Vísir - 19.08.1977, Side 17
VISIR Föstudagur 19. ágúst 1977
17
Samtrygging Evrópugjaldmiðla
gefur góða raun
— hróefnaverð hœkkar hœgt
Miklar sveiflur urðu i dag á
gengi Bandaríkjadals. t fyrstu
hækkaði hann verulega i verði
en áður en gjaideyrismarkaðir
höfðu lokað í gær hafði hann
faliið til fyrra gengis. Búist
hafði verið við stöðugu gengi
dollars næstu daga en þver-
sagnarkenndar spár hafa valdið
ökyrrð á gjaldeyrismörkuöum.
t gærkvöldi var helst búist við
að dollarinn myndi falla næstu
daga þar eð ýmislegt bendir til
aö hann hafi stigið i verði um-
fram þaðsem staðreyndir efna-
hagslifs Bandarikjanna leyfa.
Lítil hreyfing á Evrópu-
gjaldmiölum.
Litiar breytingar hafa oröið á
gengi þeirra gjaidmiöla, sem
samtryggðir eru I hinum svo-
kallaða snáki. Hollenska gyllin-
ið virðist þó hafa styrkst og
sænska krónan falliö eilitið en
sú danska staðið nokkuð stöðug.
Snákurinn gerir sitt gagn.
1 snáknum eru helstu gjald-
miðlar Evrópu aðrir en enska
pundið italska liran og spánski
pesetinn. Snákurinn var tii þess
stofnaður að koma i veg fyrir
sveifiur á gjaldmiðlum landa
Efnahagsbandaiagsins en þess-
ar sveifiur koma sér mjög illa i
þeim miklu og óhindruðu við-
skiftum sem eiga sér stað milli
þessara þjóða. Hugmyndin var
að fyrir lok þessa áratugs yrðu
gjaldmiðlar allra landa banda-
lagsins samtryggðir og gengi
þeirra haldið stöðugu gagnvart
öörum Efnahagsbandalags-
gjaldmiðlum. Þetta átti siðan aö
leiða til eins gjaldmiðils fyrir
löndin niu, sem bandalagiö
mynda. Bretar, Irar og ítalir
hafa á hinn bóginn ekki treyst
sér til þess að ganga til sam-
starfs við aðrar þjóðir banda-
lagsins og hafa þessar þjóðir
haldið gjaldmiðlum sinum utan
við snákinn. Sviar, sem ekki
eiga aðild að bandalaginu en
hafa mikil viðskifti viö Iönd þess
hafa hins vegar gengiö I snák-
inn. Franski frankinn var dreg-
inn útúr snáknum i fyrra, þegar
hann tók að falla mjög I veröi en
hefur núverið settur inn að nýju.
Gjaldmiðlarnir sjö hafa haldist
stöðugir gagnvart hver öðrum
um skeið að þvi undanteknu að
markið og hollenska gyllinið
hafa stigið en sænska og danska
krónan failið.
Nú vilja allir eiga pund.
Mikill straumur fjármagns
hefur verið til Englands á sið-
ustu dögum. Englandsbanki
hefur þurft að gripa til ákveð-
inna aðgerða til þess að halda
gengi pundsins niðri. Fjár-
straumur þessi myndi annars
þrýsta gengi pundsins of hátt
miðað við aöstæður i bresku
efnahagslifi. Búist er þó viö að
pundið muni hækka i verði eitt-
hvað næstu daga en þó ekki
veruiega.
Vextir á niöurleiö i Sviss.
Ákveðið hefur veriö að halda
vöxtum i Sviss mjög lágum tii
þess aö hleypa auknu lifi i efna-
hagslifið. Peningaframboð
verður aukið en verðbólga i
Sviss en nánast engin þannig að
aðgerðir af þessu tagi eru
mögulegar án mikilla hliðar-
verkana. Svissneski frankinn
hefur hækkað hægt en töðugt i
verði á þessu ári eins og raunar
undanfarin ár og nemur gengis-
hækkunin um það bil 2% á þessu
ári gagnvart gjaldmiðlum .15
helstu viðskiftalanda Sviss.
Frakkar á uppleið en Sví-
ar enn á niðurleið.
Miklir erfiöleikar hafa verið I
frönsku efnahagslifi á siðustu
misserum en núvirðist sem
framieiðsla sé að aukast og
vöruskiftajöfnuður að lagast. t
siðasta mánuði var hallinn á
viðskiftum Frakka við útlönd
tæppir 800 miiljónir franka en
var i mánuðunum á undan 1.2
milljarðar og 2.3 milljarðar.
