Tíminn - 30.07.1968, Qupperneq 12
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 30. júlí 1968.
Unglingameistaramótið á Akureyri um s.l. helgi:
Mikil þáttaka í mótinu og á-
gætur árangur í sumum greinum
12_______________________________
NIXON
Framhald al bls- 9.
af ástæé'unum er eflaust það ó-
lán hans, að hann skyldi leita
sér stjórnmálaframa á því
sviði, sem skrúð Kennedy-goð-
sagnarinnar setti sinn svip á.
Manntahestar klíkunnar litu á
hann og dæmdu hann umsvifa-
laust villimann. Svo virtist
sem þjóðarsálin krefðist töfra
manns og einhver varð að fara
með hlutverk hins reiðilega
ribbalda.
í bókum, sem skrifaðar hafa
verið um tímabil Kennedys,
svo sem „Þúsund dagar“ eftir
Arthus Silesinger og „The ma
kin of a President“ eftir Theo-
dore White, er sagt að Kenne
dy hafi litið verulega niður á
Nixon og haft á honum „gam-
ansama fyrirlitningu. „Hann
er gersamlega smekklaus" á
Kennedy að hafa sagt.
Nixon galt verulega hinnar
nýju stéttavitundar, sem vart
varð í Bandaríkjunum. Margir
þeirra fréttamanna tímarita
og blaðamanna við dagblöðin,
sem fylgdust með kosningabar
áttu um þetta leyti, voru á-
fram um að komast upp úr
miðstéttarveröldinni, sem Nix-
on hrærðist í og inn í þann
fágaða heim, sem Kennedy virt
ist fulltrúi fyrir.
RÉTTARHÖLD
Framhald af bls. 7.
legt vitni í okkar skilningi, því
umbeðinn af dómforseta, tók
hann til við að „sálgreina" á-
kærða. Var spurður, hvort hann
áliti Jóni Jónssyni hiætt við að
skrökva, hvort hann áliti af
framkomu hans, að honum væri
hættara við en öðrum að um
gangast peninga frjálslega,
hvort hann teldi Jón Jónsson
vel innréttaðan til að vinna
með öðrum og svo framvegis.
Allt þetta gerði „trúnaðarmað
urinn“ með kurt og pí, enda
nokkuð í húfi að finna Jóni
Jónssyni nokkuð til foráttu, því
að hann („trúnaðarmaðurinin")
var jú sá, sem ákærði hafði
átt að njóta handleiðslu hjá
á vinnustað og þess ber að geta
að um þetta hlutverk sitt fékk
hann óþvegna áminningu frá
dómara. En þegar á leið, fór
„trúnaðarmaðurinn" að tvístíga,
því að í raun hafði hann ekki
nema gott eitt af ákærða að
segja. Að vísu taldi hann Jón
Jónsson heldur latan og kæru-
lausan, án þess að færa nánari
rök að því, og eftir langa um-
hugsun varðandi „skrökhæfi-
leika“ ákærða, mundi hann eft
ir því, að einu sinni hafði á-
kærði farið brott úr vinnu án
leyfis og sagt á eftir, að hann
hefði þurft að hitta konuna
sína. Þetta staðfesti raunar á-
kærði á eftir. Hann hafði nefni
trOlofunarhringar
Fljót afgreiSsla
Sendum gegn póstkrefu.
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiður
Bankastræti 12.
lega verið kallaður til vitnis
út af einhverju peningaklandri,
sem kona hans hafði lent í, og
sagt sannleikann að því marki.
Hinu vildi hann leyna fyrir
vinnufélögum sínum, að konan
hans hefði lent í þessu klandri.
