Tíminn - 05.01.1969, Side 2

Tíminn - 05.01.1969, Side 2
2 TIMINN SUNNUDAGUR 5. janúar 1969. Lárus Jónsson: Trúlega furSar engan, að ís- lenzkir stúdentar í Uppsölum, sem og í mörgum öðrum há- skólaborgum erlendis, hafa í jólamánuði þessum 1968 séð sérlega ástæðu til þess að koma saman og ræða hagsmuna mál sín. Samtök íslenzkra stúd- enta erlendis, SÍSE, höfðu og sent spurningarlista, sem mér skilst, að þeir hafi jafnvel ósk- að, að meðhöndlaður yrði. Alla vega voru haldnir tveir fundir stúdenta hér. Fyrst um- ræðufundur, sem kaus nefnd, til þess að orða skoðanir fundar ins, síðar fundur til þess að fjalla um uppkastið að álykt- uninni. Þetta var um mánaða- mótin nóv.—des. Tvær framsöguræður voru fluttar. Helgi Jónsson ræddi um núverandi ástand og horf- ur. Meginþættir ræðu hans er uppistaða þeirrar ályktunar, er síðar var samþykkt, og send hefur verið blöðum í Reykja- vík. í trausti þess að Tíminn hafi fyrir löngu birt ályktun- ina í heild og hún sé þannig eftir atvikum kunn lesendum, læt ég útrætt um ræðu Helga. Sjálfur var ég beðinn að flytja aðra ræðuna. Eftir á að hyggja sé ég, að þetta var alveg rök- rétt. Þegar ég fyrir 10 árum fékk síðustu yfirfærslu náms- gjaldeyris fékk ég fullar 30 krónur sænskar fyrir minn ís- lenzka hundraðkall, nú fá stúd- entar færri en sex. Ræða mín var nokkuð almenus eðlis, þess vegna fylgir hún hér með óstytt: Stúdent sem slíkur hefur mér löngum virzt ómerkilegt fyrirbæri. Sennilega því ómerki legra þeim mun meir sem hann hampar sér sjálfur. Að tala um hagsmuni stúd- enta án þess að huga að hags- munum þeirra, sem enn eru ekki orðnir stúdentar, virðist mér vera eins og sagt var um Morgunblaðshöllina, að sjötta hæðin var byggð áður en byrj- að var á þeirri f jórðu og þeirri fimmtu. Við búum við skólalöggjöf, sem nú er fullra tuttugu ára. Ég hygg að þessi löggjöf hafi á margan hátt verið gerð af framsýni og byggt á hugmynd- um, sem vel má standa vörð um. Annað mál er, að alltaf þarf að bæta í einstökum atrið um eftir því sem reynslan kennir. Það er ekki löggjöfinni að kenna þótt framkvæmdin fari í handaskolum og lands- p.ófsnefndin ú virðist gjörsam lega hafa misst niður um sig buxurnar og hlaupið á vit völvu þeirrar, sem tölva nefnist, til þess að tilviljun ein megi ráða hverjir standist prófið. Hitt er þó öllu viðurhluta- meira, að á því herrans ári 1968, njóta ekki öll börn á ís- landi þeirrar skólagöngu, sem uppfylla kröfurnar, eru ekki til í öllum fámennari skólahéruð- um. Þegar ekki er eftir því gengið, að börnin sæki skóla í önnur héruð, þá verður af- leiðingin sú, að sum börn hljóta aldrei fulla skólagöngu. Þetta eru börn efnaminna fólks í strjálbýli og börn á heimil- um, þar sem hvötina að afla menntunar skortir. Hér er um að ræða réttlætis- og jafnréttis mál, sem víða yfirgnæfir öll hróp á róttækar ráðstafanir til hagsbóta stúdentum. Börn og unglingar í menptunarþjóðfé- lagi eiga ekki a». þurfa að gjalda foreldra sinna, hvorki lítilla efna þeirra, eða lítils skilnings á gildi og gagni menntunar. Það gefur auga leið, að þess ir þættir, efnahagur og afstaða til svokallaðrar langskólagöngu fá miklu meiri þunga, þegar um