Tíminn - 30.07.1968, Side 11
11
ÞRIÐJUDAGUR 30. júlí 1968.
TÍMINN
Páll Eggert Ólafsson byrjaði
ungur að vinna á Landsbó'ka-
safninu. Það var í tíð Jóns
Jaoobssonar landsbókavarð'ar.
Jlón sá strax hver daignaðar-
og afkastamaður Páll var við
st'örf sán og bauð honum nokkr
um sinnum til drykkju með
sér, en Páll var tregur til að
drekka með yfirmanni sínum.
Lo'ks lét Páil þó til leiðast.
Þegar áhrifin fóru að segja
til sín, segir Páll — Þú ert
'gáfaðasti maður, sem ég hef
talað við, Jón Jacobsson.
Til að launa Páli lofið, segir
Jóo. — Og þú ert fallegasti
unglingur, sem ég hef drukkið
með.
Svofhl'jóðandi tilkynming birt
ist í blöðunum á Siglufirði:
Þar sem maðkar hafa fund-
izt í sveskjium og öðrum áivöxt
Y>>.
um, bannar heilbrigðisnefnin
sölu á sves'kjum og öðrum
ávöxtum, sem maðkar hafa
fundizt í, nema undir eftirliti
heilibrigðisfulltrúa. — Siglu-
firði 8. marz 1947. — Heiil-
brigðisnefmdin.
í Sniæfellskirkju í Öræfum
ætluðu hjón að vera til altaris.
Við þá athöfn varð koman eitt-
hvað síð'búnari að gráitunum
en bóndi hennar, sem hét Jón.
Konunni varð mikið niðri
fyrir við þetta og sagði svo
hátt, að hljóðbœrt varð um
kirkjuna:
— Fjandi er að vita þetta!
— Jón er fallinn fram, og
hér stend ég.
Úr afmælisgrein um roskinm
mann:
— Fáir skrifa svo forkunnar-
fagra hönd sem hann. Hver
stafur er eins og sjálfstæð
persóna í sunnudagafötunum á
leið til kirk'ju.
FLÉTTUR
OGMÁT
Á meistaramóti New York-
fylkis 1910 kom upp eftirfar-
andi staða í skák Capablanca
og C. Jafife. Capablanca hefur
hvítt og hótar máti í hverjum
leik.
Leibnir höfðu verið 16 leik-
ir og í 17. leik lék hvítur
Hxe6! sem svartur svaraði
með E£6. Hvítur lék í 18. leik
Re5! og svartur f5. Nú kom
19. Bxh6t — KxB og 20. RxP
gefið.
Krossgáta
Nr. 81
Lóðrétt: 1 Löggjafarsam-
koma 2 Tónn 3 f uppnámi
4 Bjartur 6 Skrár 8 Fiska
10 Smáu 12 Skrökvuðu 15
Ambátt 18 1500,00.
Ráðning á gátu no. 80.
Lárétt: 1 Úthafi 5 Agin 7
Rá 9 Nasl 11 Eta 13 Sto
14 Kurf 16 Ös 17 Alins 19
Ámálgi.
Lárétt: 1 Loka 5 flát 7 Þíð jörð Lóðrétt: 1 Útreka 2 Ha? 3
9 Lokki 11 Vond 13 Súð 14 Tæp Agn 4 Fnas 6 Klossi 8 Átu
16 Tveir eins. 17 Aldraða 19 10 Stömg 12 Aram 15 Flá
Húsdýr. 18 II.
Barbara McCórquedale
42
Lou hafði setzt á rúmið. Alloa
gekk yfir herbergið og stóð við
hliðina á henni.
— Er það nokkuð, sem þú vilt?
spurði hún.
— Það er heilmargt, svaraði
Lou. — Mest af öllu vildi ég
vera komin til New York og það
á þessari stundu. En þar sem ég
hef ekki töfrateppi til að bera
mig þangað, þá geri ég ráð fyrir,
að ég verði að fara í þessa hræði-
legu heimsókn.
— Áttu við kastalann? spurði
Alloa.
— Hvað annað skyldi ég eiga
við? spurði Lou. — Mér verður
illt við tilhugsunina, eins og ég
hlakkaði til þess.
Það var eitthvað sorglegt og
fremur barnalegt við vonbrigði
hennar.
— Hann getur verið miklu betri
en þú býzt við, sagði Alloa. —
Hann er vingjarnlegur á svipinn.
— Ég geri ráð fyrir, að ég sé
kjáni, sagði Lou, en ég var í raun
inni byrjuð að trúa mömmu. Ég
hafði hugsað mér hann hávaxinn,
dökkhærðan og vel vaxinn, eins
og þessa Frakka, sem þú sérð
í kvikmyndum. Ég lá vakandi í
gærkvöldi og hugsaði méi hann
veita mér ástaratlot í litla bak-
herberginu, sem var allt tjaldað
bleiku silki. Manstu ekki eftir því?
Ég hugsaði um okkur dansa sam-
an í danssalnum og ég var með
stóra kórónu og hann hvíslaði í
eyra mér, hvað hann elskaði mig
heitt. Ég var orðin ástfangin af
honum, að sjálfsögðu manninum,
sem ég hafði gert mér í hugar-
lund, en ekki þessum veiklaða
manni þarna í dagblaðinu.