Hækkun vöruverðs í Sviþjóð
var nærri eitt prósent i siðasta
mánuði og var verðbólga siö-
ustu tólf mánaða til júliloka tæp
13%. Þetta er hærra en nokkru
sinni frá striðslokum og hærra
en meðaltalsverðbólga við-
skiftalanda Svia. 1 Vestur
Þýskalandi mesta viðskifta-
landi þeirra var verðbólgan sið-
ustu 12 mánuði t.d. aöeins rúm
4%. Af þessu eiðir að sænska
krónan stendur mjög veikt og er
búist við aö hún verði felld í
annað sinn á þessu ári seinna i
haust eins og skýrt var frá i
þessum þætti i síðustu viku.
Kaffi og kakó lækkar
Verð á kaffi hefur farið lækk-
andi á siðustu mánuðum eins og
frá var skýrt I þessum þætti I
siöustu viku. Sameinuðu
þjóðirnar hafa nú sent frá sér
skýrsiu, þar sem þvi er spáð að
um frekari verðlækkun verði að
ræða á þessari vöru seinna á ár-
inu. Kakóverð er einnig á niður-
leið og má búast við þvi að það
fylgi nokkuð þróun kaffiverðs.
Verð á kaffi er nú minna en
helmingur af því veröi sem fyrir
það fékkst á mörkuöum fyrir
nokkrum mánuðum.
Verö flestra annara hráefna
er á uppleiö. Hráefni hafa flest
hækkaö i verði á siðustu þrem
misserum en þau féllu mjög á
meðan kreppan stóð sem hæst á
Vesturlöndum. Ekki er þó búist
við aö hráefni hækki m jög ört en
slikt gæti kippt fótunum undan
þeim bata, sem nú á sér stað I
efnahagslifi heimsins. Aö und-
anförnu hefur verið rætt um að
koma meira jafnvægi á verð
lagi hráefna sem seijendur og
kaupendur hafa enn ekki getað
komið sér saman um neitt kerfi
til aö koma I veg fyrir sveiflur.
JOH
Bílaleiga
Kjartansgötu 12 — Borgarnesi
Simi 93-7395.
Volkswagen
Landrover
til lengri og skemmri ferða
afslóttur á
öllum okkar vörum
Sófasett, garðstólar, borð,
gólfdúkar, gólflím, málverk,
skólaskrifborð,
einstaklingsrúm, skatthol
og margt fleira.
Opið laugardag kl. 9 — 4
LÍTIÐ INN
Austurmörk 4, sími 99-4330,
Hveragerði
FÉLAGSSTARF OG FUNDIR
Frá Ferðafélagi tslands.
Eins og flestum er
kunnugt verður Ferða-
félag tslands 50 ára þann
27. nóv. n.k. Þeirra tima-
móta mun félagið minn-
ast með margvislegum
hættiá þessu ári og hefur
sumt af þvi verið þegar
framkvæmt. Eitt atriðið í
þessari afmælisdagskrá
félagsins voru skipulagð-
ar gönguferðir á Esju.
Fyrsta ferðin var farin 7.
mai s.l. og var siðan
gengið á fjallið sam-
kvæmt fyrirfram gerðri
áætlun allt til 12. júni, en
þá höfðu verið farnar 10
ferðirá fjallið og reyndist
þátttakan margfalt meiri
en búizt var við, eða
mætti 1300 hundruð
manns. bátttakendur
voru skráðir og að þess-
um 10 gönguferðum lokn-
um var dregið um sex
helgarferðir með félag-
inu, sem voru verðlaun til
þeirra er áttu þá miða,
sem dregnir voru út.
Esjugöngum hefur ver-
ið haldið áfram siðan, en
ekki eftir fastri áætlun og
hefur verið ákveðið að
haldá þeim áfram til 2.
okt. samkvæmt eftirfar-
andi töflu:
laguardaginn 20. ágúst
sunnudaginn 28.ágút
laugardaginn 4.sept.
laugardaginn ll.sept.
sunnudaginn 18. sept.
laugardaginn 24.sept
sunnudaginn 2.okt.
Þeir ,sem hafa tekið
þátt i Esjugöngum
félagsins eftir 12. júni
hafa verið skráðir og það
sama mun gilda um þá,
sem eiga eftir að koma i
gönguna. Er siðustu
gönguferðinni 2. okt. er
lokið mun enn verða
dregið um verðlaun fyrir
þátttökuna. Verðlaunin
munu verða árbækur
félagsins að eigin vali
fyrir ákveðna upphæð
Þetta verður tilkynnt sið-
ar.
Miðvikudagur 17. ág kl.
08.00 Þórsmerkurferð.