er að ræða framhaldsnám umfram skyldunám. Þar eru stofnanir af eðlilegum ástæð- um færri, fjarlægðirnar meiri og kostnaður allur meiri. Þar leggst því steinn á byrði og ranglætið og misréttið marg- faldast. Okkur er brýn nauðsyn á að hraða þeirri endurskoðun stefnunnar varðandi nám á menntaskólastigi, sem mér skilst að hafin sé. Og sú endur skoðun verður, að mínu áliti, að leiða til miklu fjölbreyttari valmöguleika, sennilega til færri og stærri og betur bú- inna skóla, sem bjóða upp á tiltölulega ríkulegt úrval þess námsefnis, sem sjálfsagt er talið í menningar- og tækniþró- uðum löndum. Hún á að leiða til þess, að það, sem við köll- um stúdentspróf, sé ekki þann ig úr garði gert, að það sé hart nær nauðsynlegt eða sjálf sagt að sækja háskólanám, til þess að hafa full not mennta- skólanámsins, heldur veiti menntun, sem, auk þess að undirbúa undir háskólanám, komi að fullum notum þótt þar sé staðar numið og leitað á vit atvinnulífsins .Síðast en ekki sízt verður hin nýja stefna að leiða til svo fullkomins jafn- ræðis fyrir alla, án tillits til efnahags, heimilisbrags eða bú setu, sem gjörlegt er. Þegar ég nú vík að háskóla stúdentum, sem heima á ís- landi af hroka kalla sig há- skólaborgara, vil ég skýrt taka fram, að það sem ég nú hefi sagt er algjör forsenda þeirra umbóta, sem ég mun gera að umræðuefni. Ég reyndi í upphafi að segja, að stúdentar bæru keim, eða væru produkt, þess þjóðfélags, sem þeir búa í og eiga auðvitað sinn þátt í mótun þess þjóð- félags. Þegar ég tók að blaða í gögn um varðandi núverandi náms- lánakerfi stúdenta uppgötvaði ég þætti í þjóðmen.iingu vorri, sem ég hefi viljað vona að væru fyrir löngu bornar fyrir björg. Þar er því slegið föstu að kvenstúdentar skuli fá 6000 krónum minna námsfé á ári en karlkyns slíkir, þrátt fyrir yfir lýsingar Sameinuðu Þjóðanna um launajöfnuð og jafnrétti karla og kvenna. Þetta rímar hins vegar vel við þær hug- myndir um stöðu og hlutverk konunnar í þjóðfélaginu, sem mér sýnist hafa komið í ljós í forsetakosningunum, þar sem eiginkonum frambjóðenda var fremst ætlað það hlutverk að vera stökkbretti í metorða- stiga eiginmannsins og að sjá til þess að grauturinn brenni ekki við og að vekja athygli vegna yfirbragðs síns við kon- ungleg brúðkaup. Því er slegið föstu, að börn utan hjónabands séu réttlaus, a.m.k. veiti ekki rétt til frá- dráttar til jafns við önnur börn á framfæri. Þess er krafizt, að stúdentar sérgreini hverju þeir eyði i brennivín, hverju í tóbak, hverju í bíó og hverju í sápu og púðurduft, meðan fatnaður er tekinn jafnt fyrir alla. Þar eru ennþá stórustyrkir svokallaðir, sem veita dúxun- um hlunnindi, sem standa í engu hlutfalli við dugnað þeirra borið saman við aðra. Það er ljóst, að mikil ólga er nú í yngra fólki á íslandi, ekki hvað sízt i háskólamennt- uðu fólki. Þetta er mikið já- kvætt, og vekur vonir um fram tíðina. Það sem hrellir mig er, að mér virðast sumir hverjir menntamennirnir eyða minni orku í að ræða vandamál þjóð arinnar af kunnáttu og djúp- skyggni og meiri orku í gífur- yrði og að tala af stærilæti um sjálfa sig og þá menntunar kynslóð, sem þeir tilheyri og af fyrirlitningu