Vísir - 18.04.1977, Page 1
Mánudagur 18. april 1977
99. tbl. — 67. árg.
Siódegisblaó fyrir
f/clskylduna >
mrmmmm * k rj jsTrj
„Samnmgamálin eru
komin á hreyfingu"
Nokkur hreyfing
varð i samkomulagsátt
i viðræðunum um sam-
eiginlegar sérkröfur á
síðasta sáttafundi, en
nýr sáttafundur hófst
kl. 10 i morgun á Hótel
Loftleiðum.
Báðir aðilar eru sammála
um, að nokkur hreyfing hafi
orðið, en eru jafnframt mjög
varfærnir i dómum um, hvort
það hafi einhver áhrif á umræð-
una um meginkröfurnar.
„Fyrir og um helgina hófust
viðræður i nokkrum undirnefnd-
um um sameiginlegar sérkröfur
Alþýðusambandsins, og varð
litilsháttar hreyfing á málunum
þá” sagði Baldur Guðlaugsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins i viðtali við
Visi i morgun. ,,Og segja má að
samningagerðin sé að komast i
skýrari farvegi, þótt engan veg-
inn sé ljóst hvað verði með af-
greiðslu sérkrafna. Það liggur i
láginni i bili.”
„1 sumum atriðum varðandi
sameiginlegu sérkröfurnar var
örlitil hreyfing” sagði Björn
Jónsson, forseti ASI i morgun.
,,En ekki er hægt að segja að
það hafi verið i neinum stórmál-
um sem skipta sköpum. Hins
vegar var þetta fyrsti fundur-
inn, þar sem gagnaðilar okkar
höguðu sér eitthvað likt þvi,
sem þeir væru i samningavið-
ræðum”.
Björn sagði að ekkert væri
hægtaðsegja til um, hvorthorf-
urnar á friðsamlegri lausn væru
betri en áður.
Aðspurður sagði Björn að
verkalýðshreyfingin stefndi að
þvi að vera i stakk búin til að
boða verkfall um mánaðamótin,
en ekkert yrði ákveðið um verk-
fallsboðanir fyrr en þar að
kæmi, og yrðu slikar ákvarðanir
þá teknar i samræmi við þá
stöðu sem þá væri i viðræðun-
um.
— ESJ
Þær tóku þátti keppninni i gærkvöldi. Talið frá vinstri: Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Sigurlaug Halldórsdóttir, sem kjörin var ungfrú
Reykjavik — og Anna Björk Eðvarðsdóttir. — Ljósmynd Visis: Loft ur.
„Ég er alveg hoppandi!"
segir nýkjörin Ungfrú Reykjavík, Sigurlaug Halldórsdóttir
„Ég er alveg hoppandi” sagði
Sigurlaug Iialldórsdóttir ný-
kjörin fegurðardrottning
Reykjavikur þegar Visir spurði
hana hvernig henni liði með
nýja titilinn.
„Ég var búin að ákveða að ég
væri númer þrjú, en svo þegar
sagt var hver væri númer tvö,
komu tárin”.
Sigurlaug er 17 ára nemandi i
Menntaskólanum i Reykjavik.
Hún var kjörin fegurst reyk-
viskra meyja 1977 af gestum
Hótel Sögu i gærkvöld. önnur i
röðinni varð Anna Björk Eð-
varðsdóttir og Guðbjörg Vil-
hjálmsdóttir varð þriðja.
Sigurlaug sagðist hafa verið
hræðilega taugaóstyrk áður en
þær stöllurnar komu fram fyrst,
„en það var svo gott fólk i saln-
um, að manni leið strax vel.
Stúlkurnar verða allar þrjár
fulltrúar Reykjavikur i keppn-
inni um titilinn „Ungfrú ls-
land” og munu þær taka þátt i
fegurðarsamkeppnum erlendis.
Sigurlaug verður fulltrúi Is-
lands i keppninni „Miss Inter-
national” i Japan á næsta ári.
—SJ/EKG
Vildu
ekki
grátt
malakoff
Sjá baksíðu
Spassky
vann
Sjá bls. 2
og 28
Þurfum
að hœgja
r /t r
a fjar-
festingum
Sjá bls. 11
\ .<• sssSSSSlll
Vaka í
30 ár
Sjá bls. 21