Tíminn - 30.07.1968, Qupperneq 15
15
KRTOJUDAGUR 30. júK 1968.
SKREIÐIN
Framhald af bls. 16
væri komin til Ferando Po yrði
gefin út um það opinber tilkynn
ing. Einnig sagði Ólafur, að Al-
þjóða Rauði krossinn yki nú að
miklum mun „birgðasmygl" sitt
með flugvélum til Biafra. Hefði
Rauði krossinn í huga að leigja
eða jafnvel kaupa stórar sviss-
neskar flugvélar til hinna
hættulegu en lífsnauðsynlegu
flugferða, sem farnar eru að
næturlagi frá Fernando Po inn
yfir Nígeríu og til neyðarflug-
valla í Biafra.
RÆÐA ÖRLÖG
Framhald af bls. 1
nesku ráðamannanna er smábær-
inn Cierna-Nad-Tisou, þar búa að-
eins 2.500 manns, aðeins tvo og
hálfan kílómetra ' frá rússnesku
landamærunum. Sendisveitin frá
Tékkóslóvakíu er alls skipuð 16
mönnum en rússneska sveitin 13
æðstu ráðamönnum í Sovétríkjun-
um. Rússneska framkvæmdaráðið,
sem skipað er 11 meðlimum, kom
til Cierna-Nad-Tisou í rússneskri
járnbrautarlest og var í fyrstu
álitið, að viðræðurnar færu fram
í lestinni, þar sem hún er á járn-
brautarstöð bæjarins. Síðari fregn
ir herma hins vegar, að viðræðurn
ar fari að öllum líkindum fram
í kvikmyndahúsi bæjarins, enda er
það sennilegra, þar sem í för með
samninganefndunum er fjöldi ráð-
gjafa og sérfræðinga í ýmsum
málum.
Þátttaka Ludviks Svoboda, for-
seta Tékka, í viðræðunum þykir |
benda til þess að umræðurnar
muni að miklu leyti snúast um
hermál, en Svoboda er þrautreynd
ur hershöfðingi úr seinni heims-
styrjöldinni og mjög virtur í Sovét
ríkjunum.
Miklar öryggisráðstafanir voru
gerðar í sambandi við fundinn í
dag. Fjölmennt herlið er á járn-
brautarstöðinni og í bænum og
sovézkar þyrlur hafa sézt á sveimi
yfir fundarstaðnum. Fréttamönn-
um er haldið í margra kílómetra
fjarlægð frá fundarstaðnum og
ekki er talið líklegt, að neitt frétt
ist af gangi og efni viðræðnanna
fyrr en í nótt, en þá er búizt við
sameiginlegri yfirlýsingu.
Haft er eftir áreiðanlegum heim
ildum í Prag, að litið sé á við-
ræðurnar í Cierna-Nad-Tisou sem
undirbúningsviðræður Náist um-
ræðugrundvöllur á fundinum, geti
svo farið, að sendinefndirnar fari
til einhvers annars bæjar í nánd
við Cierna, þar sem aðstaða er til
þess að koma fyrir stærri sendi-
nefndum frá hvoru landanna. Tal-
ið er að þá geti fundarmennirnir
skipt hundruðum.
Aður en tékkneska sendisveitin
TÍMINN
hélt til fundarstaðarins á sunnu-
dag sagði forseti þjóðþingsins,
Josef Smrkovsky. í blaðaviðtali,
að prentfrelsi heyrði undir grund-
vallarmannréttindi og Tékkar
myndu ekki afnema það. Dubcek,
aðalritari tékkneska kommúnista-
flokksins, hélt skeleggt útvarps-
ávarp til þjóðar sinnar s. 1. laug-
ardag, þar sem hann sagði, að
stefna hans hefði hlotið einróma
samþykki þjóðarinnar og hann
hefði ekki í huga að hvika neitt
frá henni. Átti Dubcek þar við
þann mikla fjölda fólks, sem stað-
ið hefur í biðröðum í Prag til
þess að fá að undirrita yfirlýsing-
ar, þar sem lýst er yfir stuðningi
við núverandi stefnu. Á sunnudag
höfðu um 850 þús. manns í Prag
undirritað slíkar yfirlýsingar. Skoð
anakönnun sem gerð var í fyrri
viku, sýndi einnig, að 90% tékk-
nesku þjóðarinnar er fylgjandi
breytingú stjórnarhátta í Tékkó-
slóvakíu í lýðræðisátt.