um kynslóð foreldra sinna, sem þó veitti þeim möguleika, sem hún sjólf ekki hafði. Menntunarhroki er enginn góður grundvöllur að krefjast hagsbóta til handa stúdentum. Við skulum hafa það hugfast, að þó ekki allir múrarar þekki á áttavitann, þá hefur einnig lærðum, bæði lög fræðingum og hagfræðingum, tekizt misjafnlega að verjast boðaföllunum. Undanfarið hafa samtök há- skólamenntaðra manna ákaft krafizt að vera viðurkennd sem launþegasamtök, að fá samn- ingsrétt sér til handa, til þess að brjóta sig út úr núverandi hagsmunasamtökum, til þess að fá betri aðstöðu til þess að skara eld að eigin köku. Ekki heldur þessi sérhagsmunabar- átta gerir það auðveldara eða ánægjulegra að vinna að -ót- tækum hagsbótum háskólastúd entum til handa. En í þessu ljósi eru þær kannske auðskiljanlegar spurn- ingarnar, sem stjórn SÍSE hef- ur sent ykkur, nefnilega: a) Eru einhver sérstök hlunn- indi, sem stúdentar í ykkar landi njóta og sem kollegar þeirra íslenzkir ættu að fá? b) Hafa ráðamenn og almenn- ingur í ykkar landi meiri skilning á hlutverki og þörf um háskóla en sömu aðilar á fslandi? c) Er „status“ háskólamennt- aðra manna og háskólastúd- enta hærri hjá ykkur en hérlendis? (allar lbr. mínar L.J.). Hér er ekki verið að setja hlunnindi íslenzkra stúdenta í hlutfall við efnahagsástand eða hlunnindi annarra íslenzkra þjóðfélagsþegna, heldur er- lendra. Hér er aðeins efazt um mögu leikann á að mæla skilning ráðamanna í magni og þá auð- vitað í krónum. Hér er ekki efazt um mögu- leikann á að mæla „status“ á mælistiku. Ég trúi því, að áður en hægt sé að framkvæma rót- tækar breytingar á stuðningi hins opinbera þá verði að kryfja til mergjar hver sé og hver eigi að vera „status“ há- skólamenntaðra manna, og hvað sé skilningur eða meiri skiln- ingur á hlutverki og þörfum háskóla og hver hlunnindi ís- lenzkir stúdentar „ættu“ að fá. Það sem ég hingað til hefi fjallað um er máske fremst pólitísks og hugmyndafræðilegs eðlis. Eitt veigamikið atriði á ég eftir, sem þó er meira realpólitísks eðlis. Það er sú sérstaða meðal menntunarþjóð- anna, sem fsland hefur vegna fámennis þjóðarinnar. Nú munu rösk fimm hundruö stúdenta stunda nám erlendis. Þetta er gífurlega há tala í hlut falli við fjölda stúdenta í land- inu. Þetta er að sjálfsögðu eðli- legt, vegna þess hve margar námsgreinar vantar við Háskóla íslands. Vegna smæðar þjóðar- innar sýnist mér, að svo muni þetta verða um ófyrirsjáanlega framtíð. Þörf á menntafólki í flestum greinum er svo lítil, að óhugsandi er að halda uppi háskólakennslu, sem stendur undir því nafni. Þess vegna er þess brýn nauðsyn, að ríkis- valdið Kryfji til mergjar hverj ar þær greinar eru, sem ætla má að í náinni framtíð verði upp teknar við H.í. Ég vil skýrt taka fram, að hálfkák og léleg kennsla er, að mínu viti. verri en engin. Að áætlun um uppbyggingu þessara faga sé gerð. Önnur fög sé ekki verið að dútla við, þar sé hreinlega skýrt lýst yfir, að undir þessum fögum rísum við ekki. Og há vaknar spurningin, á að styrkja fólk jafnt í hvaða fagi sem er og í hvaða landi sem er? Mitt svar er nei. Ríkisvaldið, eða kannske H.