Vísir - 11.01.1977, Blaðsíða 8

Vísir - 11.01.1977, Blaðsíða 8
8 Þriðjudagur 11. janúar 1977 vism Þetta er leikstjórinn Hovhanness I. Pilikian kominn f fslenska peysu. konungur á svíð í Þjóðleikhúsinu Einn fremsti leikstjóri á Bretlandseyjum leikstýrir verkinu Nýlega hófust æfingar i Þjóð- leikhúsinu á leikriti Shake- speares. Lér konungur. Einn af þekktustu yngri leikstjórum i Bretlandi, Hovhanness I. Piliki- an stjórnar verkinu, en leik- mynd gerir Ralph Koltai, sem er yfirleikmyndateiknari við Royal Shakespeare Company i London. Lér konungur hefur aldrei áð- ur verið fluttur hér á sviði, en þetta er einn kunnasti harm- leikur Shakespeares og almennt talinn hinn vandasamasti. Lér hefur hins vegar verið fluttur i útvarp. Steingrimur Thor- steinsson þýddi fyrst leikinn fyrir tæpri öld, sú þýðing hefur aldrei verið leikin. Það er þýð- ing Helga Hálfdanarsonar sem hér verður leikin, eins og i út- varpinu um árið. Stefán Baldursson er að- stoðarleikstjóri, Rúrik Haralds son leikur Lé konung, Baldvin Halldórsson fiflið, Erlingur Gislason jarlinn af Gloster og Kristbjörg Kjeld, Anna Kristin Arngrimsdóttir og Steinunn Jó- hannesdóttir dæturnar, Goneril, Regan og Kordeliu. Leikstjór- inn, Pilikian, hefur staðið fyrir ýmsum mjög umræddum sýn- ingum i Bretlandi undanfarin ár, t.d. i hátiðarleikhúsinu i Chichester og á Edinborgar- hátiðinni. Koltai er i hópi fremstu leikmyndateiknara heimsins um þessar mundir og fékk m.a. fyrstu verðlaun a al- þjóðastefnu leikmyndateiknara i Prag i fyrra. Frumsýning á Lé konungi er fyrirhuguð 2. mars næstkom- andi. Vantar 45 þúsund tunn- ur af kart- öflum til að fullnœgja | •• #• • V f porfmni i ar Kartöfluframleiðslan i fyrra var uin 45 þúsund tunnum minni en þarf til að fulinægja innanlandsneyslunni. Samt sem áður jókst fram- leiðslan i fyrra verulega og varð um 75 þúsund tunnur, en árið á undan aðeins 45 þúsund tunnur. Innanlandsmarkaður- inn þarf hins vegar um 120 þúsund tunnur. Grænmetisframleiðslan var einnig meiri i heild i fyrra en árið áður. —ESJ. Nýlega var Þjóðleikhúsinu gefin mynd af dr. Páli heitn- um isólfssyni, tónskáldi. Er myndin gjöf l'rá fjölskyldu dr. Páls og máluð af þýskum mál- ara llans Alexander Muller i Leipzig 1917 eða 18. Við af- hendingu myndarinnar í Þjóð- leikhúsinu hafði Jón Pálsson, sonur tónskáldsins orð fyrir gefendum, en formaður Þjóð- leikhúsráðs, Vilhjálmur Þ. Gislason þakkaði fyrir hönd leikhússins. HROSSUM FJÖLGAR Hrossum fjölgaði verulega á siðasta ári, eða um 3.8%. Á sama tima fjölgaði sauðfé um .1.8%. en nautgripum fækkaði um 3.7%. í ársbyrjun 1976 voru hross tæplega 50 þúsund talsins, og heíur þeim þvi fjölgað á árinu um hátt i tvö þúsund. — ESJ. Kóri litli og Stefán Júliusson fá góða dóma í Danmörku: „Bókin lýsir einföldum gleðigjöfum í daglegu lífi á Islandi" Eins og skýrt hefur verið frá i fréttum kom barnabókin „Kári litli i sveit” eftir Stefán Július- son út i Danmörku i nóvember siðastliðnum. útgefandi er Bir- gitte Hövrings Biblioteksforlag sem sett hefur sér það markmið að gefa aöallega út islenskar hækur. Hefur forlagið þegar gefið út nokkrar bækur þýddar beint úr islensku. Kári litli i sveit kom fyrst út árið 1948 i stóru upplagi. Síðan hefur bókin veriðgefin út a.m.k. tvisvar sinnum og einnig hefur hún verið lesin i útvarp oftar en einu sinni. Hafa Kárabækurnar notið almennra vinsælda is- lenskra barna i hartnær fjóra áratugi. Svo virðist af blaðadómum að Kári litli i sveit ætli að fá góðar