Tíminn - 30.07.1968, Qupperneq 3
A -X '• /“
f, >l\ rf. .-) • ) ;
-> * ’
* ,
ÞRIÐJUDAGUR 30. jólí 1968.
»
Heitur matur allan
sálarhrínginn íKóp
M verður unnt a'ð fá þarna
fast fæði fyrir minni og stærri
hópa og ennfremur mun verða
unnt að fá sendan heim heitan
mat, allan sólarhringinn fyrir
aðeins 20 króna aukagjald inn
an allrar „Stór-ReyikjavÍ!kur.“
Auk matar ver'ður þarna selt
kaffi og kökur, ódýrt smurt
brauð, gosdrykkir o. fl. —
Veitingastað þennan reka bræð
urnir Finnur og Leifur Karls
synir. Hér er um að ræða
þjónustu, sem vaíalaust er að
margir munu not/æra sér, en
næg og góð bílastæði eru við
matstofu þessa.
TK-R ykjavík, mánudag.
Á morgun verður opnuð að
Auðbrekku 43 í Kópavogi ný
matstofa er mun hafa heitan
mat á boðstólum aUan sólar-
hringinn. Bætir hún úr brýnni
þörf fyrir slíka þjónustu í Kópa
vogi.
Matstofa þessi er hin vistleg
asta í rúmgóðum hús’akynnum
og geta þar borðáð um 50
manns samtímis. Á boðstólum'1
verða heitir réttir af ýmsu
tagi og auk þess „grill-réttir“.
Verði er stillt í hóf og munu
grill-réttir t. d. mun ódýrari
þarna en víðast annars staðar.
Kálfatjarnarkirkja
átti 75 ára afmæli
Sunnudaginn 7. þ. m. fór
fram að Kállfatjarnarkirkju 75
ára afmæli kirkjunnar. Hófst
atihöfnin með forspili organista
Guðmundar Gilssonar. Fyrir alt
ari þjónaði sóknarpresturinn,
séra Bragi Friðriksson, og
sikírði eitt barn í messubyrjun.
í stólinn steig svo fiyrrverandi
sóknarprestur, séra Garðar
Þorsteinsson prófastur og þjón
aði svo fyrir altari að aflokinni
prédikun.
Á þessum degi voru teknir
f niotkun nýjdr bekkir, sem lík
uðu mjög vel. Form í Hafnar
firði sá um smiði þeirra og
uppsetningu. Var athöfnin öll
hin ánægjulegasta og mikill
tnannfjöldi var setið svo að í
öllum sætum var setið og að
auki varð allmargt að stanöa.
Margt var f eldri sóknarbörnum
og öðru aðkomufólki, og í mjög
fögru veðri setti þetta allt virðu
legan hátíðasvip á afmælishátíð
ina.
Að messu lokinni var svo
haldið í samkomuhús sveitar
innar og þar var drukki'ð kaffi,
er kvenfélagið Fjóla sá um og
framreiddi af myndarbrag.
Ræður vioru fluttar og sungið.
f tilefni dagsins bárust kirkj
unni blómagjafir og heillaóskir
frá Garðakirkju, Hafnarfjarðar
kirkju og Njarðvíkurkirkju.
Einnig frá einstaklingum.
M bárust kirkjunni peninga
Framhald á bls. 14.
RAMÓNA - NÝ
VEITINCASTOFA
EKH-Reykjavík, mánudag.
Ný matsölu- og kaffistofa,
Ramóna, hefur á morgun starf
semi sína í Kópavogi. Veitinga
stofan er í húsinu nr. 7 við Álf
hólsveg en gengið er inn í hana
frá Reykjanesbraut. Þarna verð
ur opið allan sólarhringinn og
auk þess sem viðskiptavinir
geta setið að snæðingi í rdm
góðum veitingasal verður einn
ig afgreitt út í bíla eftir föng
um.
Eigendur þessa nýja veiting3
staðar eru hjónin Ásdís Hafliða
dóttir og Tómas Tómasson, en
umsjón með matreiðslu hefur
Jón Sigurðsson, matreiðslumað
ur. Ásdís Hafliðadóttir dvaldist
um 22 ára skeið í Bandaríkjun
um og stundaði þar rekstur mat
sölustofa sem einikum fram-
reiddu ítalska, írska og amer-
íska sérrétti og gott kaffi. Ás-
dis kom heim frá Bandaríkjun
um 1963 og hefur unnið hér
á kaffihúsum þar til nú, að
hún ræðst í sjálfstæðan rekst-
ur.