Rússneska fréttastofan Tass rauf
í dag hina löngu þögn sína um
fyrirhugaðar samningaviðræður
Tékka og Sovétmanna. Skýrði
Tass frá því, að viðræðurnar væru
hafnar, hvar þær færu fram og
hverjir rússnesku ráðamannanna
tækju þátt í þeim.
OLYMPÍUSKÁKSVEITIN
að mögulegt sé að taka þennan
úrskurð til endurskoðunar
seinna meir.
í Frakklandi voru fyrstu við-
brögð kirkjuyfirvalda við um-
burðarbréfi páfa þau, að öll
mótmæli, vonbrigði eða uppþot
voru bönnuð meðal andlegra og
veraldlegra manna. Meðal al-
mennings gætti mikillar
óánægju og t. d. sagði 37 ára
gamall Parísarbúi, faðir fjög-
urra barna, er hann var spurð-
ur af fréttamönnum á förnum
vegi um úrskurð páfa: „Ég
held hreinlega, að páfinn hafi
gert mikil mistök — — Eins
og nú stendur kæmi það sér
ákaflega illa fyrir mig að eign-
ast eitt barn í viðbót----svo
ég ætla ekki að fara að boði
páfa“. „Pillan“ var leyfð í
Frakklandi snemma á þessu ári
en ekki er vitað hvaða áhrif
úrskurður páfa hefur á það
leyfi.
Páll páfi 12. er nú í þann
veginn að leggja upp í heim-
sókn til ýmissa landa í Suður-
Ameríku og er hann fyrstur
páfa til þess að heimsækja
Suður-Ameríku, en þar er fá-
tækt og offjölgun mjög alvar-
legt vandamál.
SUMARHÁTÍÐIN
Skartgripaþjófarnir
(Marco 7)
Sérstök mynd, tekin í East
manlitum og Panavisioion.
Kvikmyndahandrit eftir Dav-
id Osihorn.
Aðalhlutverk:
Gene Barry
Els’a Martinelli
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð inna 14 ára.
Framhald aí bls 16
áður. Guðmundur Arason gat
þess, að mikið áfall væri að missa
Friðrik úr liðinu, þar sem það
kynni að verða til þess, að ísland
lenti í undanrásum með sterkari
þjóðum en ella, og því kannski
erfiðara að komast í A-riðil í úr-
slitunum.
Eins og áður segir er þetta 18.
Ólympíuskákmótið. Hið fyrsta var
1927, en ísland sendi fyrst sveit
1930 og héfur síðán tekið þátt í
ellefu mótum öðrum. Beztum ár-
angri náði ísland 1966 á Kúbu,
varð í 11. sæti af 52 þátttökuþjóð
um. 1954, þegar mótið var haldið
í Amesterdam, komst ísland einn-
ig í A-riðil.
Til þess að standa straum af
kostnaði í sambandi við þátttöku
íslands nú, efnir Skáksambandið
til firmakeppni, og einnig verður
efnt til happdrættis, en mjög kostn
aðarsamt er að taka þátt í slíku
móti.
íslenzka skáksveitin er skipuð
ungum skákmönnum, sem þó f'lest-
ir hafa öðlazt talsverða reynslu í
keppni erlendis. Þetta er t. d.
fimmta Ólympíuskákmótið, sem
Ingi R. teflir á og 1950 á mótinu í
Munchen tefldi hann á 1. borði og
hlaut 10 vinninga af 16. Guðmund
ur Sigurjónsson hefur náð athyglis
verðum árangri og á stúdentamót-
inu, sem nýlokið er í Austurríki,
hlaut hann yfir 70% vinninga.
Bragi náði þar einnig góðum ár-
angri. Jón, Björn og Ingvar hafa
allir teflt á Ólympíuskákmótum
áður.
Framnaid aí ois 16
degi verzlunarmanna, verður
svo dansleikur í Valaskjálf á
Egilsstöðum og hefst klukkan
tíu. Hiljómsveit Magnúsar Ingi
marssonar leikur og syngur fyr
ir dansi..
Algjört áfengisbann verður
á samkomunni í Atlavik, og
verður gengið ríkt eftir þvi að
því verði framfylgt. Frá því
1965 hafa sumarhátíðir Fram-
sóknarmanna í Atlavik verið
áfengislausar, og hafa þessar
samkomur verið til mikillar
fyrirmyndar.
A VlÐAVANGI
Framhald af bls. 3.