Farseðlar og nánari uppl.
á skrifstofsnni.
. Sumarleyfisferðir
16. ág. 6 daga ferð um
Mýrdal, öræfasveit og
Ilornafjörð. Komið á alia
fegurstu og þekktustu
staðina á þessari ieið.
Giest i húsum. Farar-
stjóri: Jón A. Gissurar
19. ág. 6 daga ferð til
Esjufjaila i Vatnajökli.
Gengið þangað eftir jökl-
inum frá Jökullóninu á
Breiðamerkursandi. Gist
allar næturnar i húsum
Jöklarannsóknarfélags-
24. ág. 5 daga ferð norður
yfirHofsjökul.Gist f húsi.
25. ág. 4-ra daga berja-
ferð i Bjarkarlund.
Farmiðar og nánari
upplýsingar á skrif-
stofunni.
Ferðafélag Islands.
Esjugöngur Ferðafélags
Islands i haust.
Laugardagur 20. ág.
Sunnudagur 28. ág. '
Laugardagur 4. sept.
Laugardagur 11. sept.
Sunnudagur 18. sept.
Laugardagur 24. sept.
Sunnudagur 2. okt.
ÝMISLEGT
Kirkjuturn Hallgríms-
kirkju er opinn á góð-
viðrisdögum frá kf. 2-4
siðdegis. Þaðan er ein-
stakt útsýni yfir borgina
og nágrenni hennar að
ógleymdum fjallahringn-
um i kring. Lyfta er upp f
turninn.
Ásgrimssafnið, Berg-
stæðastræti 74, er opið
alla daga nema laugar-
daga frá klukkan 1.30-4.
Orlof húsmæðra
Seltjarnamesi, Garðabæ
og Mosfellssveit veröur i
orlofsheimili húsmæðra i
Gufudal, ölfusi. Fyrir
konur með börn 30.7-6.8
Fyrir konur eingöngu 20-
27. ágúst. Upplýsingar f
simum 14528 (Unnur)
42901 (Þuriður 7-8 sfðd.)
66189 (Kristin 7-8 siðd.)
Fundir AA-samtak-
anna í Reykjavík og
Hafnarfirði
Tjarnargata 3c:
Fundir eru á hverju
kvöldi kl. 21. Einnig eru
fundir sunnudaga kl. 11
f.h., laugardaga kl. 11 f.h.
(kvennafundir), laugar-
daga kl. 16 e.h. (spor-
fundir). — Svaraö er i
sima samtakanna, 16373, v
eina klukkustund fyrir
hvern fund til upplýsinga-
miðlunar.
Austurgata 10, Hafnar-
firði:
mánudaga kl. 21.
Tónabæi:
Mánudaga kl. 21. —
Fundir fyrir ungt fólk (13-
30 ára)..
Bústaðakirkja:
briðjudaga kl. 21.
Laugarneskirkja:
Fimmtudaga kl. 21. —
Fyrsti fundur hvers
mánaðar er opinn fundur.
Langhoitskirkja:
Laugardaga kl. 14.
Ath. að fundir AA-sam-
takanna eru lokaðir
fundir, þ.e. ætlaðir alkó-
’hólistum eingöngu, nema
annað sé tekið fram, að-
standendum og öðrum
velunnurum er bent á
fundi Al-Anon eða Ala-
teen.
AL-ANON, fundir fyrir
aðstandendur alkóhó-
lista:
Safnaðarheimili
Grensáskirkju:
briðjudaga kl. 21. —
Byrjendafundur kl. 20.
Langholtskirkja:
Laugardaga kl. 14.
ALATEEN, fundir fyrir
bö,-n (12-20 ára) alkó-
hólista:
Langholtskirkja:
Fimmtudaga kl. 20.
Fréttatilkynning:
Dregiðhefur verið i happ-
drætti Islenskrar Réttar-
verndar. Upp komu eftir-
talin númer:
•45.636 - 3.326 - 16.195 -
20.003- 1.030-6.545 - 19.720
- 20.004 - 16.978 - 6.590 -
16.464.
Nánari upplýsingar i sim-
um 27282 eða 35222.
YMISLEGT
Föstud. 19.8 kl. 20
Hábarmur — Laugar og
víðar. Frjálst er f tjöldum
I fjallasal. Fararstj. Jón
I. Bjarnason.
Föstud. 26.8.
Aðalbláberja ferð til
Húsavikur. Einnig
gengnar Tjörnesfjörur.
Fararstj. Einar Þ. Guð-
johnsen. Upþlýsingar og
farseðlar á skrifst.
Lækjarg. 6 simi 14606. —
Útivist.