Tíminn - 22.01.1969, Blaðsíða 2
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 22. janúar 1969.
Siglingaleið fyrir Horn-
ströndum alófær í myrkri
Frá sýningu Leikfélagsins Grímnis í Stykkishólmi.
Allra meinabót í Stykkishólmi
SJ;Reykjav£k, þriðjudag.
í Stykkishólmi starfar leikfélag
sem heitir Grímnir, og hefur það
að undantförnu sýnt gamansöng-
Ieikinn AHra meina bót, eftir
Patrek og Pál. Tónlist við leik-
inn hefur Jón Múli Árnasoa sam-
ið. Fimm sýninigar hafa verið
baldnar á leiknum í Stykkishólmi
við mikla aðsókn þá hafa verið
5 sýningar í Dölum og út um
(þorpin á Snæfellsnesi.
Um helgina fer leikfélagið
Grímnir í leikför suður til Borg-
arfjarðar, og verður sýning á
AHra meina bót í Borgarnesi,
verða tvær sýningar á Iaugardag-
inn kl. 3 og 8,30 og í LogaTandi
í Reykholtsdal kl. 4 síðdegis á
sunnudag.
Fimm manna hljómsveit leikur
á sýningu undir stjóm séra Hjart
ar Guðmundssonar _sem sj'álfur
leikur á píanó. Leikstjóri er Sæ-
var Helgason en aðalhlutverk eru
leikin af Páli Þorgeirssyni, Jóni
Sv. Péturssyni Friðrik R. Guð-
mundissyni, Jósefínu Pétursdóttur
og Gunnleifi Kjartanssyni.
50 Þúsund manns hafa
komii / Norræna húsii
,
EKH-Reykjavík, þriðjudag.
Fjölbreytt starfsemi fer fram í
Norræna húsinu, stofnunin sjálf
hefur margt umleikis en einnig
fá ýmis félagssamtök inni í fund-
arsalnum fyrir samkomur sinar.
Rúmlega fimmtíu þúsund manns
hafa heimsótt Norræna húsið í
vetur þegar allt er talið, en þar
af hafa 16 þús. sótt norrænu
bókasýninguna sem nú er að
Ijúka og verður þetta að teljast
mjög ánægjuleg aðsókn.
Annað kvöld og fimmtudagskv.
verða dönsk skemmtikvöld í Nor-
ræna húsinu og kynna þar fjögur
af ungskáldum Dana verk sín með
upplestri, söng og umræðu. Þetta
eru skáldin Klaus Rifbjerg, Inger
Ohristensen Jörgen Gustava
Brandt og Benny Andersen.
Skemmtikvöldin hefjast bæði
kvöldin stundvíslega kl. 20 og eru
allir velkomnir.
Norrænu bókasýningunni er nú
Félag Framsóknar-
kvenna í Reykjavík
Félag Framsóknarkvenna í
Reykjavík heldur fund fimmtudag
inn 23. janúar kl. 8,30 síðdegis í
samkomusal Hallveigarstaða.
Fundarefni:
1. Verkefni Félagsmálaráðs.
Framsögumaður Sigríður Thorla-
cius.
2. Fyrsta ferðin mín: Sólveig
Alda Pétursdóttir flytur frásögn.
3. Félagsmál.
Stjórnin. /
Sigríður
Sólveig
senn að ljúka og hafa um tíu
þúsund manns sótt hana og f jöld-
in allur tekið þátt í bókagetraun
inni, sem fram fer í sambandi við
sýninguna. í byrjun næsta mán-
aðar verður bókasýningin send til
Akureyrar og sett þar upp á hinu
nýja og glæsilega húsnæði Amts-
bókasafnsins. Þar verður sýn-
in opin um eins mánaðar skeið,
en komið hefur til tals að senda
hluta hennar til Vestmannaeyja
að þeim tíma liðnum.
Frá og með fyrsta janúar var
frú Else Mia Sigurðsson ráðin
bókavörður við Norræna húsið,
en þess má geta að hún hafði
áður veg og vanda að uppsetn-
ingu Norrænu bókasýningarinn-
ar. Else Sigurðsson starfaði áður
við bókasafn Hagstofu íslands.
Bókasafni Norræna hússins er í
fyrstu ætlað að verða um 20 þús.
bindi og er þegar búið að panta
mikinn hluta þess. Þar verður um
að ræða alfræðibækur, og hvers
konár upplýsingarit um Norður-
lönd og gott safn norrænna skáld
skaparverka. Þegar eru bókagjaf-
ir farnar að berast tft Norræna
hússins, t.d. hefur danska bókaút-
gáfa GyTdendal tilkynnt að hún
muni senda bókasafninu að gjöf
samtals 88 bindi af merkum bók-
um forlagsins. Bókasafnið verður
opnað til almennra útlána sem
fyrst og einnig er í ráði að koma
upp hljómplötusafni norræna
húsinu.
Ætlunin er að lána pTöturnar
Framhald á bls. 15.
í dag var flogið tU ísathugun-
ar á siglingaleiðinni fyrir Vest-
firðl að Horni. Var veður mjög
óhagstætt til ískönnunar á svæð-
inu. Virðist siglingarleiðin,
Straumnes að Horni, alófær í
myrkri enda er talsverður sjór á
þcssu svæði og mlkil hreyfing á
ísnum frá Straumnesi fyrir Gjög-
ur. Einna greiðfærast virðist vera
að sigla 2 til 5 sjómílur undan
landinu frá Straumnesi að Kögri,
en síðan nær Hombjargl.
