Tíminn - 24.07.1968, Síða 1

Tíminn - 24.07.1968, Síða 1
Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið í síma 12323 Auglýsing í 'nmanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. 7 Síldarútvegsnefnd lætur flytja tunnur og salt á miðin UNÐIRBIÍA Greiða 130 kr. styrk á Ffi síldartunnu flutta í land IGÞ-Reykjavík, þriðjudag. ★ f kvöld barst Timanum fréttatilkynning frá Sfldarútvegs- nefnd, þar sem skýrt er frá því að Sfldarútvegsnefnd hafi sent leiguskip á sfldarmiðin við Sval- barða með sex þúsund tunnur á- samt salti. Skýrir nefndin frá því að hún muni útvega fleiri flutn- ingaskip, vilji menn notfæra sér að koma saltsfldinni í land. Það skip sem nú er á miðunum get- ur flutt 4500 tunnur saltsfldar til baka. ir Þá hefur verið ákveðið að greiða sérstakan styrk til þeirra veiðiskipa og móðurskipa, sem flytja saltaða sfld af fjarlægum miðum til lands. Nemur styrkur- inn 130 krónum á hverja tunnu. ★ Fáar umsóknir bárust á sínum tíma um söltunarleyfi um borð í veiðiskipum, og gerðli flest ir umsækjenda ráð fyrir að flytja saltsfldina til lands um borð í veiðiskipunum. Þrátt fyrir þetta ákvað nefndin að taka flutninga- skip á leigu og bæta síðar við fleiri skipum ef menn kynnu að vilja notfæra sér þessa möguleika. ic Þá hefur verið skipuð nefnd til að hafa yfirumsjón með framkvæmdum flutninganna og er Jón Skaftason, alþingismaður, formaður liennar. Fréttatilkynningin fer hér á eft ir: „Með bréfi Sjávarútvegsmála- ráðuneytisins dags. 10. maí s.l. var Síldarútvegsnefnd falið að annast framkvæmd flutninga á sjósaltaðri sfld svo og framkvæmd annarra þeirra mála, er greinir í bráðabirgðalögum nr. 60 frá 1968 um flutning á sjósaltaðri sfld. Segir í bréfi ráðuneytisins að Síldarútvegsnefnd skuli við framkvæmd málsins fylgja að öllu leyti ákvæðum bráðabirgða- laganna og tillögum 5 manna nefndar, er skipuð var 20. febr- úar s.l. til að gera tillögur um hag nýtingu síldar á fjarlægum mið- um. Dagana 14.—16. júní birti Sfld- arútvegsnefnd orðsendingu í dag- blöðum og útvarpi, þar sem at- hygli útgerðarmanna og annarra hlutaðeigandi aðila var vakin á því, að ógerlegt væri að hefja undirbúning beirra. sem gert var ráð fyrir í bráðabirgðalögunum og tillögum 5 manna nefndarinn- ar, fyrr en fyrir lægju upplýsing- ar um væntanlega þátttöku í sölt- un um borð í skipum. Var jafn- framt auglýst eftir söltunarleyfis- umsóknum og tekið fram að út- gerðarmenn byrftu að tilgreina í umsóknunum. hvort ráðgert væri að láta veiðiskipin sigla sjálf með sfldina til lands <eða hvort óskað væri eftir að sérstök flutninga- skip tækju við sfldinni á miðun- um. Fáar umsóknir bárust um söltunarleyfi um borð í veiðiskip- um og tóku flestir umsækjenda fram, að þeir gerðu ráð fyrir að láta veiðiskipin sigla sjálf með Frambald á bls. 15. ÁSTANDIÐ VERSNAR í HRAÐFRYSTIIDNADI IGÞ-Reykjavík, þriðjudag. ★ Enn vaxa erfiðleikar hrað- frystihúsanna. Miklir söluerfið leikar eru á skreið og saltfiski. Verðlækkun hefur orðið á fisk mörkuðunum og swnkeppni fer harðnandi vegna aukinna ríkis- styrkja til fiskveiða og fisk- verkunar hjá aðalkeppinautum okkar. Kemur fram í fréttatil- kynningu frá SH, að ekki verði hjá því komizt að cndurskoða starfsgrundvöll hraðfrystihús- anna nú þegar vegna breyttra viðhorfa frá þvi