Tíminn - 22.01.1969, Qupperneq 16
Áfengís- og tóbakssmygS
í þrem skipum í Rvík
— á 3ja hundrað flöskur af 75% vodka og 30 þús. sígarettur fundnar í
„Lít á mótið
sem upphitun“
— segir Friðrik Ólafsson í viðtali við Tímann.
EKHReykjavík, þriðjudag.
TÍMINN hafði í dag samband
við Friðrik Ólafsson á Kennemer-
duin-hóteli í Bevenvijk, Hollandi.
Friðrik lét nokkuð vel af sér, sagði
ist hafa gert jafntefli við Ree í
sjöundu umferð, sem tefld var í
dag. Hins vegar kvað hann skákina
við Doda hafa verið herfileg mis-
tök, sem hann gæti varla fyrirgef
ið sér. — Þetta stafar líklega bara
Skógafossi.
Sátta-
fundir
í nótt
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
f kvöld klukkan átta
hófst þriðji sáttufundurinn í
Alþingishúsinu, og jafnframt
sá fyrsti síðan öll sjómanna
félögin er boðað höfðu verk
fall, hafa hafið verkfall.
Sáttasemjarar, Torfi Hjart
arson og Logi Einarsson sátu
á fundum með deiluaðilum
í Alþingishúsinu, og var
engar sérstakar fréttir þar
að fá undir miðnættið í
nótt. Deiluaðilar sátu þá á
fundum, hver í sínu flokks-
herbergi, en sáttasemjarar
töluðu síðan við aðila til
skiptis. Er talið að sáttasemj
arar hafi lagt fram á fundin
um í kvöld sáttatilboð.
Búið mun hafa verið að
veita einum fjórum bátum
undanþágu til róðra ,til að
afla fisks fyrir Reykvíkinga,
en undanþágan mun hafa
verið afturkölluð síðar.
af æfingaskorti mínum, ég hef
ekki teflt að neinu ráði í 7—8
mánuði og það vill segja til sin
á svona sterku móti. En þetta mót
var nú öðrum þræði hugsað sem
upphitun og endurþjálfun fyrir
frekari átök.
Úrslitin í sjöundu umferð urðu
annars þessi: Partisch vann Med-
ina, Doda vann Osojic, Geller vann
Donner, Botvinnik og Ciric eiga
biðskák, og er staða Botvinniks
betri. Biðskák varð hjá Keras og
Langeweg, og er Keres i svipaðri
aðstöðu og Botvinnik. Benkö og
van Scheltinga gerðu biðskák og
hefur Benkö heldur, betur, og Lom
bardi gerði jafntefli við Kavalek.
Þar sem svo margar biðskákir
urðu í 7. umferð er ástæðulaust
að gefa upp stöðuna, en í morg-
un tefldu Kavalek og Medina bið-
skák sína úr sjöttu umferð.
Á morgun eiga skákmenn frí á
Beverwijk mótinu, en teflt verður
á fknmtudag, föstudag og laugar
dag. Friðrik teflir við Donner í
8. umferð.
100 atvinnulausir á
Neskaupstað
ÞÓ-Neskaupstað, þriðjudag.
í dag var búið að skrá um
hundrað manns á atvinnuleysis-
skrá hér í bænum, og langmestur
hlufinn er verkafólk, en einnig
iðnaðarmenn.
Hluti af smyglvarningnum, sem tollverðir fundu í Skógafossi. Búið
er að ganga frá áfenginu og tóbakinu í kössum, en sýnishorn af inni-
haldi þeirra er ofan á kössunum. (Tímamynd—GE).
I OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
I' Tollverðir fundu í dag á þriðja
hundrað flöskur af 75% vodka T
Skógafossi. Einnig fannst allmikið
magn af sígarettum. Um helgina
fundust á annað hundrað flöskur
af vodka sem smygla átti í land,
í togaranum Karlsefni og 36 flösk
ur voru gerðar upptækar í Mæli-
felli.
Skógarfoss kom til Reykjavíkur
i gær. Urðu tollverðir fljótlega
varir við að nokkrir skipverja
höfðu falið áfengi og tóbak í íbúð
um sínum. Var í gærkvöldi og í
dag gerð ítarleg leit í skipinu og
í kvöld voru komnar í leitirnar
' hátt á þriðja hundrað flöskur af
I vodka, allt 75% að styrkleika.
Einnig fannst mikið af sígarettum
og voru tollverðir í kvöld búnir að
gera nær 30 þúsund sígarettur upp
tækar. Leitin stendur enn yfir og
má því vera að meira magn smygl
varnings eigi enn eftir að finnast
í skipinu. Sex skipverja hafa játað
að vera eigendur að varningnum.
Skógafoss var að koima frá Ant
werpen, Rotterdam og Hamborg.
Ekki er enn upplýst í hvaða höfn
smygivarningurinn var tekinn um
borð í Skógafoss, en sá görótti
drykkur 75% vodka er framleidd
ur í Þýzkalandi.
Þegar leit lýkur og öll kurl
eru komin til grafar verður málið
afhent sakadómaraembættinu til
meðferðar, en áfengið og tóbakið
Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins.
S.l. laugardag og sunnudag
gerðu tollverðir leit í togaranum
Karlsefni. Fundust á annað hundr
að áfengisflöskur um borð, mest
vodka. Einn af yfirmönnum togar
ans játaði að hafa átt vínbirgð-
irnar.
