Vísir - 11.01.1977, Blaðsíða 11

Vísir - 11.01.1977, Blaðsíða 11
VTSIR Þriðjudagur 11. janúar 1977 11 Strindberg tekinn Hversvegna flýja iðnfyrirtœki úr höfuðborginni? Heimir Pálsson skrifar: T það bætist við að texti verksins er að hluta til fluttur á ensku, fara kröfurnar til leikhússgesta að verða iskyggilega miklar. Hræddur er ég um að ég hafi ekki verið einn um það i litla salnum að Frikirkjuvegi að eiga erfitt með að ná samhengi i ensku Watsons þegar hann beitti tungunni sem hraö- ast. I leikskrá segir ennfremur að hópurinn hafi gert tilraun til að taka Strindberg á orðinu, þar Túlkun Ingu Bjarnason á frökeninni sjálfri var lika á köfl- um mjög markviss og sannfær- andi — ef maður vissi hvað um var að vera. Geðfelldastur og stundum lika magnaðastur fannst mér þó leikur Sólveigar vera. Einkánlega hefur hún vald yfir raddbeitingu sem margir leikarar mættu öfunda hana af. Og mikið væri gaman ef við ættum leikskáld sem gæti samið skapgerðarhlutverk handa þessari ungu leikkonu. Fröken Júlia Alveg Óð mun vera annað viðfangsefni Hreyfi- leikhússins. Fyrra verkið átti ég þess ekki kost að sjá. Hins vegar er það einlæg von min að leik- húslif islendinga fái að njóta þeirra krafta sem þarna eru á ferð oftar. Einmitt um þessar mundir sýnumst við vera heldur fátæk af hvers konar tilrauna- leikhúsum,sem áreiðanlega eru þó nauðsynleg allstaðar þar sem leikhúsi er nokkur virðing sýnd. Viðeigum enga heimtingu á að allar tilraunir takist, en flestar ef ekki allar eiga þær fullan rétt á sér. Fari eitthvað úrskeiðis er ekki annað en reyna aftur og láta sér takast betur. HP á orðinu? Fríkirkjuvegur 11 Hreyfileikhúsið sýnir: Fröken Júlia Alvegóð. Fröken Júlia: Inga Bjarnason Jean: Nigel Watson Kristin: Sólveig Hall- dórsdóttir Ekki hefur Strindberg sálugi þurft að snúa sér við í gröf sinni á sunnudaginn var af þeim sök- um að honum væri enginn gaumur gefinn i höfuðborg is- lendina. Um miðjan dag var fluttur i Rikisútvarpinu þáttur um Sofffu Guðlaugsdóttur, og mátti þar m.a. heyra hana og Gest Pálsson flytja lungann úr niðurlagi leikritsins Fröken Júliu. Og um kvöldið gafst kost- ur á að sjá hina sömu Júliu al- veg óða i leikgerð hópsins sem kallar sig Hreyfileikhúsið. Að þvi er segir i leikskrá hefur handrit sýningarinnar verið „unnið af hópnum upp úr texta Strindbergs, Bibliunni, islensk- um söngvum og frjálsum æfing- um leikaranna undir stjórn Nig- el Watson”. Varla getur hjá þvi farið að nokkrar efasemdir vakni, þegar tekið er til við að hressa upp á eða umsemja leikrit af þessu tæi. Ber engan veginn að skilja það svo að undirritaður telji slika yngingarstarfsemi engan rétt eiga á sér. Siður en svo. Þess verður hins vegar að gæta að velja til yngingar verk sem þurfa hennar með eða sem gefa má nýtt lif og nýtt hlutverk með þvi móti.Einnig verður að gæta þess að hið nýja verk öðlist slikt lif og verði svo óháð hinu fyrra verki að það geti staðið sjálft. Sannast sagna efast ég mjög um að þessum tveim skilyrðum sé fullnægt i þvi dæmi sem hér ræðir. 1 fyrsta lagi hlýtur að vera vafamál hvort karakter- leikrit eins og Fröken Júlia er vel til yngingar fallið. Leikritið fjallarum vandamál yfirstéttar sem islendingum er sem betur fer harla framandi. Það er auk þess samið af höfundi sem kunni óvenju vel þá kúnst að búa til leikrit, hvað sem annars má um hann segja. Verk hans þarfnast þess næsta sjaldan að vera um- skrifuð. í annan stað virtist mér mjög vafasamt að leikhúsgestir fengju nokkra heillega mynd af þvi sem um var fjallað, nema þeir þekktu upprunalega verkið. Og þá vaknar náttúrulega spurningin: Hvaða erindi á sýn- ing sem þessi til okkar, ef hún gerir þá kröfu að við kynnum okkur fyrst leikrit sem hefur verið fjarska sjaldséð á íslensk- um fjölum og ekki er til í is- lenskri útgáfu. Leikhússvönum svium, sem þekkja sinn Strindberg, kynni aö þykja mat- ur i sliku, en tæplega fákunn- andi islendingum. Þegar svo Úr einu atriði hreyfileikhússins Fröken Júlia alveg óð. sem hann segist hafa reynt „einungis... að skapa nýtt form til að uppfylla þær kröfur sem ég imynda mér að nútimamenn