snemma á þessu ári, þegar rætt var um þessi mál. ★ Þessar upplýsingar komu fram í skýrslu, sem Björn Hall dórsson, framkvæmdastjóri, flutti á aukafundi SH í dag. Kom fram á fundinum, að ríkis stjórninni hefur verið skýrt frá hinum nýju viðhorfum og standa nú yfir viðræður við hana um þessi mál. Var sam- þykkt að fresta aukafundinum á meðan viðræðurnar stæðu yfir. Fréttatilkynning SH fer hér á eftir: „Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna efndi til aukafundar hinn> 23. júlí 1968 að Hótel Sögu, Reykjavík. Fundarefni voru aubnir erfiðleikar í sölu- og fram- ieiðslumálum hraðfrystihús- anna. Fundarstjóri var kjörinn Jón Áranson alþm., Akranesi og fundarritari Helgi Ingimundar son. Framhald á bls. 14 Fiugvélin á myndinni er eign flugfélagsins Internord og á aðfararnótt s. I. sunnudags var hún hlaSin me5 neyðarhjálparsendingu af skreið til Biafra. Farmurinn er sendur á vegum kirkjusamtaka og nú bíður fiug- vélin færis einhvers staðar á smáeyjunum við Nígeríuströnd til að koma skreiðinni til neyðarflugvalla i Biafra. HORFUR Á SÁTT UM FLUTNINGA NTB-Biafra, þriðjudag. Fulltrúar dciluaðila í hinni blóðugu borgarastyrjöld í Níger- íu gera mi ákveðnar tilraunir til þess að leysa vandamálið um flutning lífsnauðsynja til hinna nauðstöddu flóttamanna í Biafra. Viðræðurnar í Niamey í Niger, sem standa yfir þessa dagana, milli Nígeríumanna og Biafra- manna eru sagðar vera miklu vin samlegri og liklegri til árangurs en viðræðurnar í Kampala voru á sínum tíma. Höfuðvandi sá, sem fulltrúarn- ir reyna nú að leysa, er að finna lausn á flutningavandamálinu, sem líkleg sé til þess að róa Ibo- ættflokkinn. Iboannir óttast að ef haldið verður opinni birgða- flutningaleið um Nigeríu til Bi- afra, muni Sambandsstjórnin nota sér hana til þess að gera Framhald á bls. 14 NTB-Prag og Moskvu, þriðjud. ic Málgagn rússneska kommúnistaflokksins, Isvetsjia sagði í dag, að Rússar hefðu nú hafið umfangsmiklar her- æfingar víðsvegar á vestur- landamærum Sovétrikjanna m.a. nálægt tékknesku landa- mærunum. Talið er að með þessu vilji Sovétstjórnin ógna Tékkum enn frekar og geta með stuttum fyrirvara kallað mikið herlið til Tékkóslóvakíu ef viðræður æðstu manna ríkj- anna fara út um þúfur. if Júgóslavneska frétta- stofan, Tanjug skýrði frá því í dag að framkvæmdanefnd rússneska kommúnistaflokks- ins hefði lagt af stað frá Moskvu til Tékkóslóvakíu í dag. Ekki hefur enn náðst samþykki um hvenær fundirn ir eigi að hefjast og talið er, að undirbúningur fundarins geti staðið í nokkra daga. Tékkneskir ráðamenn undir- búa sig fyrir uppgjörið við Rússa og mun krafa Rússa um að rússneska framkvæmdaráð- ið og tékkneska forsætisnefnd in í miðstjórn kommúnista- flokksins komi saman til fund ar fullskipaður, valda Dubcek aðalritara nokkrum erfiðleik- um, þar eð hann á ekki ó- skorðað fylgi innan forsætis- nefndarinnar. Heræfingar. Isvetsjia, hið opinbera mál- gagn sovézka kommúnista-* flokksins, skýrði frá því í gær, að fjölmennt rússneskt vara- lið, sem kvatt hefði verið út fyrir skömmu, væri nú að her- æfingum á vestur landamær- um Sovétríkjanna á svæði sem nær allt frá Eystrasalti, til Ungverjalands. Heræfingarh- ar fara einnig fram í grennd Framhald á bls. 14.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.