N og NV af Kópaskeri, 2—8
sjóm., eru 3 hættulegir ísjakar á
reki. f mynni ísafjarðar um 10
sjóm. NV af Deild, er stórt svæði
þakið ísjökum og liggur þaðan
misjafnlega þétt íshrafl fyrir
Straumnes. Þéttur ísrani, land-
fastur, teygir sig um 3 sj'óm. í
NV. fpá Straumnesi. Allmikill is
er landfastur við Kögur og ganga
ísflákar þaðan ut frá landi og í
áttina að Straumnesi. Dreifðir ís-
jakar eru., þaðan og allt austur
fyrir Horn,
Sauðárkróksbúar,
Skagfirðingar
Framsóknarfélag
Sauðárkróks held
ur fund laugar-
daginn 25. þ. m.
kl. 1,30 síðdegis
að Hótel Mæli-
felli.
Umræðuefni:
Uppbygging iðn-
aðar. Frummæl-
andi Helgi
Bergs framkvæmdastjóri. Stuðn-
ingsfólk Framsóknarflokksins er
hvatt til að fjölmenna á fund
inn. Stjórnin.
Fræðsluráðstefna BSRB
var haldin á Akranesi
Reykjavík, þriðjudag.
A sunnudaglnn var haldinn á
Hótel Akranes fræðsluráðstefna á
vegum Bandalags starfsmanna rík
is og bæja fyrir Mýra og Borg-
arfjarðarsýslu og Akranes. Ráð-
stefnuna sóttu uni 40 manns, og
henni stjórnaði Einar Ólafsson,
og Guðmundur Bjömsson.
Er Einar Ólafsson hafði sett
ráðstefnuna fyrir hönd fræðslu-
nefndar BSRB voru flutt þrjú er-
indi. Kristján TJiorlaeius formað-
ur BSRB flutti erindi um skipu-
lag og starf samtakanna. Harald-
ur Steinþórsson varaformaður
BSRB hélt erindi um samnings-
rétt og kjarasamninga opinberra
starfsmanna og einnig, í forfölT-
um Guðjóns B. Baldvinssonar, um
réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna. Á eftir voru fyrir-
spurnir og umræður og ríkti á-
nægja meðal þátta'kenda um ráð-
stefnuna, sem stóð frá h'álf ell-
efu til klukkan að ganga sjö á
sunnudag.
BSRB áformar að halda áfram
á sömu braut, og verða næstu
fræðsluráðstefnur væntanlega í
Keflavík og á Akureyri.
Fyrirlestrar og þátttakendur á fræðsluráðstefnu BSRB,
Kröfur í þrotabú L og L 16 millj.
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Kröfur í þrotabú ferðaskrifstof
unnar Lönd og Leiðlr h.f. nema
rúmum 16 miUjónum króna.
Hæsta krafan er vegna leigu á
skemmtiferðaskipinu Regina Mar
is og hljóðar upp á 310.700 vest-
ur-þýzk mörk. Á núverandi gengi
íslenzkrar krónu er þessi upphæð
um 6,8 mllljónir. Nokkrum mán-
uðum eftir að ferðaskrifstofan
tók skipið á leigu árið 1967 var
gengi krónunnar lækkað um 24%
Á síðasta ári var gert enn betur
og gengið lækkað um 35%. Mið-|
að við verðglldi ísl. krónu hækk-;
ar því krafan mikið.
Erlendar kröfur í þrotabúið eru
rúmar 14 milljónir króna. Til ein
hverra af þessum skuldum var
stofnað eftir gengisfellinguna
1967, en aðrar eru eldri.
Innlendu kröfurnar eru tæpar
þrjár milljónir, og eru forgangs-
kröfur 15 milljónir. Eignir fyrir-
tæ'kisins eru aftur á móti metn-
ar á 360 þúsund krónur. Sex aðil-
ar gera launakröfur í þrotabúið
frá 35 þúsund krónum upp í 233 j
þúsund krónur. Aðrar innlendar ■
kröfur eru frá Gjaldheimtunni ogj
tollstjóra. Guðmundur Jónasson'
gerir 806 þúsund króna kröfu í
þrotabúið og Loftleiðir 753 þús-
und kr.
lega ferðaskrifstofui og hótel.
Þýzk ferðaskrifstofa gerir 565
þúsund króna kröfu o.g önnur
342 þúsundir, hótel í Kaupmanna-
höfn 356 þúsund kr. írsk ferða-
skrifstofa 364 þúsund kr. Hótel í
London 218 þúsund kr. og svona
má lengi telja.
Skuldum þessum er safnað á all
löngum tíma og er í rauninni ekki
eins óeðlilegt að ferðaskrifstofa
geti safnað jafnmiklum skuldum
og raun ber hér vitni. Viðskipti
ferðskrifstofa og annarra sem sjá
um ferðamannaþjónustu byggjast
að miklu leiti A gagnkvæmu
trausti. Ferðalög -,iórra hópa eru
oft ákveðin með tiltölulega stutt-
um fyrirvara. Ferðaáætl'anir geta