Vísir - 16.03.1977, Síða 19

Vísir - 16.03.1977, Síða 19
SJONVARP KLUKKAN 18. VANDAÐ EFNI Sjónvarpið má eiga það, að þessa dagana býður það upp á nokkuð vandað barnaefni. Klukkan sex i dag hefst dagskráin á sögu um BANGSANN PADD- INGTON, sem flest börn kannast við af bókum. Þá verður sýndur annar þáttur breska framhaldsmynda- flokksins BALLETT- SKÓRNIR, sem gerður er eftir sögu Noel Stratfields. í fyrsta þætti var sagt frá forn- leifafræðingi sem ætt- leitt hafði þrjár litlar stúlkur. Hann hafði verið siðustu tiu ár er- lendis, en frænka hans hafði séð um uppeldi stúlknanna. Þegar sagan hófst var fjár- hagur þeirra orðinn bágborinn, og frænkan varð að taka leigj- Bangsinn Paddington ris úr rekkju og dregnr frá gluggunum. endur. t Ijós kom að þeir gátu allir liðsinnt stúlkunum. Þýðandi er Jóhanna Jóhanns- dóttir. MIKLAR UPPFINNINGAR heitir svo sænskur fræðslumyndaflokkur sem verið er að sýna um þessar mundir á miðvikudögum. í dag er þriðji þáttur á dag- skrá og heitir hann Þetta er Elizabeth Morgan en hún leikur Pauline í mynda- flokknum um Ballettskóna. Skriftin. Þýðandi og Þulur er Gylfi Pálsson. —GA SJONVARP KLUKKAN 21.15: Ian Carmichael i hlutverk sinu sem Wimsey lávaröur. Wimsey lá- varður kom- inn aftur Þá er Wimsey lávarður aftur kominn á skjáinn, eftir um þaö bil þriggja ára hvild. Svo er lika von á Onedin eftir fjórar vikur þegar lávaröurinn hefur lokiö sér af. Aö sögn óskars Ingi- marssonar þýöanda þáttanna um Wimsey, eru þessir þættir I öllum meginatriöum mjög svipaöir þeim sem gengu hér áöur, leikararnir i aöalhlut- verkunum þeir sömu, aö fást viö svipaöa hluti. Höfundur saganna um Wimsey lávarö er Dorothy L Sayers, sem er atkvæðamikil hjá rlkisfjölmiölunum um þessar mundir þvi aö leikritiö Maðurinn sem borinn var til konungs.er eftir hana. Hún sló hinsvegar i gegn meö -sögunum um Wimsey lávarö, sem stundum hefur veriö nefndur hennar Poirot, eftir söguhetju Atöthu Christie. Bækurnar komu út um 1930, og færöu henni frægö og frama. Nú veröa sýndir fjórir þættir um lávaröinn og þjón hans, ekki sex eins og stendur í dag- skránni. I þeim fyrsta er sagt frá Wimsey og Bunter, þjóninum sem aldrei fer langt frá hús- bónda sinum, þar sem þeir eru á ferð i Skotlandi. Feröin er farin til hvildar og hressingar, og dvalist er á ákaflega fallegum staö, þar sem bæöi er hægt aö stunda veiöar og leika golf. Þarna er landslagiö mikiö aödráttarafl fyrir málara, og þeir eru lika þarna í stórum hópum. Einn þeirra er frekar óvinsæll meöal hinna, og er eiginlega rekinn úr samtökum málara. Hann er svakamenni mikiö, en ágætur málari. Fyrsti þátturinn gengur mikiö út á samskipti hans viö hina málarana og svo auövitaö Wimsey. Aö sögn Óskars eru þessir þættir ein sjálfstæö saga, en þó er stundum vitnaö i þaö sem geröist i gömlu þáttunum, svo þaö er greinilegt aö þessir gerast seinna. Svo má geta þess aö þættirnir eru sendir út í lit. —GS Utvarp ki. 20.00: Ekkert síð- ur fyrir yngra fólk Þjóðlegur fróðleikur í kvöldvöku útvarpsins ,,Þaö má kannski segja aö þjóölegur fróöleikur eins og það sem flutt er I kvöld- vökunni höföi meira til eldra fólks”, sagöi Baldur Pálma- son, hjá útvarpinu, i samtaii viöVisi. „Enégveitum margt miöaldra fólk og reyndar ungt iika sem hefur gaman af gömlum fróöleik. Og bækur sem út koma um svipuö efni seljast vel, og jafnvel betur en aörar.” Þaö