Vísir - 18.04.1977, Page 5
Óþolinmœði í
Panama vegna
Bandaríkjanna
Óvinir Concorde cfna til mótmæla í New York.
Mótmœla Concorde
Æðstráðandi Panama,
hershöf ðinginn Omar
Torrijos, lét á sér skilja í
viðtali við timaritið
„Newsweek'að brotist gæti
út i Panama hryðjuverka-
alda, sem beindist gegn
Bandaríkjunum, ef ekki
Strandaglópar
vegna verkfalls
Þúsundir farþega er-
lendra sem ástralskra
flugfélaga sátu fastir á
flugvöllunum i Sydney
og Melbourne um helg-
ina vegna verkfalla oliu-
bilstjóra og hlaðmanna.
Meöal flugfélaga, sem áttu þot-
ur er ekki fengu eldsneyti, voru
British Airways, Pan Am, Al-
italia, KLM, Singapore Airlines
og Flugfélag Filippseyja.
næðist fljótlega nýtt sam-
komulag um Panama-
skurðinn.
„Loftið i Panama er lævi bland-
ið, þvi að Bandarikin hafa logið
svo lengi að okkur”, hefur blaðið
eftir hershöfðingjanum.
Sumir leiðtogar Panama
„segja, að við getum ekki losað
okkur undan nýlenduokinu með
öskrum einum saman”, er haft
eftir Torrijos hershöfðingja.
„Þeir segja að leið Ho Chi Minh
(sem skipulagði skæruhernað
Viet Minh i Indókina i baráttunni
gegn yfirráðum frakka) hafi
ávallt verið sú besta”.
Hershöfðinginn segir i viðtal-
inu,*að aðalþröskuldur fyrir nýju
samkomulagi sé krafa banda-
rikjamanna um rétt til þess að
tryggja hlutleysi við Panama-
skurðinn.
„Ég hef sagt Bandarikjunum,
að þau verði að fækka herliði sinu
við skurðinn á næstu fimm árum.
Við erum tilbúnir að ræða ráð-
stafanir til að tryggja hlutleysi
skipaskurðarins og munum leyfa
Bandarikjunum að hafa her-
stöðvar fram til ársins 2000”.
Þeir nýju-jórvíkingar,
sem andvigir eru þvi, að
concordeþoturnar fái að
lenda á Kennedyflug-
velli, hóta þvi að koma
þar vikulega til að mót-
mæla tilraunum breta
og frakka til að fá lend-
ingarleyfi fyrir þessar
vélar.
Tilraunir þeirra í gær til þess aö
skapa umferðaröngþveiti á öllum
vegum, sem liggja að flugvellin-
um,fóruþóaðmestuútum þúfur.
Óku þeir samsíða tveir og tveir á
lúsarhraöa.
Lögreglunni tókst að afstýra
meiriháttar vandræöum, þvi að
ekki tóku nema um 500 bilar þátt i
þessum mótmælaaðgerðum.
Höfðu þó concordefjandmenn
gert sér vonir um aö fá að
minnsta kosti 2.000 bfla I mótmæl-
in. Dómsúrskurður, sem lagður
var fram á föstudaginn, og bann-
aði þessar aðgerðir, haföi dregið
kjarkinn úr mörgum.
Mótmælendur höföu gripið til
þessa bragðs i fyrra og hlutust af
hin verstu vandræði. A6 þessu
sinni töfðust menn mest 45 minút-
ur á leið sinni út á flugvöll.
Það er hávaöinn frá concorde-
þotunum, sem mönnunum er
svona mikið i nöp við, en 28. aprfl
á að koma fyrir rétt mál, sem
höfðað hefur verið til prófunar á
þvi, hvort leyfa skuli Convorde
lendingar á Kennedyflugvelli.
Bretum og frökkum, framleið-
endum concorde, er mikiö I húfi,
aö lendingarleyfi fáist fyrir þessa
gerð flugvéla á bandariskum
flugvöllum. Ella þurfa þeir ekki
aö gera sér vonir um að stóru
flugfélögin kaupi Concorde til
farþegaflutninga.
Stjórnin i Washington hefur
haft umsóknir þeirra til meðferð-
ar, og veitti undanþágur til
reynslu til að byrja með. Fyrir
skömmu setti rikisstjórnin þaö á
vald hverju bæjarfélagi fyrir sig
(þar sem (alþjóðlegir flugvellir
eru), hvort Concorde skyldi leyft
að lenda þar eða ekki.
David Owen.utanrikisráöherra breta, i þann mund aö hefja viðræður
við Vorster, forsætisráðherra Suður-Afriku, um málefni Ródesiu.
Vonbetri um
friðsamlega
lausn Ródesíu
David Owen, utan-
rikisráðherra breta,
hefur vakið nýjar vonir i
Ródesiu um að leysa
megi framtiðarmálefni
iandsins með friðsam-
legum hætti og i sátt við
blökkumenn, meirihluta
landsmanna.
En i þeim lýðveldum biökku-
manna, sem hann heimsótti i sið-
ustu viku, voru flestir á þvi, að
það yrði undir þjóðernissinna
skæruliðum komið, hvort takast
mætti að leysa málefni Ródesiu
án blóðsúthellinga.
Þau fimm blökkumannalýð-
veldi, sem landamæri eiga að Ró-
desiu (Botswana, Mozambique,
Angóla, Zambia og Tanzania),
hafa aukið mjög áhrif samtaka
þeirra Mugabe og Nkomo með þvi
að lýsa þvi yfir, að þau liti á þá
sem réttu eftirmenn stjórnar Ians
Smiths og hvitra.
Dr. Owen lét þó eftir sér hafa i
Angóla, að hann yrði, að taka tillit
til skoðana allra þjóðernissinna
Ródesiu, ,,og ég er viss um, að
þærsex milljónirmanna, sem lifa
eiga við nýju stjórnarskrána,
munu vilja láta af sér vita”.
Þjóðernissinnasamtök Mugabe
og Nkomo lýstu þvi yfir á laugar-
daginn, að Bretland hefði engan
hug á að færa blökkumönnum
völdin i Ródesiu i hendur. —
Nkomo sagði i Prag á föstudag-
inn, að ráðstefna sú, sem bretar
hafa stungið upp á, væri enn ein
dauðadæmd tilraun.
Smith og Owen áttu annan fund
á laugardaginn, sem þeir sögðu,
að hefði veitt árangur.