Í., á að gera samkomulag við háskólayfir- völd í vissum hentugum lönd- um um að taka við vissum lág- marksfjölda stúdenta árlega í tilteknum greinum og þá skal ríkið styrkja þessa til jafns við innfædda, þó í engu tilfelli lak ar en gildir við Háskóla fs- lands. Til annarra landa eða til náms í annarlegum eða ,.fj*r- stæðukenndum“ fögum verði ekki veittur stuðningur. Þannig verði háskólanám erlendis við- urkennt sem þáttur í menntun arpólitík íslenzka ríkisins og innlimað þar í. Að lokum vil ég slá föstu, að vissulega er róttækra úi- bóta þörf. Þær, sem þegar í stað er hægt að gera og ég tel að krefjast beri að gerðar verði eru: að konur hljóti sama stuðn- ing og karlar, að tekið sé tillit til barna utan hjónabands í hlut- falli við kostnað umsækj anda við framfærslu barns ins, að „stóru styrkir“ hverfi, að látið sé af nærgöngulum afskiptum af því hvernig stúdentar eyði vasapening um sínum, og að nám erlendis sé kerfað undir umsjón og stjórn menntamálaráðuneytisins. Lokamarkið hlýtur að vera námslaun í einhverri mynd, en áður en það spor er stigið verð ur að byggja upp skólakerfið undir stúdentspróf svo viðhlít- andi sé og kryfja til mergjar stöðu og hlutverk háskóla og háskólamenntunar í þjóðfélag- inu. Svo löng var ræðan. Kannske má bæta við að ennþá ein spurn ing var á lista SÍSE, þar sem beðið var um athugasemdir við þá fullyrðingu háskólarektors, að stúdentar á íslandi væru búnir að fá flest þau réttindi, sem stúdentar úti í Evrópu hafa með ýmsum tilþrifum verið að berjast fyrir uppá síðkastið. Kannske svelgist ein hverjum broddborgaranum á íslandi á nýárskaffinu, þegar ég lýsi þeirri persónulegu skoðun minni, að annað hvort hafi sá æruverðugi ekki hugmynd um hvað hann talar um, eða þá að hann sé vísvitandi óheiðar- legur. Hitt er svo annað mál, að þjóðfélagsbrag og þjóðfé- lagslegum þroska er þann veg farið á fslandi, að vel má vera, að stúdentar við H.í. hafi marg vísleg forréttindi umfram ýmsa aðra hópa, sérlega meðal al- þýðu manna og að blaðamönn- um undanskildum, sem ekki eiga sér hliðstæður erlendis. Rök fyrir þessu? Til dæmis: 1) þjóðfélagslegt og hugmynda fræðilegt dauðadá flestra fjölda samtaka i landinu með verka- lýðs-, bænda- og önnur alþýðu- samtök í fremstu röð að ó- gleymdum stjórnmálaflokkun- um, 2) að stúdentar virðast stundum teknir alvarlega, uppá hvaða deilu sem þeir finna, a.m.k. ef dæma má eftir því hvernig skrifað hefur verið um seinasta uppátæki þeirra, stúdentaakademíuna, sem í snobberíi og eftiröpun eftir út- lendri aristokratíu tæpast á sinn líka á íslandi, nema Pressuballið. Skrifað á jóladag 1968 Lárus Jónsson. FRAMLEIÐENDUR: .TIELSA, VESTUR-ÞÝZK GÆÐAVARA OG JÓN PÉTURSSON HÚSGAGNA FRAMLEIÐANDI lalálalálálHlalalalalslaláElálalálálálalá lELDHÚS- | iraWIMÍ! I Bllalalalálálalalalalálálalalá JfcKAUPIÐ Á FÖSTU VERÐI % STAÐLAÐAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR ERU ÓDÝRARI, FALLEGRI OG ÖLL TÆKI FYLGJA % HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR M lalála UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN KIRKJUHVOLI SfMI 21718 og 42137 FULLKOMIÐ SÝNINGARELDHÚS í KIRKJUHVOLI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.