Það mun vera ætlun for-
ráðamanna ,,Ramónu“ að hefja
reksturinn í smáum stíl en
auka hann síðan smátt og smátt
ef vel gengur. Fyrst um sinn
ver'ður á boðstólum tveir heitir
matarréttir í hádeginu, auk
þess verður allan sólarhringinn j
hægt að fá hambórgara, bacon <
og skinku, smurt brauð, kaffi !
og kökur og ýmislegt fleira. j
Gangi reksturinn vel verður í
bætt við fleiri tegundum mat- i
ar og þá væntanlega hinum !
ítölsku og amerísku réttum frú •
Ásdísar. !
Veitingasalur „Ramónu" rúm :
ar 120—125 í sæti en auk þess í
verður afgreitt út i bíla ef ’
viðskiptavinir óska. Starfsfólk .
veitingastofunnar mun vinna '
á þrem vöktum. níu á hvorri
dagvaktinni en eitthvað færri j
á næturvaktinni. Veitingastofan
,,Ramóna“ verður einnig leigð
til fundarhalda og samkvæmis-
halds.
Ekki er að efa að margir
muni notfæra sér þjónustu
,.Ramónu“ á næstunni. þar eð
iUmögulegt hefur verið að fá
nokkuð i svanginn, a. m. k.
ekki heitan mat eftir kl. tíu
á kvöldin í Reykjavík og ná-
grenni.
TÍMINN
3
Yfirlitskort af landbúnaðar-
Þetta yfirlitskort sýnir vel hve yfirgripsmikil landbúnaðarsýningin, sem haldin verður 9. til 18.
ágúst, er. f sjálfri sýningahöllinni sýna yfir 50 stofnanir og fyrirtæki. Úti verða sýnd dýr margs
konar og jurtir, vélar, skemmur og verkfæri. Eftirfarandi skrá sýnir að nokkru hve fjölbreytt úti-
sýningin er:
101 Vélakynning
102 Hekla hf.
103 Þór hf
104 SÍS — Véladeild
105 Dráttarvélar hf.
106 Hamar hf.
107 Globus hf.
108 Hreindýr
109 íslenzkir hundar
110 Refir
111 Áhorfendur
112 Dómhringur og hlaupa-
braut
113 Rétt
114Gripahús — Hross og sauðfé
115 Gripahús — Hænsni og
svin
116 Gripahús — Nautgripir
117 Rétt
118 Búnaðarfélag íslanös
119 Guðbjörn Guðjónsson,
heildverzlun, KFK-fóður-
vörur
120 Héðinn hf., vélsmiðja
121 S'ölufélag garðyrkjumanna
122 SÍS-Innflutningsdeild
123 Félag skrúðgarðyrkjuverk-
taka
124 Laxalón
125 Garðyrkjufélag íslands
126 Skógrækt ríkisins
127 Rannsóknastofnun landhún-
aðarins
128 Veðurstofa íslands
129 Bifreiðar- og landbúnaðar-
vélar hf.
130 J. Þorláksson & Norð-
mann h. f.
131 Jón Loftsson hf.
132 Breiðfjörðs blikksmiðja
133 Landssmiðjan
184 Mjólkurfélag Reykjavlkur
Skipbrotsmenn af Sæfaxa
Á myndinni sjást fjórir skip-
verjanna af Sasfaxa við komuna
til Vestmannaeyja um kl. 5
sl. laugardagsmorgun. Eins og
kunnugt er sökk Sæfaxi NK út
af Alviðruhömrum s. 1. föstudags
kvöld eftir að Mjölnir GK hafði
siglt á borðstokk bátsins. Mjölnir
kom með skipbrotsmennina til
Eyja og lengst til vinstri sézt í
gúmmíbátinn sem mennirnir
björguðust á.
Við sjópróf í Vestmannaeyjum
kom í ljós að Mjölnir var með bil-
aðan radar þegar hann sigldi á
Sæfaxa í svarta þoku. í blaðinu í
gær var sagt að annar gúmmíbát-
anna af Sæfaxa hefði ekki blásist
upp. Það var ekki rétt, þar sem
skipstjóri mun hafa gefið skipun
um það á síðustu stundu að blása
ekki nema annan bátinn upp, þar
eð hinn nægði. Við athugun sást
að aðeins vantaði lokaátakið til
þess að báturinn blésist út. Voru
báðir bátarnir því í fullkomnu
lagi.