ættu aðgera til þessarar listar.” Þetta verður ekki skilið á annan veg en að hópurinn hugsi sér að sá stilfærði og yfirspennti leik- máti sem hann beitir, sé einmitt það sem nútimamenn krefjist, af ieikhúsinu. Vel má vera að undirritaður falli tæpast undir skilgreininguna „nútima- menn”. Honum er að minnsta kosti mjög til efs að háspenna af þessu tæi sé það sem mest skorti á i islensku leikhúslifi. Það sem hann saknar mest þar er einmitt hófstilling, einhvers konar við- urkenning á að tilfinningar (ekta eða uppgerðar) megi tjá með öðru en ópum og ósköpum. Þeir agnúar sem nú hafa ver- ið raktir voru eiginlega enn sár- ari en ella vegna þess að leikar- arnir þrir sem fram komu, Nig- el Watson, Inga Bjarnason og Sólveig Halldórsdóttir, sýndu svo ekki varð um villst að þau kunna mikið fyrir sér og ráða yfir ótviræðri tækni. Hreyfingar og látbragð Nigel Watsons er t.a .m. áleitin Ieikbrögð, og hann virðist hafa likama sem mis- bjóða má u.þ.b. takmarkalaust. Hafa þurft að greiða 32 milljónir ó borðið í gatnagerðargjðld „Ein meginorsök þess, að iðnfyrirtæki hafa flúið Reykja- vikurborg og byggt húsnæði yfir starfsemi sina I öðrum sveitar- félögum, er vafalaust sú, að i Reykjavik verða fyrirtæki aö greiða strax gatnagerðargjöld af þvi húsi, sem byggja má á viðkomandi lóð, en i sumum öörum sveitarfélögum i ná- grenninu mega fyrirtækin greiða þessi gjöld eftir þvf sem byggt er á lóðinni”, sagði Davið Scheving Thorsteinsson, for- maður Félags islenskra iðnrek- enda, i viötali við Visi. Á undanförnum árum hafa mörg fyrirtæki flutt starfsemi sina úr höfuðborginni og til ná- grannasveitarfélaga, t.d. Kópa- vogs og Garðabæjar, þegar þau hafa þurft að byggja yfir starf- semi sina. Þurfti að greiða 32 millj- ónir Davið sagöist telja, að þessi krafa um greiðslu alls gatna- gerðargjaldsins strax væri vafalaust helsti orsakavaldur- inn. Hér væri heldur ekki um neinar smáupphæðir að ræða. T.d. hefði eitt fyrirtæki, sem fékk lóð á s.l. hausti, þurft að greiða 32 milljónir i gatna- gerðagjöld. „Iðnfyrirtæki vilja helst fá stóra lóð, sem hægt er að byggja á smátt og smátt á 10-15 ára timabili. Sum nágrannasveitar- félög Reykjavikur hafa sýnt þessu skilning, og leyfa fyrir- tækjunum að greiða gatna- gerðagjöldin eftir þvi sem bygg- ingu á lóðinni miðar áfram. Hér er hins vegar gerð krafa til þess að öll gatnagerðargjöld séu greidd strax i upphafi,” sagði hann. Orkusalan er mál sveit- arfélaganna Davið sagði, að ýmis önnur atriði kæmu þarna inn i mynd- ina. Mætti i þvi sambandi nefna orkusöluna, en mikill munur er á orkuverði til iðnaðar á höfuð- borgarsvæðinu og t.d. til sam- bandsverksmiðjanna á Akur- eyri, eins og Visir hefur skýrt frá. „Þetta er auðvitað mál sveitastjórnanna, þvi þær selja raforkuna i smásölu. Og hingað til hefur sú stefna ekki veriö rikjandi að selja neytendum raforkuna á þvi verði, sem það kostar að selja þeim hana. Þess vegna hafa stórnotendur ekki notið þess, eins og sums staðar annars staðar, að þeir kaupa mikið magn.” Verður Reykjavík að svefnbæ? Aðspurður hvort hann hefðu trú á, að um stefnubreytingu yrði að ræða hjá borgaryfir- völdum i þessu efni, sagði Davið: „Ég get ekki imyndað mér annað. Mér þykir ótrúlegt, að stefnt veröi að þvi aö Reykja- vik verði eins konar svefnbær og þjónustumiðstöð. Hins vegar höfum við ekki enn orðið varir við stefnubreytingu nema i sambandi við yíræktarver, sem erlendir aðilar hyggjast koma á fót hér á landi. Þar hafa borgar- yfirvöld lagt verulega áherslu á að fá fyrirtækið til Reykjavikur. un ætlunin, að slikt ylræktar- ver greiði engin gatnagerðar- gjöld, engin heimæðagjöld og engin heimtaugagjöld. Þetta er annað en islenskur iðnaöur á að venjast,” sagði Davið. Borgarráð lætur kanna málið Brottflutningur iðnfyrirtækja frá höfuðborginni er nú orðinn svo mikill, að borgarráð hefur samþykkt að fela borgarverk- fræöingi að láta kanna hversu mörg fyrirtæki hafi flutt þannig til annarra sveitarfélaga, og hvers vegna hvert fyrirtæki um sig tók þá ákvörðun að flytja frá Reykjavik. _ ESJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.