Vísir - 18.02.1977, Qupperneq 19
Sambandið og
fyrírgreiðslu-
pólrlík
í Kastljósi í kvöld
Kastljósi veröur beint aö
tveimur málum I kvöld. Fyrst
veröur fjallaö um Sambandiö og
samvinnuhreyfinguna i fram-
haldi af 75 ára afmæli Sam-
bands islenskra samvinnufé-
laga. Rætt veröur viö Erlend
Einarsson forstjóra Sambands-
ins og Eystein Jónsson sem er
stjórnarformaöur þess. Þeir
Eyjólfur Konráö Jónsson og
Svavar Gestsson aöstoða ómar
Ragnarsson stjórnanda þáttar-
ins viö spurningarnar.
ömar heimsótti af þessu til-
efni tvo bæi á suðurlandi sem
Sambandiö hefur haft mikiö af
aö segja, Selfoss og Eyrarbakka
og ræðir þiar viö fólk á götunni.
Seinni hluti þáttarins veröur
um fyrirgreiöslupólitik þing-
manna hversu langt þeir eigi aö
ganga I sinni fyrirgreiöslu,
hvort hún sé rétt skipulögö og
hvort hún sé yfirleitt rétt. Þarna
veröur þvi komiö inná sam-
band kjósenda og þingmanna
sem alltaf er til umræöu
Elias Snæland Jónsson ræöir
þessi mál viö þrjá þingmenn,
Svövu Jakobsdóttur, Sigurlaugu
Bjarnadóttur og Vilhjálm
Hjálmarsson menntamálaráö-
herra. —GA
Sjónvarp klukkan 22.
Þaö eru mörg spennandi augnablik i myndinni i kvöld. Þetta er eitt þeirra.
Rœningjar á skjánum í kvöld
Sjónvarpiö býöur okkur i
kvöld upp á breska mynd frá ár-
inu 1954. Aö feigðarósi, heitir
hún i Islensku þýöingunni, og á
þaö sameiginlegt meö myndinni
sem sýnd var siðasta föstudag
aö hvergi er á hana minnst i
kvikmyndahandbókinni okkar
góöu, en nokkuö áreiðanlegt er
aö þar er minnst á allar „meiri
háttar” myndir.
Aöalleikarinn i myndinni,
Laurence Harvey, fæddist I Lit-
háen og heitir raunverulega ein-
hverju erfiöu rússnesku nafni.
Hann fluttist þó ungur til Bret-
lands og fór fljótlega aö leika á
sviöi þar. Hann óx siöan og
dafnaöi sem leikari og varö
brátt atkvæöamikill I Holly-
wood, sem leikari, framleiöandi
og leikstjóri.
I myndinni er sagt frá fjórum
mönnum sem eiga i sárustu
fjárhagsvandræöum svo þeir
sjái ekki annaö ráö betra en aö
ræna póstflutningabfl til aö
rétta úr kútnum.
Þýöandi er Jón Thor Haralds-
son.
Útvarp klukkan 20.30:
íslendingar ó stór-
sýningu í Frakklandi
,,Ég er aö hugsa um aö segja
frá Moderniska safninu i Par-
is”, sagöi Þóra Kristjánsdóttir i
samtali viö Visi en hún sér um
myndlistarþátt i útvarpinu I
kvöld.
Fyrir stuttu var opnuð i Paris
mikil menningarmiöstöö eöa
höll sem sklrö var eftir Pompi-
dou fyrrverandi frakklandsfor-
seta. 1 tilefni af opnuninni voru
haldnar þar nokkrar sýningar á
nútimalist, og meðal þeirra sem
áttu verk á einni sýningunni
voru 4 islendingar.”
„Þaö eru 4 fyrrverandi StJM
menn sem allir eru nú búsettir I
Hollandi, þeir Sigurður Guö-
mundsson og Kristján Guö-
mundsson, Hreinn Helgason og
Þóröur Ben. Sveinsson.”
„Nokkrir vinir þessara
manna fóru út til aö klkja á sýn-
inguna og einn þeirra ölafur
Lárusson nyndlistarmaöur seg-
ir frá henni og þvl hvernig henni
var tekið.”
Hinir frábæru prúöuieikarar eru dagskránni í kvöld
klukkan 20.35. Gestur þeirra í þetta sinn er gaman-
leikarinn Harvey Kormann. A myndinni er Kermit
kominn til London og situr hinn kátasti á Trafalgar
torginu. Þátturinn hefst klukkan 20.35.
— GA
„Nú er einnig veriö aö undir-
búa för islenskra myndlistar-
manna á mikla sýningu I Rostok
I Þýskalandi og ég hef fengiö
Braga Ásgeirsson formanna fé-
lags islenskra myndlistar-
manna til aö segja mér frá þeim
undirbúningi og förinni.”
Myndlistarþátturinn hefst kl.
hálf niu og er hálftima langur.
— GA
12.00 Dagskrain. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir og Fréttir.
Tilkynningar. Viö vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miödegissagan: Móöir og
sonur eftir Heinz G. Kon-
salik Bergur Björnsson
þýddi. Steinunn Bjarman
les (6).
15.00 Miðdegistónleikar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.20 Popphorn
17.30 (Itvarpssaga barnanna:
„Borgin við sundiö” eftir
Jón Sveinsson (Nonna)
Freysteinn Gunnarsson Isl.
Hjalti Rögnvaldsson les
(13).
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Þingsjá Umsjón: Kari
Jónasson.
20.00 Pianókonsert nr. 19 i F-
dúr (K459) eftir Mozart
Valdimlr Ashkenazý leikur
meö Sinfónluhljómsveit ls-
lands og stjórnar jafnframt.
20.30 Myndlistarþáttur I um-
sjá Þóru Kristjánsdóttur.
21.00 Tónleikar aö Intro-
duction og allegro I Ges-
dúr fyrir hörpu, flautu,
klarínettu og strengjasveit
eftir Maurice Ravel. Emilia
Moskvitina, Alexei Gofman,
Alexander Alexandrov og
félagar úr Rlkisfil-
harmoniusveitinni i Moskvu
leika.Béla Shulgin stjómar.
b. „Andstæöur” fyrir fiölu,
klarinettu, planó og
strengjahljóðfæri eftir Béla
Bartók. Emanuel Hurwitz,
Gervase de Peyer, Lamar
Crowson og félagar úr
Melos sveitinni I Lundúnum
leika.
21.30 (Jtvarpssagan:
„Blúndubörn” eftir Kirsten
Thorup Nina Björk Arna-
dóttir les þýöingu slna (3).
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir. Lestur
Passiusálma (11)
22.25 Ljóöaþáttur Njöröur P.
Njarövlk sér um þáttinn.
22.45 Afangar Tónlistarþáttur
sem Asmundur Jónsson og
Guöni Rúnar Agnarsson
stjórna.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Prúöu leikararnir
Leikbrúöurnar bregöa á leik
ásamt gamanleikaranum
Harvey Korman. Þýöandi
Þrándur Thoroddsen.
21.00 Kastljós. Þáttur um
innlend málefni. Umsjónar-
maöur ómar Ragnarsson.
22.00 Aö feigðarósi (The Good
Die Young) Bresk biómynd
frá árinu 1954. Aöalhlutverk
Laurence Harvey, Richard
Basehart, John Ireland,
Stanley Baker og Margaret
Leighton. Fjórir menn
hyggjast leysa fjárhags-
vandamál sln meö þvl aö
ræna póstflutningabll.
Þýöandi Jóh Thor Haralds-
son.
23.35 Dagskrárlok.