þessa peninga til að rétta við
íslcnzkan iðnað og koma á fót
nýjum lífvænlegum iðngrein
um í stað þess að láta eitt iðn
fyrirtækið af öðru draga úr
rekstri eða loka, sem þýddi að
gjaldeyrisþörfin fyrir erlendar,
innfluttar vörur jókst að sama
skapi og íslenzk fyrirtæki drógu
saman framleiðsluna fyrir inn
anlandsmarkað? Auðvitað eiga
allir auðvelt með að svara ját-
andi nú, þegar blæs á móti. Og
það er ekki of seint að sjá þetta
nú, því að leiðin út úr ógöng
unum er einmitt almennur og
ríkur skilningur á þessum stað
reyndum — og að honum fengn
um almenn samstaða um að tak
ast á við erfiðleikana með karl
mennsku og kjarki og hæfilegri
bjartsýni.
PAFINN OG „PILLAN"
Framhald af bls. 1
I fyrra var meiri hluti þess-
arar nefndar á þeirri skoðun,
að kaþólska kirkjan ætti að
draga heldur úr hinu stranga
banni gegn takmörkun barn-
eigna. Páfi samþykkti að fresta
úrskurði sínum, en margir
kaþólskir sérfræðingar lögðu
fast að Vatíkaninu að taka skýra
afstöðu í þessu máli.
Páll páfi sagði, að allar þær
aðferðir, sem hingað til hefðu
komið fram til getnaðarvarna
með lyfjum eða hjálpartækjum
væru hættulegar í notkun og
* ekki fullkannað, hver áhrif t. d.
„pillan“ hafi á konuna. Páfinn
sagði hins vegar að sér væri
Ijóst, að þessi ákvörðun hans
myndi mæta óvinsældum meðal
hinna 550 milljón kaþólskra
manna í heiminum. í umburðar
bréfinu kemur hins vegar fram.
I
Mikio Öpval Hl jömsveita
20 Ara reynsla
I
B
I
Ponic og Einar, Ernir,
Astro og Helga, Bendix,
Solo, Sextett Jóns Sig.,
Tríó. Kátir félagar —
Stuðlar. Tónar og Asa.
IVIono Stereo. Hljóm-
sveit Hauks flortens, —
Geislar frá Akureyri.
Pétur GuSjónsson.
Umboð Hl JÖMSVEITA I
Simi-16786.
ÍIIFJÁISMI
Sími 50249.
Einvígið í Djöflagjá
íslenzkur texti.
Sidney Poiter,
James Garner.
Sýnd kl. 9.
Slmi 11544
Uppvakningar
(The Plauge Of The Zombies)
Æsispennandi ensk litmynd
um galdra og hrollvekjandi
afturgöngur.
Diane Clerke
Andre Morell
Bönnuð yngri en 16 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Lokað vegna sumarleyfa.
T ónabíó
Slm 31182
Hættuleg sendiför
(Ambuch Bay)
Hörkuspennandi ný amerísk
mynd l litum
Islenzkur texti
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum lnnan 16 ára
Leyniför til Hong
Kong
Spennandi og viðburðarlk ný
Cinemascope litmynd með
Stewart Granger
og Rossana Schiaffino.
fsl. texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kL 5, 7 og 9.
Gubjön Stmársson
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
AUSTURSTRÆTl 6 S'lUI 18314
GAMLA BÍÖ
Sími 114 75
Mannrán á
Nóbelshtíð
(The Prize)
með Paul Newman
Elke Sommer
Endursýnd kl. 5 og 9
íslenzkur t«xti
Bönnuð innan 12 ára
■riuS
Slmai 32075 og 38150
Ævintýramaðurinn
Eddy Chapman
(The Trtple Cross)
tslenzkur texti,
Endursýnd kl 5 og 9.
Bönnuð börnum tnnan 12 ára.
Slm) 50184
Beyzkur ávöxtur
Frábær amerísk verðlaunakvik
mynd með Cannes verðlaunahaf
anum
Ann Bancroft
1 aðalhlutverki.
ísl. texti. Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
Síðasta sinn.
Firebail 500
íslenzkur texti.
Hörkuspennandi, ný amerisk
kappakstursmynd I litum og
Panavision.
Sýnd ki. 5,15 og 9
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Dæmdur saklaus
(The Chase).
íslenzkur texti.
Hörkuspennandi og viðburða-
rík ný amerísk stórmynd 1
Panavision og Iitum með úrvals
leikurunum
Marlon Brando,
Jane Fonda o. fl.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.