Vísir - 18.04.1977, Qupperneq 23
VISIR Mánudagur 18. aprll 1977
Bjóðum yður: Andlitsböð og húðhreinsun.
Fjarlægjum óæskilegan hárvöxt i andliti.
Litun. Kvöldförðun. Hand og fótsnyrting.
Afsláttur á 3ja skipta andlitsnuddkúrum.
Vinnum úr hinum viðurkenndu frönsku
LANCOME snyrtivörum.
Fegrunarsérfrœðingarnir:
Blómabúðin LILJA
Laugarásvegi 1
'•íl Afskorin blóm og POTTABLÓM i ÚRVALI
-vt Vandaðar gjafavörur
& Urval af Onix vörum
& Stórkostlegt órval af HENGIPOTTUM
Blómaskreytingar við öll tœkifœri
Odýrir blómvendir
Verið velkomin
Opið 10-22 alla daga vikunnar
HÚSBYGGEJNDUR-Einangrunarplast
Afgreiðum einangrunarplast á
Stór-Reykjavikursvæöið frá
mánudegi - föstudags.
Afhendum vöruna á byggingar-
stað, viðskiptamönnum
að kostnaðarlausu.
Hagkvæmt verð
og greiðsluskilmálar
við flestra hæfi
i
Ær Borqarplastlf
Borgaraetl [f»frai 93-7370
kvtfld og helfarslmi 93-73SS
Smurbrouðstofan
BJORNIIMN
Njólsgötu 49 — Simi 15105
PASSAMYNDIR
feknar í litum
tilbúnar strax I
barna &flölskyldu
LJOSMYJVDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
SUMARBUSTAÐIR
Nú er rétti tlminn til þess aö panta
TRYBO sumarbústað fyrir sumarið.
Aðeins 4-6 vikna afgreiöslufrestur.
Allar stærðir og geröir.
Leitiö nánari upplýsinga.
Ástún s.f., 1“;.
''M: :■ Hafnarhvoli v-Tryggvagötu_
TRYBO
VÍSIR
Simi 86611
SiTiumúla 8
Keykjavlk.
Ég óska að gerast áskrifandi
Naín
Heimili
Sveitafélag
Sýsla.
Ánœgð að fó minnis-
varðann í vesturbœinn
Anna hafði samband við blaðið:
bað gladdi mig aö sjá frétt um
það i VIsi að reisa ætti minnis-
varðann um stofnun lýðveldis-
ins við Hótel Sögu. Sjálf bý ég I
vesturbænum og hlakka þvi til
þess þegar minnisvarða Sigur-
jóns verður komiö upp i sumar
eins og talað er um.
Reyndar er ég fylgjandi þvi
að borgin veröi skreytt sem
mest með slikum myndverkum.
Alls staðar þar sem listaverk
eru uppi eru þau til mikillar
prýöi og þau lffga geysilega upp
á umhverfið, gera það hlýlegra
og mannlegra.
Ég geri það oft að fara að
skoða þau myndverk, sem fyrir
eru og þá ekki sist i garðinn
hans Asmundar Sveinssonar
sem mér finnst til sóma og ég
öfunda austurbæinga af honum.
Skemmtilegra að standa upp
Lesandi i vesturbænum hringdi:
Ég var viðstödd fermingarmessu i kirkju i borginni i mánuðinum og varð þá bæði undrandi og fyrir
svolitlum vonbrigðum. Þegar prestarnir og fermingarbörnin gengu inn prúðbúin og falleg gaf með-
hjálparinn okkur kirkjugestum bendingu um að sitja kyrr en standa ekki upp eins og ég hélt að væri
vaninn að gera alltaf þegar fermingarbörn ganga i kirkju.
Með þvi að standa upp finnst mér gestir sýni þessu unga fólki virðingu á þessum stóra degi i lifi þess
og mér finnst að þessum sið eigi að halda. Við stöndum upp við brúðkaup og mér finnst þetta mikill
virðingarvottur við þá sem i hlut eiga.
Fleiri en konur lesa
„kvennablöðin"
Kona hafði samband við blaö-
ið.
Ég hringi aðeins vegna fréttar
á forslðu þar sem fjallaö er um
dönsku blöðin, sem keypt eru
mikið hér á landi eins og
kunnugt er. 1 fréttinni er talað
um kvennablöð. Þetta er ekki
alls kostar rétt, þvi aö margir
karlmennlesa þau. Þar á meðal
get ég sagt frá þvi að maöurinn
minn heklar upp úr þeim.
En af þvi ég er farin aö finna
að þvi sem skrifað er I blaðinu
vil ég lfka segja eitthvaö já-
kvætt. Mér finnast leiöaraskrif
blaðsins vera mjög góö. Og leið-
arinn f dag sem fjallar um Ráð-
stjórnarríkin og stööu Islands i
samstarfi vestrænna rikja er
einstaklega góður.
Sömuleiðis finnst mér Svart-
höfði og greinar Indriða G. Þor-
steinssonar punta mjög upp á
blaðið.