Tíminn - 05.01.1969, Page 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið i sima 12323
3. tbl. — Sunnudagur 5. jan. 1969. — 53. árg.
Efri hæS ISonnarhússins aS brenna. Myndin er tekin skömmu fyrir miSnættiS.
(Ljósm: FriSrik Vestmann)
Fokkerinn
kom á ein-
um hreyfli
EKH-Reykjavík, laugardag.
Ein Fokker Friendship vél
Flugfélags fslands fór í morgun
til Akureyrar og hafði m.a. inn-
anborðs reykvíska slökkviliðs-
menn, sjónvarpsmenn og tæki
þeirra. Flugvélin dokaði tölu-
vert við á Akureyrarflugvelli,
en um tólfleytið var haldið af
stað aftur til Reykjavíkur með
ekki síður dýrmætan farm. Það
voru sjónvarpsmenn og filmur
þeirra og myndafilmur til allra
dagblaðanna.
Þegar yfir Skagafjarðarhá-
lendið var komið tóku farlþegar
eftir því að drepið hafði verið
á öðrum hreyfli vélarinnar og
t'arð þeim um og ó. Engin á-
stæða var þó til að óttast, flug-
æaðurinn hafði drepið af hreyfl
Framhald á bls. 15.
Slökkvistarfiö stóð stanzlaust yfir í sextán tíma
475 MENN ÁN ATVINNU í
BRÁD VEGNA ELDSVOÐANS
FB-Reykjavík, Laugardag.
Enginn getur enn gert sér grein fyrir hinu gífurlega tjóni, sem orðið hefur á verksmiðjum Sambands ísl. sam-
vinnufélaga á Akureyri í brunanum þar í nótt. Skóverksmiðja Iðunnar er eyðilögð, sútunarverksmiðjan sennilega að
mestu leyti líka, lagerar Gefjunar hafa mikið skemmzt, en engar skemmdir hafa orðið hjá Heklu. Hins vegar liggur
öll starfsemi niðri þar vegna þess að bæði vantar rafmagn og upphitun, svo óbeint tjón af völdum brunans er þar
einnig mikið. Samtals eru nú um 475 manns atvinnulausir á Akureyri vegna brunans, og óvíst hversu lengi þetta fólk
getur átt eftir að vera atvinnulaust.
Klukkan hálf tvö í dag, eftir 16
tíma stanzlausa baráttu við eldinn
f SÍS-verksmiðjunum taldi slökkvi
liðið á Akureyri sig hafa náð yfir-
tökunum, — og nú er ekki annað
eftir en rústadráp, sagði slökkvi-
liðsmaðurinn í samtali við Tímann.
Allir slökkviliðsmenn Akureyrar-
liðsins börðust við eldinn í 12—13
stiga frosti og norðan báli í alla
nótt, en í morgun komu þeim til
aðstoðar sex slökkviliðsmenn úr
Reykjavík, sem komu norður með
fyrstu flugvél.
Um tíma í nótt var talið, að
búið væri að ráða niðurlögum elds
ins, en svo blossaði hann upp aft-
ur, og þá í risi Gefjunar, þar sem
samkomusalur starfsfólksins var.
Það sem brunnið er í verksmiðju
sambyggingunni er skógerðin, sút-
unarverksmiðjan, lagerar og sam-
komusalur starfsfólksins, auk þess
sem miklar skemmdir hafa orðið
á ketilhúsinu, og verður því ekki
hægt að hita upp þær byggingar,
sem óskemmdar eru næstu daga.
Einnig eru allar byggingarnar raf-
magnslausar vegna skemmda á
spennistöðinni.
Frostið olli slökkviliðsmönnun-
um hvað mestum erfiðleikum, því
vatnið fraus í slöngunum og dæl-
unum. Samkvæmt upplýsingum lög
reglunnar á Akureyri hafa engin
slys orðið á mönnum í þessum
mikla bruna.
