þinum fyrri partinn, þú verður vinum þinum til huggunar i kvöld. Fiskarnir 20. íebr.—20 mars. Kynntu þér skoðanir þeirra sem þú verður að setja allt þitt traust á i dag. Morgunninn er heppileg- ur til innkaupa. Gerðu ráðstafan- ir til að taka þér uppbyggileg verkefni fyrir hendur. Ég er reyndar alveg aö gefast' ’jpp á mannajárningum. Nýjustu manna járningar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.