— Þú hefur e.t.v. búizt við of
miklu, sagði Alloa.
— Hvað áttu við? spurði Lou.
— Ég held, að enginn geti öðl-
azt allt í lífinu. Ef fólk er mjög
auðugt, þá á það oft við einhverja
erfiðleika að stríða, eins og t.d.
blindu eða heilsuleysi, sem vega
upp á móti auðæfunum. Ef ein-
hver finnur t.d. einhvern, sem
honum finnst mjög aðlandi, þá
er hann e.t.v. fátækur eða eitt-
hvað annað.
Hún var að hugsa um Dix og
óskaði sér af öllu hjarta, ekki að
hann væri ríkur. heldur heiðar-
legur.
— Ég skil, hvað þú átt við,
sagði Lou. — Áttu við, að ég sé
ágjörn og gráðug?
— Ertu það ekki? spurði Alloa.
— Þú átt svo mikið sjálf, að þú
getur ekki búizt við að fá það
allt og svo himnaríki í kaupbæti.
Það, sem ég á við er, að það
væri ólíklegt, að hann væri svo
líka hertogi.
Hún horfðist í augu við Lou
um leið og hún sagði þetta, og
þær vissu, að þær voru báðar að
hugsa um sama hlutinn. Steve
Weston var ungur, laglegur og
afskaplega ástfanginn af henni,
en hann var ekki auðugur og held
ur ekki nertogi.
Lou stóð upp, gekk yfir að
snyrtiborðinu og settist niður.
— Heldurðu, að hús, hversu fal-
legt sem það er, geti nokkurn
tímann verið nóg? spurði hún.
— Nei, auðvitað ekki, sagði
Alloa.
Lou íorfði lengi á sjálfa sig
í speglinum og síðan sagði hún
með yfirborðs kæruleysi: — Það
er enginn skaði skeður, þó ég
fari og líti á hann. Við skulum
sjá, hvað morgundagurinn ber í
skauti sínu.
Alloa heyrði á rödd hennar.
að einlægnin var horfin. Lou hafði
ákveðið að leika þennan leik eft-
ir eigin höfði. Hún vonaði enn
innst inni, að hún gæti fengið sig
til að giftast hertoganum og öðl-
ast þannig titil og Pougy kastal-
ann. Alloa vissi, að hún gat ekk-
ert fleira lagt til málanna.
— Má ég fara? spurði hún. —
Ég þarf að skrifa nokkur bréf.
Ef móðir þín þarf á mér að halda,
viltu þá biðja hana að hringja?
— Eg skal segja henni það, þeg
ar ég hitti hana. sagði Lou.
Alloa fór aftur inn í herberg-
ið sitt. Hún setti bréfin til frú
Derange á skrifborðið og opnaði
skúffuna til að leita að pappír.
Þá sá hún bréfið frá Steve, sem
hún hafði fengið á Claridge hó-
telinu.
Hún tók það úr umslaginu og
las það aftur. Síðan leit hún á
heimilisfangið og símanúmerið,
sem var skrifað efst á blaðið.
Ætti hún að hafa samband við
hann? Hugmyndinni skaut upp í
huga hennar, en hún varð skelfd
við tilhugsunina um að skipta sér
af þessu. Ef hún skrifaði honum
nú og svo yrði það allt til einskis?
Setjum svo, að Lou ákvæði, þeg-
ar hún sæti hertogann, að það
væri þess virði að giftast hon-
um til þess að öðlast öll þau for-
réttindi, sem hann gæti veitt
henni? Hún elskaði hann ekki og
mundi aldrei gera og Steve gæti
veitt henni svo miklu meira en
hertoginn, ef hún aðeins gæti
skilið það.
— Ég má ekki blanda mér í
þetta, sagði Alloa hátt við sjálfa
sig, og þó var hún sannfærð um,
að það væri stórkostlegt rækifæri
fyrir Steve að koma sínum mál-
ii-m frnm #vf Lnnn a?fpin« Vflprí hér.
ið við, þegar hún sá myndina af
hertoganum.
— Ég kem með fyrstu flugvél,
sagði Steve Weston.
— Heldurðu það? Ég. . .ég á
við. . . .það er ekki víst, að ég
hefði átt að láta þig vita, en
mér fannst bara.. . .
— Hafðu ekki áhyggjur af því,
greip hann fram í fyrir henni.
— Það var dýrlegt, að þú skyldir
láta mig vita. Segðu Lou ekki frá
þessu. Eg ætla að koma henni á
óvart.
— Við verðum í Pougy. . . .
byrjaði Alloa, en varð þess þá
vör, að það var enginn á línunni.
Jæja, hugsaði hún með sér.