hefur verið rætt um þaö aö undanförnu aö kvöldvaka útvarpsins væri eingöngu fyrir gamalmenni, en þetta er sem sagt svar umsjónarmanns þáttarins viö þvi. 1 kvöldvökunni 1 kvöld er meðal annars frásöguþáttur eftir Bergsvein Skúlason, hinn þekkta fræöimann frá Breiöa- firöi, sem hann kallar sjó- slysio viö Skeley. Kvöldvakan hefst klukkan átta og er eins og hálfs tíma löng. —GA Miðvikudagur 16. mars 12.25 Veöurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: ,,Ben Húr”, saga frá Krists dög- um eftir Lewis Wallace Sigurbjörn Einarsson þýddi. Astráöur Sigurstein- dórsson les (2). 15.00 Miödegistónieikar 16.20 Poppnorn Halldór Gunnarsson kynnir. 17.30 Útvarpssaga barnanna: „Systurnar I Sunnuhliö” eftir Jóhönnu Guömunds- dóttur. Ingunn Jensdóttir leikkona les (2). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Rannsóknir á fuglastofn- um viö MývatnDr. Arnþór Garöarsson prófessor flytur tlunda erindi flokksins um rannsóknir i verkfræöi- og raunvisindadeild háskólans. 20.00 Kvöldvaka a.Einsöngur: Stefán tslandi syngur is- lensk lög Fritz Weisshappel leikur á pianó. b. Sjóslysiö viö Skeley Bergsveinn Skúlason flytur frásöguþátt. c. Ljóömæli eftir Guörúnu frá Melgeröi Ami Helgason les. d. Eftirganga Þórarinn Helgason flytur frásögu skráöa eftir Eiriki Skúla- syni bónda frá Mörtungu á Slðu. e. ömefni og eyöibýli Agúst Vigfússon les frá- söguþætti eftir Jóhannes Asgeirsson. f. Kórsöngur: Karlakórinn Fóstbræöur syngur 21.30 Ctvarpssagan: „Blúndu- börn” eftir Kirsten Thorup Nína Björk Arnadóttir les þýöingu sina (14). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (33) 22.25 Kvöidsagan: „Sögukafl- ar af sjálfum mér” eftir Matthias Jochumsson Gils Guömundsson les úr sjálfs- ævisöguhansogbréfum (8). 22.45 Djassþátturí umsjá Jóns Múla Arnasonar. 23.30 Fréttir. Einvigi Horts og Spasskýs: Jón Þ. Þór lýsir iokum 8. skákar. Dagskrár- lok kl. 23.45. 18.00 Bangsinn Paddington Breskur myndaflokkur. Þýöandi Stefán Jökuldsson. Sögumaöur Þórhallur Sigurösson. 18.10 Ballettskórnir Breskur framhaldsmyndaflokkur i sex þáttum, gerður eftir sögu Noel Stratfields. 2. þáttur. Efni fyrsta þáttar: Fornleifafræðingur hefur ættleitt þrjár litlar stúlkur. Undanfarin tiu ár hefur hann verið erlendis, en frænka hans séö um uppeldi stúlknanna. Þegar sagan hefst, er fjárhagur þeirra oröinn bágborinn, og frænk- an veröur aö taka leigjend- ur. í ljós kemur, aö þeir geta allir liösinnt 18.35 Mikiar uppfinningar Sænskur fræöslumynda- flokkur. 3. þáttur. Skriftin Þýöandi og þulur Gylfi Pálsson. Hié. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Skákeinvigiö 20.45 Eldvarnir i fiskiskipum. I þessari mynd er gerö grein fyrir eldhættu I fiskiskipum og hvernig brugöist skuli viö ef eldur kviknar. Sýndar eru ýmsar aöferöir til ab slökkva eld í skipum. Þýö- andi og þulur Ellert Sigur- björnsson. 21.15 Ævintýri Wimsey lávaröar. Nýr, breskur sakamálamyndaflokkur i sex þáttum, byggður á sögu eftir Dorothy L. Sayers. Aöalhlutverk Ian Carmichael og Glyn Hous- ton. 1. þáttur. Peter Wimsey lávaröur og Bunter einka- þjónn hans eru i orlofi I Skotlandi, og þegar fyrsta daginn finna þeir mannsllk. Þýöandi óskar Ingimars- son. 22.05 Gitartónlist. Paco Pena og John Williams leika eink- um falmenco-tónlist. Þýöandi Jón Skaptason. 22.30 Dagskrárlok.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.