Tíminn - 01.12.1968, Blaðsíða 8

Tíminn - 01.12.1968, Blaðsíða 8
TÍMINN Jón Magnússon f orsæ tisráðherra 1918 neytinu í Reykjavík. Jón var skipaður bæjarfógeti í Reykja vík 1909. ÞingmaSur Vestmannaeyja var Jón 1902—14, en síðan þing- maður Reykjavíkur til 1919. Loks var Jón landskjörinn þing maður frá 1922 ti.l dauðadags. Jón var forsætisráðherra 1 fyrstu íslenzku ríkisstjórninni 1917—22 og aftur varð hann forsætisráðherra 1924 og gegndi því starfi til dauðadags 23. júní 1926. Jón lézt á ferða lagi á æskustöðvum sínum í Norðfirði. Hann er eini ís- lenzki forsætisráðherrann til þessa, sem hefur andazt í emb ættinu. Og aðeins tveir menn hafa gengt forsætisráðherra- embættinu hér lengur (Her- mann Jónasson og Ólafur Thors). Kona Jóns Magnússonar var Þóra Jónsdóttir háyfirdómara Péturssonar og áttu þau ekki börn. FósturdóttiT þeirra lézt í spönsku veikinni. Telja má því nær öruggt, að af einstökum mönnum hafi Jón Magnússon forsætisráðherra átt mestan hlut að því, að sambandsmálið leystist svo far sællega sem raun bar vitni ár- ið 1918. Jón Magnússon fæddist að Múla í Aðaldal 16. janúar 1859, og var faðir hans prest- ur. Lengst ólst Jón upp að Skorrastað í Norðfirði, sem séra Magnús faðir hans fékk 1868. Árið 1881 lauk Jón prófi úr lærða skólanum í Reykjavík með mjög hárri einkunn. Um skeið var hann skrifari Júlíuisar Havsteens amtmanns á Akur- erri, en 1891 lauk hann lög- fræðiprófi frá Kaupmanna- hafnarháskóla með góbrf eink unn. Árin 1891—96 var Jón Magn ússon sýslumaður í Vestmanna eyjum, en síðan landshöfðingja ritari til 1904, er hann varð skrifstofustjóri í íslenzka ráðu- Snorri Hjartarson: Land þjóð og tunga Land þjóð og tunga, þrenning sönn og em, þér var ég gefinn bam á móðurkné; og lék hjá þér við læk og blóm og stein, þú leiddir mig í orðs þíns háu vé. Á dimmum vegi dýrð þín um mig skein, í dögun þeirri er líkn og stormahlé- og sókn og vaka: eining hörð og hrein, þú heimtar trúnað, spyr hver efnd mín sé. Þú átt mig, ég er aðeins til í þér. Örlagastundin nálgast grimm og köld; hiki ég þá og bregðist bý ég mér bann þitt og útlegð fram á hinzta kvöld. ísland, í lvftum heitum höndum ver ég heiður þinn og líf gegn trylltri öld. Guðmundur Ingi Krístjánsson: Ávarp á Þingvallafundi 1960 (Brot) Hvar vilt þú> ísland, leggja þitt smáa lóð, lítil en sjálfstæð og friðarunnandi þjóð? Taktu í hverja þá hönd, sem til griða er sett, hjálpa þú öllum, sem vinna með friði sinn rétt. Reyndu að deyfa þær eggjar, sem ennþá er beitt, aðstoða jafnan þá meðalgangan er veitt, til þess að ævin í alheimi reynist góð örugg og friðvænleg sérhverri hlutlausri þjóð. Neitaðu herstöð og vopnum og öllu, sem er andstætt þeim draumi, sem mannkynið geymir með draumnum um samúð og samstarf um gjörvallan heim. Sjáandi göngum vér öll undir vorboða þeim. Vér erum mörg, sem í stórræðum stöndum í dag, strengjum vor heit., erum komin í fóstbræðralag, til þess að færa til bóta það ástand sem er. ísland sé friðland, en hvorki með vopn eða her. Látum nú mótvindinn brýna vort þrek og vorn þrótt það er til friðar og íslenzkrar hamingju sótt. Hugsjónin vígir hið volduga fóstbræðralag. Vér höfum lifað á Þingvöllum hamingjudag.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.