Tíminn - 01.08.1968, Page 13

Tíminn - 01.08.1968, Page 13
FIMMTUDAGUR 1. ágúst 1968. ÍÞRÓTTIR TIMINN 13 80 Framarar utan á morgun i 1. deildar lið félagsins í knattspyrnu leikur í Svíþjóð, en handknattleiks- flokkarnir taka þátt í stórmóti í'Osló. Alf-Reykjavík. — f fyrramálið, föstudag, leggur 80 manna hópur frá Fram, knattspyrnumenn1 og handknattleiksfólk, í keppnisför til Svíþjóðar og Noregs. Fer hópur inn með leiguflugvél og er hér um að ræða einhvern stærsta hóp íþróttafólks, sem fei; til keppni erlendis. 1. deildar lið Fram í knatt- spyrnu er í hópnum, en liðið á að leika tvo leiki í Svíþjóð. Fer fyrri leikurinn fra-m annað kvöld og mætir Fram þá 1. deildarliðinu A.I.K. Fer leikurinn fram á Solna Stadion í Stokkhólmi. Á mónudag inn leikur liðið svo gegn 3. deild ar féiaginu Spánga og fer sá leikur einnig fram í Stokkhólmi. Handknattleiksfólkið keppir í Noregi og tekur þátt í stóru al- þjóðlegu móti í Osló. Sendir Fram tvö kvennalið til keppninnar, meistaraflokk og 2. flokk. í karla Enginn sigur- vegarí í 2. deild? Verðm- enginn sigurvegari í 2. deild í ár? Þetta er spurning sem Akranes og Haukar, sigur yegarar í a og b riðli 2. deildar velta fyrir sér um þessar mund ir. Vegna fyridhugaðrar fjölgun ar í 1. deild, var _ gerð sam- þykkt á síðasta KSÍ-þingi um það, að sigurvegarar í riðlunum (í þessu tilfelli Ákranes og Haukar) og fall-liðið í 1. deild, skulu heyja með sér einfalda stigakeppni um það, hvaða 2 lið skulu færast upp í 1. deild. Ekki er tekið fram, að neinn sérstakur úrslitaleikur verði í 2. deild, einda er ekki víst, að sigurvegari í leik Akraness og Hauka, komist í 1. deild, þótt það hljómi ótrúlega. T. d. er mögulegt, að Haukar vinni Akranes, en tapi fyrir fall-lið inu í 1. deild. Hins vegar gæti svo Akranes unnið fail-liðið með hagstæðu markahlutfaili og staðið betur að vígi en Hauk ar að 3ja liða keppninni lok- inni. í því tilfelli, að marka- hlutfall væri ekki látið ráða. er sá möguleiki fyrir hendi, að liðin verði öll jöfn með 2 sfig og yrðu að leika að nýju. Þá gætu Haukar í sama dæmi — tapað fyrir Akranesi í annarri tilraun. Tillaga sú, _sem samþykkt var á síðasta KSÍ-þingi virðist þvi vera mijög vanhugsuð. Nær væri, að Akranes og Haukar léku fyrst innbyrðis um efsta sæti 2. deildar og sigurvegari í þeim leik færist upp í 1. deild Síðan ætti liðið, sem tapaði, að leka gegn fall-liðinu í 1. deild um hitt sætið, sem laust er í 1. deild. — alf. Að hitta á éttan reit. Þetfa er ein af æfingunum. Reitirnir eru tölu- settir. Æfingarnar vel stundaðar Alf-Reykjavík. — Þjálfunarmið- stöð Handknattleikssambands ís- lands í Réttarholtsskólanum hefur nú verið starfrækt í nokkrar vik- ur við sívaxandi vinsældir. Hefur aðsókn að æfingunum aukizt mjög og í síðustu viku voru á milli 30 og 40 handknattleiksmenn komnir á skrá hjá þjálfurunum, Karli Benediktssyni og Birgi Björnssyni. Eins og áður hefur verið skýrt frá, er þessi þjálfunarmiðstöð mjög nýstárleg. Gefst handknatt- leiksmönnum tækifæri til að æfa flest atriði handknattleiksins und- ir sama baki, en æfingaatriðin eru mýmörg. Er hér um merkilega til- raun að ræða og ánægjulegt. að handknattleiksmenn skuli kunna að meta petta framtak HSÍ. Þess má geta. að þjálfunarmið- stöðin verður opm gllan ágústmán- uð. flokki sendir Fram lið úr 2. og 3. fiokki. Hópurinn verður utan í 10 daga. Fararstjórar með knatt- spyrnuhópnum verða þeir Karl Guðmundsson, Steinn Guðmunds- son, Þorgeir Lúðvlksson og Hilm ar Svavarsson, formaður