Allan tímann sem „trúnaðar-
maðurinn“ talaði, sat ákærði ró
legur í stúku sinni, utan einu
sinni, er „trúnaðarmaðurinn"
fór að tala um letina. Þá lang
aði Jón Jónsson að standa á
fætur og fékk raunar tækifæri
til þess í lok réttarhaldsins, er
hann fékk kost á að segja síð-
asta orð. Þá hljóp Jóni Jónssyni
kapp í kinn og hann sneri vörn
í sókn. Sagði, að ef hann hefði
ekki haft rétt handtök í vinn-
unni væri það sök „trúnaðar-
mannsins, sem þar hefði brugð-
izt handleiðsluskyldu sinni. Og
nú byrjaði „trúnaðarmaðurinn"
að naga neglurnar og ég að
velta fyrir mér, að e. t. v. væri
Jóni Jónssyni engin þörf á verj
anda, svo vel, sem honum nú
mæltist. (Gagnrýni nr. 3: ís-
lenzkir dómarar telja sér bæði
rétt og skylt að vera „passívir"
eða „hlutlausir“, þótt það sé
ekki alveg rétta þýðingin, í
réttarhöldum, og leitast við
að finna hinn „objektiva" eða
„hlutlæga" sannleika málsins og
það án þess að pína ákærða
verulega. íslenzkur dómari
myndi ekki halda því fram við
ákærða, að „viðreisnarstjórnin"
væri góð stjórn og hann hefði
gert henni ljótan grikk með
því að gefa út innstæðulausan
tékka. Hvort tveggja má rétt
vera, en íslenzkur dómari tel-
ur það ekki sitt hlutverk, að
blanda Bjarna Ben. eða Gylfa
Þ. í sérhvert tékkamál. Ég
lét í ljós undrun mína á hinu
mikla „aktíviteti" eða „ásókn“
(ég vil ekki segja hlutdrægni)
hinna a-þýzku dómara, sem
mér finndust einna líkastir
prédikurum í stól og sagði
svona í leiðinni, að t. d. í
hjónaskilnaðarmálum á íslandi,
létum við prestunum það hlut-
verk eftir. Svarið var bara
góðlátlegt bros og þá fann ég
til þess allt í einu, að e. t. v.
væru prestar nauðsynlegir, og
af því þeir væru svo lítt skrif
aðir í „systeminu“, tækju dóm
arar hlutverk þeirra líka, þar
í landi. Var þá hér aðeins stigs
munur en ekki eðlis- og við sam
mála eftir allt?).
Öllu þessu var ég að velta
fyrir mér, er hátalara var beint
að mér og ég beðinn að segja
útvarpshlustendum álit mitt
á réttarhaldinu. Úr svipnum
mátti lesa, að hér hefði vel
tekizt til og það var eins og
þeir vildu segja strax: „Var
þetta ekki gott hjá okkur?“ Vel
má vera, að þetta hafi verið
gott hjá þeim, en ég var svo
upptekinn af samanburði, að
ég þagði, enda nógu oft búinn
að gefa yfirlýsingar í útvarp
ið þeirra!
Eg gekk fram á ganginn og
ætlaði að reyna að ná í Jón
Jónsson. En þegar ég sá hann
leiða ungu konuna sína út í
sólskinið og halda fast í hönd
hennar, hætti ég við. Ósjálfrátt
kom sú ósk upp í huga minn,
að Jón Jónsson hefði aldrei
þurft að gefa út ávísunina til
þess að gefa svo börnum sín-
um brauð, en um leið greip
mig sú tilfinning, að nefndur
Jón myndi aldrei framar gefa
út innstæðulausaxi tékka. ekki
endilega vegna refsingarinnar.
sem hann átti yfir höfði sér,
heldur miklu fremur vegna
reynslunnar í réttarsalnum. Ef
til vill væri þetta árangursrík
ari leið, þegar öllu væri á
botninn hvolft, og ég sá mig
í anda prédika gæði „viðreisn
ar“ yfir sakaraðilum og vitnum
heima á íslandi. . .
Unglingameistarainót fslands í
frjálsíþróttum var háð á Akur-
eyri inn helgina. Þátttaka var
mjög mikil og náðist yfirleitt
ágætur árangur í hinum ýmsu
greinum. Frjálsíþróttaráð Akur-
eyrar sá um framkvæmd mótsins
og var hún til fyrirmyndar. f
mótsstjórn áttu sæti þeir Her-
mann Sigtryggsson, Hreiðar Jóns-
son og Ingimar Jónsson.
Hér koma helztu úrslit:
110 m. grindahlaup:
Páll Da-gbjartsson HSÞ 17,1
Hróðmar Helgason Á 17,5
Halldór Jónsson IBA 17,9
Kúluvarp:
Páll Dagbjartsson HSÞ 13,91
Guðni Sigfússon, Á 11,88
Halldór Valdimarsson HSÞ 11,38
Hástökk:
Elías Sveinsson, ÍR 1,80
Halldór Matthíasson ÍBA 1,80
Páll Dagbjartsson HSÞ 1,75
100 m. hlaup:
Guðm. Guðmunds. UMSS 11,9
Sigþór Guðmundsson Á 11,9
Jón Benónýsson HSÞ 12,0
Bragi Stefánsson, HSÞ 12,1
(Þess má geta, að bæði Sigþór
og Guðmundur náðu betri tima
í undanrásum, eða 11,6 sek.).