— Við erum ekki alveg búnir
að sjá ennþá, hvað hefur gerzt,
sagði Richard Þórólfsson, verk-
| smiðjustjóri skóverksmiðju Iðunn
ar. Helmingur af verksmiðjunni,
[ eða saumadeildin, er algjörlega
brunnin til kaldra kola, en hún var
i efri hæð hússins í austurálmunni-
i Hinn hlutinn er ákaflega illa far-
1 inn líka, en ekki hægt að sjá
j ennþá, hvort vélarnar eru ónýtar,
[ eða hvort hægt verður að nota °itt
hvað af þeim. Þær voru í gamla
| Gefjunar-salnum. Efnislager skó-
; verksmiðjunnar er alveg brunninn
, líka. Hann var í miðhluta hússins.
Það var geysimikið af hráefni á
lagernum.
— Full unna varan skemmdist,
eða brann ekki neitt, en hún var
í suðurhluta hússins. Hjá okkur
vann í kringum 75 manns, og afar
slæmt útlit með vinnu fyrir þetta
fólk.
— Við höfum ekki fullkomlega
hugmynd um það ennþá, hvar eld-
urinn hefur átt upptök sín. Það
byrjaði að loga upp úr loftventl-
um á sútunarverksmiðjunni, 8em
var á efri hæðinni að norðanverðu.
— Það er útilokað að sjá það í
augnablikinu, hversu mikið tjón
hefur orðið hjá okkur. í nótt hef-
ur verið .rizt við eldinn af eins
mikilli getu og hægt hefur verið,
en aðstaðan var afarslæm, 12 stiga
frost og stormur í norðan, svo það
gat ekki verr verið, og fraus í
slöngunum til skiptis.
— Við reiknuðum með að full-
unna varan slyppi alveg, og því
tókum við ekki til þess ráðs að
flytja hana burtu, enda mun hún
hafa sloppið, á aðra lagera varð
ekki komizt vegna eldhafsins.
— Við vorum bjartsýnir á fram-
jleiðsluna, og vorum búnir að selja
mikið fyrirfram alveg fram á mitt
sumar, en nú getum við auðvitað
ekki staðið við afgreiðslu á því,
og er það afar bagalegt að missa
af því öllu, sagði Richard.
— Hjá okkur er brunninn meiri
hluti allra véla, og mikið af efni
vörum, vörum í vinnslu og óunn
um vörum, sagði Þorsteinn Davíðs
son, verksmiðjustjóri í sútunar
verksmiðjunni. — Annars er ekki
búið að kanna til fulls, hversu
miklar skemmdirnar eru. Á neðri
hæðinni var aðallega blautvinnsl-
an, en síðan voru skinnin fullunn-
in á efri hæðinni og þar var geng-
ið frá þeim. Fór allt miklu verr
á efri hæðinni. Ég var þarna síðast
um klukkan hálf átta í gærkvöldi.
Þá gekk ég um alla sútunarverk-
smiðjuna, og fannst þá hvergi reyk
ur, en við höfum ennþá ekki getað
gert okkur nokkra hugmynd um,
hvar eldsupptökin kunna að hafa
verið.
— í sútunarverksmiðjunni unnu
um 50 manns, sagði Þorsteinn Dav-
íðsson.
— Tjónið er svo gífurlegt, að
það getur hlaupið á tugum millj-
óna, þótt maður geti enn ekkert
áætlað um það, sagði Hjörtur Ei-
ríksson hjá Gefjuni. — Þar við
bætist svo hið óbeina tjón, sem
verður nú ef verksmiðjan kemst
ekki í gang aftur fljótlega. Það,
sem brann hjá ok'íur, var samkomu
salurinn, sem var í rishæð verk-
smiðjubyggingarinnar. En auk
skemmdanna í eldinum eru vatns-
skemmdirnar, en þær eru óhemju
miklar, bæði á lagernum og efna-
vörum og öðru slíku. Efnivörulag-
erinn var fyrir neðan skógerðina,
og þar lak mikið vatn, og er hann
meira eða minna skemmdur, þó
ekki hafi enn verið hægt að kanna
það til hlítar. Við þetta bætast
svo allar raflagnir, sem liggja í
stokkum undir gólfum. Það kann
að vera að það hafi allt fyllzt af
vatni, og þurfi að skipta um þær,
svo ómögulegt er að segja, hversu
lengi framleiðslan kann að stöðv-
ast. Vélar virðast allar hafa slopp-
ið hjá okkur. Hvað hitanum við-
kemur, þá er annar ketillinn
skemmdur, hversu mikið, vita
menn ekki ennþá, en verið er að
Framhald á bls. 14.