Knatt- spyrnudeildar Fram. Fararstjórar með handknattleiksfólkinu verða þeir Ólafur Jónsson, Hörður Pét- ursson, Gylfi Jóhannesson og Jón Þorláksson, formaður Fram. Þess má geta, að flokkar frá KR og FH taka einnig þátt í handknattleiksmótinu í Osló, en þeir fara ekki utan með sömu vél og Fram. 2. deild Hér birtist lokastaðan í a-riðli 2. deildar og staðan í b-riðli fyrir leik Selfoss og ísafjarðar. Haukar hafa sigrað í a-riðli og Akranes í b-riðli: A-riðill: Haukar 6 4 11 14:10 9 FH 6 14 1 13:11 6 Þróttur 6 2 13 10:14' Ek Víkingúr 6 1 2 3 8:10 4 Markhæstu leikmenn í riðlinum: Örn Hallsteinsson, FH 6 mörk Jöhann Larsen, Haukum 6 mörk Hafliði Pétursson, Vík. 5 mörk Helgi Þorvaldss.,' Þrótti 5 mörk B-riðill: Akranes 5 5 0 0 Breiðabl. 6 2 1 3 ísafjörður 4 1 1 2 1 Selfos's 5 0 2 3 Markhæstu leikmenn í riðlinum: Hreinn EUiðason, ÍA 11 mörk Matthías Hallgr., ÍA 6 mörk Björn Lárusson, ÍA 4 mörk Sigurður Eiríksson, Self. 4 mörk Guðjón Guðmundsson, ÍA 4 mörk Guðmundur Þórðars. Brbl. 4 mörk ¥Sw!í!??R!ííí:íííS!<í Tékknesku bikarmeistararnir Myndirnar hér að ofan og neð- an fengum við sendar frá Tékkó- slóvakíu iiýlega, en þær eru frá úrslitaleiknum í tékknesku bikar- keppninni Efri myndin er frá leiknum, en á neðri myndinni sjá- um við sigurvegafaria, Slovan Bratislava, taka við sigurlaunun- um. Það er einmitt Slovan Brati- slava, sem verður mótherji KR í Evrópubikarkeppninni. Enn þá hafa liðin ekki samið um leikdaga. KR-ingar hafa sent Tékkunum skeyti og farið fram á, að fyrri leikurinn verði leikinn í Reykja- vik, en þegar þetta er ritað, hefur ekkert svar borizt enn þá. Ríkharður og félagar sýndu skemmtileg tilþrif gep Víking — en tókst þó ekki að sigra. Víkingur vann leikinn 2:1. „Gömlu karlarnir“ frá Akrancsi, Ríkharður Jónsson, Jón Leósson, Þórður Jónsson og fleiri kepptu með b-liði Akraness gegn a-liði Víkings í Bikarkeppni KSÍ í fyrra kvöld og sýndu skcmmtilega knatt spyrnu. Að vísu tókst þeim ekki að sigra en Víkingur vann leikinn 2:1 og mátti sannarlega þakka fyr ir. Á síðustu mínútu leiksins skor uðu Skagamenn jöfnunarmark, en það var dæmt af vegna þess, að dómarinn taldi að sóknarmenn Akraness hefðu hrint markverði Vikings. Eftir markalausan fyrri hálf leik skoraði Kári Kaaber fyrra mark Víkings á 16. mínútu síðari hálfleiks, nokkuð óvænt mark. Skagamenn höfðu sótt fast að Víkings-markinu, en skyndilega var „hreinsað“ frá og fram að miðiju, þar sem Kári var einn og óvaldaður. Og hann tók beint strik áfram og skoraði framihjá markverðinum. Kári var aftur á ferð á 33. mínútu og skoraði með fallegu skoti. 2:0. En þessar tölur gáfu ekki rétta hugmynd um gang leiksins. Skaga menn áttu sízt minna í honum og sýndu áferðarfallegri knattspyrnu. Hins vegar voru þeir óheppnir upp við markið, t. d. átti Jón Leóssón skot i slá. Eina mark þeirra skor aði Ríkharður með þrumuskoti, þegar 2 mínútur voru eftir. Og eins og fyrr segir, kom jöfnunar- mark mínútu síðar, en það var dæmt af. Víkings-liðið lék ekki vel í þess um leik. Hafi liðið litið út eins og falleg rjómakaka í vor, þá er bú- ið að sleikja allan rjóma af núna. Það voru helzt unglinga-. landsliðsmennirnir, Sigfús, mark vörður, Magnús Þorvaldsson og Kári Kaaber, sem sýndu tilþrif. Lengi lifir í gömlum glæðum, má segja um Ríkharð og félaga, sem sýndu skemmtileg tilþrif. Svavar Sigurðsson vakti mikla at hygli, sem miðvaliarspiiari, þó að hann sé ekki í léttavigt. — alf.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.