1500 m. hlaup:
Olafur Þorsteinsson KR 4:21,1
Sigvaldi Júlíusson UMSE 4:22,6
Rúnar Ragnarsson UMSE 4:24,0
Spjótkast:
Stefán Jóhannsso.n Á 46,53
Halldór Valdemarsson HSÞ 46,19
Halldór Matthíasson ÍBA 44,64
400 m. hlaup:
Ólafur Þorsteinsson KR 53,3
Jóhann Friðgeirsson UMSE 53,3
Haukur Sveinsson KR 53,5
Langstökk:
Jón Benónýsson HSÞ 6,03
Hróðmar Helgasoin Á 6,00
Stefán Hallgrimsson ÚÍA 5,91
Ólafur Þorsteinsson, KR, varS
sigursæll á unglingameistaramótinu.
4x100 m. boðhlaup:
1. Sveit Ármanns 47,1
(Ágúst Þórhallsson,
Riúdolf Adolfsson, Stefán
Jóhannsson, Sigíþ’ór
Guðmundssón).
2. -3. Sveit UMSE 47,7
(Gísli Pálsson, Gunnar Jóns
son, Aitli Friðbjörnsson,
Jóhann Friðgeirsson)).
2.-3. Sveit KR _ 47,7
(Magnús Þórðarson, Ólafur
Þorsteinsson, Bjarni Stef-
ánsson, Haukur Sveinsson).
Stangarstökk:
Guðm. Guðmundsson UMSS 3,00
Ásgeir Daníelsson HSÞ 3,00
Kringlukast:
Páll Dagbjartsson HSÞ 38,80
Guðni Sigfússon Á 32,34
Stefán Jóhannsson Á 32,24
400 m. grindahlaup:
Jóihann Friðgeirsson UMSE 62,8
2.—3. Rúdólf Adólfsson Á 63,5
2.—3. Jón Benónýsson HSÞ 63,5
200 m. hlaup:
Bjarni Stefánsson, KR 24,8
Guðm. Guðmundsson UMSE 25,1
Sigþór Guðmundsson Á 25,2
800 m. hlaup:
Ólafur Þorsteinsson KR 2:06,1
Sigvaldi Júlíusson UMSE 2:08,8
Pétur Böðvansson, ÍR 2:10,1
Sleggjukast:
Magnús Þórðarson, KR 33,25
Stefán Jðhannsson, Á 30,83
Rúnar Sigfússon, Á 39,78
Þrístökk:
Stefán Hallgrímsson ÚÍA 13,02
Bjarni Guðmundsson USVH 12,96
Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR 12,68
3000 m. hlaup:
Rúnar Raginarsson UMSB 10:21,0
Pétur Böðvarsson ÍR
hætti keppni.
1000 m. boðhlaup:
1. Sveit KR 2:09,9
2. Sveit HSÞ 2:10,5
3. Sveit Ármanns 2:14,3
Mótsslit fóru fram að Hótel
KEA í kaffiboði, sem ÍBA hélt
keppendum og starfsmönnum
mótsins. Form. ÍBA, Hermann
St'efánsson sleit mótinu.
Skoruðu 5 mörk
á 5 mínútum
Áí-Akureyri.
B-lið Akureyrar sigraði FH í
óvenjulegum leik í Bikarkeppni
KSÍ í gærkvöldi. Þegar 17 mín
útur voru til leiksloka, var staðan
2:0 FH í vil. En á síðustu 17 mín-
útunum sneru Akureyringar tafl
inu hressilega við og skoruðu
hvorki meira né minna en 5 mörk
í röð og lauk leiknum 5:2 þeim í
vil. Mesta þáttinn í sigri Akur-
eyrar átti gamla kempan, Haukur
Jakobsson.
Leikur KR og Vestmannaeyja ákveðinn 6. ágúsh
Fresturinn kemur
sér vei fyrir KR
Alf.—Reykjavík. — Ekki
gat orSið úr leik KR og
Vestmannaeyinga, sem
fram átti að fara á Laugar
dalsvellinum á sunnudag-
inn, því að ekki var flogið
frá Eyjum. Er þetta í
fjórða sinn, sem fresta
hefur orðið leik, sem
Vestmannaeyingar eru að-
ilar að.
Íþróttasíðan sneri sér til
Árna Njáíssonar, framkvæmda
stjóra KSÍ, og spurðist fyrir
um það, hvenær leikurinn yrði
„settur á“. Sagði Ároi að leik-
urinn myndi fara fram 6. ág.
n.k. Ekki hefði verið tök á að
„setja leiikinn á“ fyrr.
Má segja, að frestuirinn komi
sér vel fyrir KR, sem er með
sinn aðalmann, Þórólf Beck, á
sjúkralista um þessar mundir,
en vel má vera, að Þórólfur
verði orðinn góður fyrir 6. ág.
BÞB.