viðtökur i Danmörku. I ritdómi eftir Jörgen Grunnet Jepsen i Berlingske Tidende 2. des. siðastl. undir fyrirsögninni is- lenskir hversdagstöfrar segir m.a.: „Sagan er hversdagsleg en sögð á svo lifandi og sannfær- andi hátt að maður hrifst með. Þetta er bók sem er vel til þess íallin að lesa upphátt á heimil- um þar sem eru börn á aldrin- um 6 til 10 ára.” „Bókin lýsir einföldum gleði- gjöfum i daglegu lifi á Islandi og vissulega hafa menn gott af að lesa um það efni.” „Með öðrum orðum: góð skemmtisaga i gömlum stil fyr- irbörn á aldrinum 6 til 10 ára.” í upplýsingum sem danska Bókbandsmiðstöðin dreifir til danskra bókasafna segir Ove Frank um bókina: „Smábarnabók um dvöl is- lenska drengsins Kára f sveit. Þessi dvöl er bæði spennandi og áhriíarik en um leið er lýst dag- legu lifi á islenskum bóndabæ.” „Bókin er tilvalin til upplestr- ar fyrir 7-10 ára börn og til við- bótar sögunni fá áheyrendur innsýn i islenska lifsháttu.” „Bókin er þýdd á prýðilega dönsku.” t Aalborg Stifstidende skrifar Birthe Lauritsen um bókina hinn 9. des. siðastl. Hún lýsir fyrst ánægju sinni með framtak Birgitte Hövrings Biblioteksfor- lag að gefa út bækur þýddar beint úr islensku. Siðan segir hún um Kára litla i sveit sem á dönskunni nefnist Drengen og hunden: „Einkum má mæla með bók- inni Drengen og hunden. t henni dregur Stefán Júliusson upp glögga mynd úr daglegu lifi á tslandi. Maður kemst að raun um að lif isl. barna er ólikt þvi sem við þekkjum. Ef til vill er það töluvert reynslurikara en venjulegt lif danskra barna.” „Það er hæglát spenna i frá- sögninni um muninn á lifi i sveit ogkaupstað og um islenskt stór- læti og staðfestu.” „I þessari bók getur margt fullorðið fólk vissulega fengið svipmynd af lifinu i norðlægasta landinu af Norðurlöndunum fimm.” Undir mynd með þessum rit- dómi stendur: „Ein af hinum fögru myndum i bókinni Dreng- en og hunden, teiknuð af Hall- dóri Péturssyni.” Kári litli i sveit er þýddur á dönsku af Rigmor Hövring. Stefán Júllusson, rithöfundur, skrifaði Kárabækurnar og hafa þær notið vinsælda i nær fjóra áratugi. Myndin er tekin i hinninýju verslun f Glæsibæ. Raftækjaverslun hefur nú bæst f hóp þeirra verslana sem mynda verslanamiðstööina í Glæsibæ í Reykjavík. Er það fyrirtækiö Ljós og raftæki, og er eigandi verslunarinnar Jón Bjarnason. Hann hefur frá árinu 1962 rekið rafverkstæði í Hafnarfirði ásamt raftækjaversl- un þar i bæ. Framkvœmdastjórn ÍSÍ harmar afstöðu í þróttafréttaritara Lýsa trausti á skrif- stofustjóra Í.S.Í. Visi hefur borist bréf frá framkvæmdastjórn Iþrótta- sambands islandsi tilefni skrifa iþróttafréttaritara blaðsins i tengslum við kjör iþróttamanns ársins. Þar segir: íþróttasambandið harmar neikvæða afstöðu iþróttafrétta- ritara yðar gagnvart vali á iþróttamönnum ársins i hinum einstöku iþróttagreinum, sem sérsambönd innan t.S.t. i sam- starfi við iþróttablaðið efna til i lok hvers árs. Væntum við að þar verði breyting á. Annað sæmir ekki hlutaðeigandi aðil- um. Gifuryrðum iþróttafréttarit- ara blaðsins i garð Sigurðar Magnússonar, skrifstofustjóra Í.S.Í., viljum við mótmæla og visum þeim á bug, enda nýtur skrifstofustjóri l.S.Í. fyllsta trausts i hinum margvislegu störfum á vegum iþrótta- hreyfingarinnar. Með þökk fyrir birtinguna, í framkvæmdastjórn Í.S.l. Gisli Halldórsson (sign) Sveinn Björnsson (sign) Gunnl. J. Briem (sign) Hannes Þ. Sigurðsson (sign) Alfreð Þorsteinss. (sign)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.