Þá fundust um helgina 36 fflosk
ur af áfengi um borð í Mælifelli.
Játaði einn skipverja að vera eig-
andi vínsins.
Sauðburður hafinn á Baröaströnd!
KJ-Reykjavík, þriðjudag. I fengitími er liðinn. Eru það að
TÍMINN hafði spurnir af því öllu leyti eðlileg og heilbrigð
Iað á nokkrum bæjum á Barða- lömb, sem ærnar bera um þessar
strönd væru ær farnar að bera mundir, og er búizt við að fleiri
$ svona rétt eftir að venjulegur' ær beri á næstunni.
Grímseyingar sjá
sjónvarpið vel
talað um að setja þar upp endurvarpsstöð fyrir Norðurland.
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
— Þeir beindu hérna á okk
ur smá geisla frá Dalvík, og
, við sjáum sjónvarpið mjög vel
; hér í Grímsey, sagðl Guðmund
ur Jönsson fréttaritari Tím-
ans í Grímsey f dag. Myndin
og talið er mjög skýrt hvort
tveggja og erum við ánægðir
með að hafa fengið sjónvarpið
miklu fyrr en við bjuggumst
við — enda flnnst okkur að
við höfum frekar ástæðu til að
fá sjónvarp, en margir aðrir
landsmenn, sagði hann enn-
fremur.
Guðmundur sagði að nú töl-
uðu Siglfirðingar um að fá
sjónvarpsgeislann sendann frá
Grímsey, en áður hafði verið
talað um að Grímseyingar
fengju geisla frá Siglufirði. Þá
munu Húsvíkingar vera farn-
ir að hugsa til hreyfings, að
fá geisla frá Grímsey, enda
sást þar á milli lands og eyj-
ar. Guðmundur sagði að tækni
menu Landsímans hefðu
beint hluta af geisla Dalvíkur-
stöðvarinnar norður, og þetta
hefði orðið árangurinn. í
Grímsey eru nú tvö sjónvarps-
tæki, og búast má við að þeim
fjölgi mikið á næstunni.
Þess má geta í þessu sam-
bandi, að fyrir nokkru síðan
kom Jónas Guðmundsson sjó-
liðsforingi fram með þá hug-
mynd að reist skyldi ein alls-
herjar sjónvarpsendurvarps
stöð í Grímsey fyrir mestallt
Norðurland. Studdi Jónas
þessa hugmynd sína með þekk
ingu og menntun sem sjóliðs-
foringi, en margir voru ekki
trúaðir á hana, og að því er
hann sagði sjálfur í dag þá
Framhald á bls. 15
TÍMINN hafði samband við Guð
mund Sigurðsson á Brekkuvöllum,
og sagði hann að ær væru farnar
að bera á þrem bæjum í kring
um hann, og hefði fyrsta lambið
fæðst á nýársnótt. Allt væru þetta
eðlileg lömb, stór og falleg. Hjá
Steingrími í Nesi sagði hann að
væru bornar f jórar ær, og þar af
hefðu tvær verið tvílembdar. Ein
væri borin á Haukabergi, og
væri sú tvílembd, og ein væri
borin í Neðri-Rauðsdal. Nokkrir
dagar væru nú síðan síðasta ærin
hefði borið, en búizt væri við að
fleiri ær myndu bera á næstunni.
í fyrra bar þetta til á einum bæ
á Barðaströnd að ær fóru að bera
í janúar, og var þá um að ræða
6 eða 7 ær. Áður hefur þetta
ekki borið við á Barðaströnd.
Inflúensan jókst mjög
í kuldakastinu
SJ-Reykjavík, þriðjudag
Inflúensutilfellum fjölgaði mjög
snögglega í kuldakastinu um dag-
inn. í skýrslu frá skrifstofu borg
arlæknis um farsóttir i Reykjavik
vikuna 5.—11. jan. segir að in-
flúensutilfelli í borginni hafi þá
verið 628, þ.e.a.s þau sem tilkynnt
höfðu verið til lækna. En næstu
viku á undan voru tilkynnt inflú-
ensutilfelli mun færri, eða 503.
Að sögn Braga Ólafssonar aðstoð
arborgarlæknis voru tilkynnt in-
flúensutilfelli vikuna 12.—18.
einnig um 628, en þrátt fyrir það
taldi hann fulla vissu fyrir að in-
flúensufaraldurinn væri nú farinn
að réna nokkuð.
Nú hefur verið fullrannsakað á
tilraunastöðinni að Keldum, að
veiran, sem flensunni veldur er
hin illræmda A2 Hong Kong ’68,
og það síðan full sannað með end
urrannsókn í Lundúnum. Þeim
sem búnir eru að fá flensuna ér
þvú óhætt að vera rólegir, bei’"
fá hana efcki aftur í marga man-
uði. En blaðinu hafði borizt orð-
rómur um a? sú flensa, sem hér
hefur geisað væri alls ebki sú
rétta Hong Kong veiki, og menn
mættu því búast við hinu versta
á ný, þótt þeir hefðu kehnt sér
krankleiks í faraldrinum að und
anförnu. En þessar sögusagnir eru
sem sagt ekki á rökum reistar.
Hins vegar er eðli flensunnar það
Framhald a bls. 14