Tíminn - 30.07.1968, Side 16
157. tbl. — Þnújudagur 30. júlí 1968. — 52. árg.
fim
Dr. Kristján Eldjárn
tekur við embætti 1. ágúst
Dr. Kristján Eldjárn tekur
við embætti forseta íslands 1.
ágúst n. k. Athöfnin hefst í
Dómkirkjunni kl. hálf fjögur en
afhending kjörbréfs fer síðan
fram í sal neðri deildar Alþing-
is. Þegar kjörbréf hefur verið
afhent, munu forsetahjónin
koma fram á svalir þinghússins.
Þeir, sem ætla að vera við
kirkjuathöfnina, eru beðnir að
vera komnir í sæti fyrir kl. hálf
fjögur. í Alþingishúsinu rúm-
ast ekki aðrir en boðsgestir.
Gjallarhornum verður komið
fyrir úti, svo að menn geti
fylgzt með því, sem fram fer
í kirkju og þinghúsi. Lúðrasveit
mun leika á Austurvelli.
Forsætisráðuneytið,
29. júlí 1968.
Islenzka Ofympíu-
skáksveitin valin
— Mótið verður í Sviss í haust. — Friðrik Ólafs-
son verður ekki í íslenzku sveitinni
Hsím., mánudag. — Stjórn Skák
sambands íslands boðaði blaða-
menn á sinn fund í dag, og skýrði
Bann við smásíld-
veiði
Samkvæmt reglugerð nr. 37 22.
febrúar 1968 um breytingu á reglu
gerð um bann við veiði smásíldar
nr. 7 22. febrúar 1966, eru síldveið
' ar bannaðar á tímabilinu frá 1.
marz til 15. ágúst næst komandi
á svæði fyrir Suður- og Vestur-
landi frá línu, sem hugsast dregin
í réttvísandi suðaustur frá Eystra-
Horni suður um og vestur fyrir
að línu, sem hugsast dregin í rétt-
vísandi norðvestur frá Rit.
Að fengnum tillögum Hafrann-
sóknastofnunarinnar og Fiskifélags
íslands hefur ráðuneytið hinn 26.
þ. m. gefið út reglugerð um breyt-
ingu a áðurgreindri reglugerð, þar
sem bann við síldveiðum á greindu
svæði er framlengt til 1. septem-
ber næstkomandi.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið,
29. júlí 1968.
forsetinn, Guðmundur Arason, frá
hverjir munu tefla fyrir íslands
hönd á 18. Ólympíuskákmótinu,
sem háð verður í Lugano i Sviss
17. október til 8. nóvember í haust
Á 1. borði teflir Ingi R. Jóhanns
son, 2. borði Guðmundur Sigur
jónsson, 3. borði Bragi Kristjáns
son, 4. borði Jón Kristinsson. 1
varamaður verður Björn Þorsteins
son, en 2. varamaður Ingvar Ás
mundsson og verður hann jafn
framt fararstjóri.
Friðrik Úlafsson var upphaflega
valinn til að tefla á 1. borði, en
hann tilkynnti í dag, að hann gæti
af persónulegum ástæðum ekki
sótt mótið og Guðmundur Pálma-
son treysti sér heldur ekki
til að fara. Veikir þetta að sjálf-
sögðu íslenzku sveitina, en hún
er samt sem áður líkleg til að ná
ágætum árangri.
Upphaflega voru 12 skákmenn
valdir til æfinga fyrir þetta mót
og hófust þær í febrúar undir
stjórn Friðriks. Ýmsar orsakir hafa
orðið til þess, að þær hafa fallið
niður á ýmsum tímum, en nú verð
ur aftur lögð meiri áherzla á þær
og mun Friðrik stjórna þeim sem
Ftamhaio á oif 15
SumarhátíS Framsóknar-
manna á Austurlandi
Framsóknarmenn á Auslur-
landi halda sumarhátið í Atla-
vík um næstu helgi — verzlun
armannaihelgina. Hátíðin hefst
á laugardagskvöldið með dans-
leik klukkan 9 í Atlavík. Dans-
að verður á
tveim stöðum,
úti og inni. Þar
leiika fyrir dansi
Illjómsveit Magn
úsar Ingimarsson
ar ásamt söngv-
urum og hljóm-
sveilinni Ómar
frá Reyðarfirði.
Sunnudaginn 4.
á'gúst klukkan 2 e. h. hefst svo
aðallhálíðin. Ávörp flytja Ey-
steinn Jónsson alþingismaður
og Ólafur R. Grímsson hagfr.
Ræðu flytur Stefán Jónsson
Eysteinn Stefán
Ólafur
fréttamaður. í upphafi sam-
komunnar og á milli leikur
Lúðrasveit Neskaupstaðar und
ir stjórn Haraldar Guðmunds-
sonar. Hljómsveit Magnús’ar
Ingimarssonar skemmtir ásamt
söngv-urunum Vilhjálmi Vil-
hjálmssyni og Þuríði Sigur'ðar-
dóttur. Einni'g skemmta Gísli
Alfreðsson leikari, Hjálmar
Gíslason gamanvísnasöngvari
og Jón Gunlaugsson gamanleik
ari, og GIM tríóið frá Fásikrúðs
firði, sem leikur og syngur.