Honum yrði sagt, þegar hann
kæmi á hótelið, hvar þær væri
að finna. Henni varð illt við til-
hugsunina um, hvort hún hefði
ÚTVARPIÐ
Þriðjudagur 30. júlí
7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádeg
isútvarp,
13.00 Við
vinnuna:
Tónleilkar. 14.40 Við, sem heima
sitjum. Inga Blandon les söguna:
„Einn dag rís sólin hæst“ eftir
Rumer Godden í þýðingu Sigur-
laugar Björnsdóttur (22). 15.00
Miðdegisútvarp. 16.15 Veðurfregn
ir. Ópecrutónlist. 17.00 Fréttir.
Tónlist eftir Carl Nielsen. 17.45
Lestrarstund fyrir Utlu börnin.
18.00 Lög úr kvikmyndum. 18.45
Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsims.
Fréttir. Tilk. 19.30 Daglegt mál.
Tryggvi Gíslason magister flytur
þáttinn. 19.35 Þáttur um atvinnu
mál. Eggert Jónsson hagfræðing
ur flytur. 19.55 Frá Vestur-íslend
I DAG
Var sanngjarnt, að hann hefði
ekki tækifæri til að standa fyrir
máli sínu? Hvaða stund gat ver-;
ið ákjósaniegri en sú, þegar Lou
hafði orðið fyrir vonbrigðum með
eða hafð' jafnve) óbeit á þeim
manni, sem hún hafði ætlað að
giftast í svo mikilli fljótfærni?
— Hún getur ekki gert það,
hún getur það ekki, sagði Alloa.
Henni varð skyndilega hugsað
til Lou, bundinni eins og hún
hafði sjálf sagt, við hjólastól. Hún
yrði óhamingjusöm og óhjákvæmi
lega mundi hún einnig valda her-
toganum óhamingju. Hvorki pen-
ingar né titill gátu bætt fyrir
vonleysislíf tveggja mannivera,
sem átti ekkert sameiginlegt nema
græðgi á því, sem hitt átti.
Alloa stökk á fætur Hún gekk
yfir í herbergið og tók upp sím-
ann. Hún hafði heyrt að síma-
þjónustan í Bandaríkjunum væri
góð, en hún gerði sér engar gylli-
vonir í sambandi við frönsku sím-
þjónustuna. Hún varð þess vegna
undrandi, þegar hún heyrði sím-
ann hringja tuttugu mínútum síð-
ar og henni var tjáð. að hún
hefði samband við New York.
Hún hafði beðið um Steve og
fáum sekúndum seinna var henni
tilkynnt, að hann væri í símanum.
— Er oetta Steve Weston?
— Halló- Hver er þetta?
— Þetta er Alloa Derange.
— Nei, halló. Hvaðan hringir
þú?
— Frá Biarritz.
— Er allt í lagi með Lou? Vill
hún hitta mig? í
— Hún veit ekk. að ég hringdi f
í big. sagði Alloa — En mér
fannst ég yrði að segja þér hvað |
hefur gerzt.
Alloa talaði hratt, því hún vissi, 11
hve símtalið yrði fljótt að verða g
dýrt, og sagði honum, hvað gerzt fj
hafði og hvernig Lou hafði orð- ■
ingum. Ljóð. lög, söngur og hljóð
færalelkur 20.20 Hin nýja Afr-
íka: Leiðin til menntunar Bald-
ur Guðlaugsson sér um þáttinn.
Lesari ásamt honum er Arnfinn
ur Jónsson (HI) 20.40 Lög unga
fólksms. Gerður Bjarklind kynn
ir. 21.30 Útvarpssagan: „Vornótt'
eftir Terjei Vesaas. Þýðandi Páll
H. Jónsson Heimir Pálsson stud.
mag. les — sögulok. 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. 22.15 Sónata nr.
5 í c-dúr eftir B Galuppi 22.30
Á hljóðbergi Karen Blixen og
Bodil Ipsen lesa upp. 23.05 Frétt
ir í stuttu máli. Dagskrárlok.
Á morgun
Miðvikudagur 31. iúlí.
7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádeg
isútvarp. 13.00 Við vinnuna: Tón-
leikar.
14.40 Við,
sem heima
sitjum Inga Blandon les söguna:
„Einn dag rís sólin hæst“ eftir
Rumer Godden (23). 15.00 Mið
degisútvarp 16.15 Veðurfregnir.
íslenzk tónlist. 17.00 Fréttir. Tón
iist eftir Chophin 17.45 Lestrar
stund fyrir litlu börnin. 18,00
Danshljómsveitir leika Tilk. 18.
45 Veðurfregnir Dagskrá kvölds
ins 19.00 Fréttir 19.30 Daglegt
mál Tryggvi Gislason magister
flytur þáttinn 19.35 Ólafur Briem
timburmeistari á Grund. Séra
Berijamin Kristjánsson flytur er.
indi (HI) 20.05 Sónata nr. 1 f G-
dúr fyrir tvær fiðlur eftir Eug
en Ysaye 20.30 Þjóðhátíðarvaka
Árni Johnsen tók saman. 21.45
Bolero eftir Mauriee Ravel 22.00
Fréttii o? 'eðurtregnir 22.15
Kvöldsagan: Víðsjár á vesturslóð
um Kristinn Reyr [es (5). 22.53
Djassþáttur. Ólafur Stephensen
kynnir. 23.05 Fréttlr í stuttu
rnáli. Dagskrárlok.