Vísir - 11.01.1977, Blaðsíða 9

Vísir - 11.01.1977, Blaðsíða 9
9 VISIR Þriðjudag ur 11. janúar 1977 Sjómenn ósóttir við 155 millimetra riðilinn: Fulltrúar ríkis- valds víki úr lónasjóði — segja númsmenn sem nú hafa stefnt vegna nómslúnareglna Námsmenn, sem Visir skýrði frá að ætluðu að stefna y firvöld- um vegna úthlutunarreglna Lánasjóðs Islenskra náms- manna, hafa ennfremur krafist þess að aðalfulltrúar rikisvalds- ins viki úr sjóðsstjórninni á meðan málsókn fer fram. Segja námsmenn þá hafa samþykkt þær úthlutunarreglur sem námsmenn telji ólöglegar. Þvi vilja þeir að aðalfulltrúarn- ir viki á meðan málið sé fyrir dómstólum. Eins og Visir skýrði frá er stefnt vegna þess að ekki sé tek- ið tillit til fjölskyldustærðar, eins og þó sé kveðið á um i reglugerð. Það er Egill M. Guðmunds- son, námsmaður i húsagerðar- list i Osló, sem stefnir, en þó verður málið rekið sem próf- mál. Segja námsmenn hann vera dæmi um mann sem fer , illa út úr úthlutunarreglunum. Stefna námsmanna verður lögð fram i bæjarþingi Reykja- vikur i dag. —EKG Tónleikar í Kópavogskirkju Arið 1963 var stofnaður sjóð- ur til ininningar uni unga stúlku llildi Ölafsdót tur er lést i umferðarslysi það sama ár. Sjóðurinn er i vörslu Kárs- nessóknar og er tilgangur hans að efla tónlistarlif við Kópavogskirkju m.a. með þvi að styrkja tónleikahald. Nú verður stofnað til tón- leika á vegum sjóðsins i Kópa- vogskirkju n.k. þriðjudags- kvöld 11. janúar kl. 21. Flytjendur verða Sigriður E. Magnúsdóttir söngkona, breski söngvarinn Simon Vaughan og organisti kirkj- unnar Guðmundur Gilsson. Ollum er heimill aðgangur og vill sóknarnefndin hvetja fólk til þess að koma og hlýða á listamennina. Þó að hriðin hafi dunið á hon- uni var stöðumælavörðurinn ekkcrt á þvi að láta veðrið aftra sér frá þvi að sekta lög- brjótana. Þeir sem ekki hirtu um að láta pening i stöðumæl- inn fá fyrir ferðina og verða að gera sér ferð upp á lögreglu- stöð til að borga sektina. Er það inátulegt á þá? Allir skipstjórar eru andvigir möskvastækkuninni og ákvöröunln var tekin án samráðs viö þá. Ljósm. Kr.Ben. „Kaffihúsastimpill ó möskvastœkkuninni" ,,Ég vil deila á Hafrannsókn- arstofnunina fyrir þaö hvernig staðið var að möskvastærðar- breytingunni. Að dómi sjó- manna var ákvörðunin tekin án þess að nægilega væri athugað. Það er einhver kaffihúsa- stimpillá möskvastækkuninni.” Þetta sagði Guðmundur Hall- dórsson, stýrimaður á Guð- bjarti tS, um þá ákvörðun að stækka möskva úr 135 milli- metrum i 155. Þessi ákvörðun hefur mætl mikilli andstöðu meðal sjómanna og hafa þeir jafnvel haft við orð að neita að »taka um borð nýja riðilinn. Möskvastærðarbreytingin átti að taka gildi nú fyrsta janúar, en var frestað þar sem ekki voru til troll i landinu með hin- um nýja riðli. Pokar verða klæddir ,,AUa mina sjómannstið hef ég aldrei vitað til að pokar væru klæddir, en ég óttast það að möskvastærðarbreytingin kunni að fæða af sér klæðningar. Það kemur til með að ánetjast mikið i þennan riðil og ef það verður ekki hreinsað þá þéttir það pokann. Þannig að þrátt fyrir stærri möskva hirðir hann smáfisk i rikari mæli en 135 millimetra pokinn.. Ég álit að það hefði átt að reyna þennan nýja riðil i að minnsta kosti eitt ár áður en ákvörðun var tekin. Það er of dýrt að vera með allan flotann i tilraunum. Það var lika þannig að ekki fyrr en eftir að ákvörðun hafði verið tekin um stærri möskva fóru menn frá Hafrann- sóknarstofnuninni með Guð- björgu ÍS til að athuga áhrif breytingarinnar. Og þvi má bæta við að sjómennirnir vilja draga aðrar ályktanir af til- raununum en fiskifræðingarn- ir Sjómenn ekki spurðir Ákvörðun seiii þessa hefði átt að taka i samráði við sjómenn, en ekki i andstöðu við þá. Enda er það svo að allir sk'ipstjórar eru á móti möskvastærðar- breytingunni.” Eftir þessa breytingu verður mönnum leyft að hafa bæði karfatroll og troll sem ætlað er til veiða á þorskaslóð. Það troll verður með 155 millimetra mösvkum, en karfatrollið er þéttriðnara og aðeins leyft á karfasvæðum. Sjómenn telja hins vegar að erfitt verði að fylgjast með þvi að menn noti ekki hið smáriðnara karfatroll á svæðum þar sem þorskurinn heldur sig. ..Sjómenn spyrja núna”, sagði Guðmundur: ,,Ef við eig- um ekki að fá að fiska i þau veiðarfæri sem fyrir hendi eru, hvað eigum við þá að gera?”. —EKG Verðlistinn UTSALAN er hafin Verðlistinn kjóladeild Laugalæk Sfmi 33755 K3 13 13 13 13 (3 Verðlistinn □ kápudeild Klapparstig 27, simi 25275.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.