Á miánudagskvöldið — á fri
Framhaia á bls. 15.
í gærkvöldi fór fram fallhlífarstökkkeppni á Sandskeiðlnu, á mllli meðlima
í fallhlífadeild Flugbiörgunarsveitarinnar og brezku fallhlífahermannanna,
sem hér hafa dvalið við heræfingar að undanförnu. Keppnin fór þannig
fram, að hóparnir fóru í ákveðna hæð í litlum flugvélum, og siðan er
það kúnstin í keppni sem þessari, að lenda í fyrirfram ákveðnum hring,
sem markaður er á jörðina. Hérna á myndinni sjáum vlð einn fallhlífar-
stökkvarann vera að lenda, og hann er rétt við hringinn. Töluverður
fjöldi fólks hofði á stökkvarana á Sandskeiðinu í gærkvöldi.
(Tímamynd: Þóra Björk)
íslenzka skreiðin er
enn á leiðinni suður
EKH-Reykjavík, mánudag.
Fyrsti skreiðarfarmurinn, sem
P.auði kross íslands sendi nauð
itöddum í Biafra, fór með Skóg
arfossi til Hamborgar 6. júlí
s. 1. f Hamborg tók Alþjóða
Rauði krossinn að sér að koma
tarminum áfram áleiðis til Bi-
afra. Nú hafa borizt þær fregn
ir, að íslenzku skreiðinni hafi
verið skipað um borð í flutn-
ingaskipið Elmina Palm í Ham-
borg og hafi skipið látið þar úr
höfn 27. júlí. Skipið er sagt
væntanlegt til Fernando Po í
eyjaklasanum Santa Isabel
skammt undan strönd Nigeríu
einhvern tíma . ágúst. Á Fern-
ando Po hefur Alþjóða Rauði
krossinn bækistöð sína og það-
an er matvælum, lyfjum og öðr-
um nauðsynjavörum „smyglað"
inn í Biafra með flugvélum.
Mikið magn hjálpargagna berst
nú til Fcrnando Po og skipu-
leggja alþjóðasamlök Kauða
krossins flutningana þannig að
ekki berist allt í einu, hcldur
jafnt og þétt, og því hefur þeim
ekki legið meira á íslenzku
skreiðarsendingunni en þetta.
Verðmæti íslenzka farmsins
í Elmina Palm mun hafa verið
um 1,8 milljón íslenzkra króna.
Skipting farmsins er þannig:
767 pakkar af þorskhausum,
1032 pakkar af skreið og 600
pokar af þurrmjólk
Þessa dagana er nú verið að
útbúa á vegum Rauða krossins
aðra skreiðarsendinguna til Bi-
afra og fer hún með Rangá inn-
an skamms. Er sá farmur álíka
að verðmæti og sá fyrri. Biafra-
söfnunin hér á landi hefur geng
ið vel en ástæða er til að minna
á, að henni lýkur 6 ágúst n. k.
Ólafur Stephcnsen tjáði blað
inu í dag, að strax og Rauði
kross íslands fengi staðfestingu
á að fyrsta íslenzka sendingin
FramhfUO öls 15
Tvö met í
800 m. á
Iðavöllum
KJ-Reykjavík, mánudag.
Á fjöimennu og velheppn-
uðu Fjórðungsmóti hesta-
mauna, sem haldið var að
lðavöllum á Völlum um helg
ina, voru sett tvö íslands-
met á kapprciðunum, í 800
metra stökki og 800 metra
brokki.
Það var hinn landsfrægi
kappreiðahestur Þytur úr
Reykjavík, eign Sveins
Sveinssonar, sem setti lang-
þráð met í 800 metra stökki.
Hljóp Þytur vegalengdina á
63,4 sek. Þess má geta í
þessu sambandi, að fyrir
fjórum árum hljóp Þytur
einmitt eitt af sínum fyrstu
800 metra hlaupum á Aust-
urlandi. Eftir Skógarhóla-
mótið, sem haldið var á
dögunum, kom jafnvel til
greina, að láta Þyt hætta
keppni, en fyrir þrábeiðni
Austfirðinga, kom Sveinn
með Þyt austur og það má
segja að það hafi verið
frægðarför.
Annað íslandsmet var sett
á 800 metra brokki, er
Þytur frá Eiðum fór vega-
lengdina á 2:08.0 mín.
Nánar verður sagt frá
mótinu síðar hér í blaðinu.
Læknar
á síldar-
miðin
OÓ-Reykjavík, mánudag.
Varðskipið Ægir er nú að halda
á síldarmiðin fyrir sunnan Sval-
barða. Um borð er Hannes Finn-
bogason, skurðlæknir, en í Ægi er
tiltölulega góð aðstaða til að fram
kvæma læknisaðgerðir. Langt er
liðið síðan fyrst var farið að tala
um nauðsyn þess að veita södar
sjómönnunum á fjarlægum mið-
Framhaio « ois 14
FUF, Kópavogi
Almennur fundur í Félagi ungra
Framsóknarmanna í Kópavogi verð
ur haldinn að Neðstutröð 4. ki
20,30 á miðvikudag. Dagskrá:
Kosning fulltrúa á þing SUF og
önnur mál. — Stjórnin.