Vísir - 22.08.1977, Síða 4
Mánudagur 22. ágúst 1977 VISIR
L
Jón Ormur Haildórsson
öngþveiti á Heathrow
lokast flugvöllurínn um nœstu helgi?
Miklar tafir hafa orðið á öllu
flugi frá Heathrow-flugvelli i
London síðustu daga vegna að-
gerða flugumferðarstjóra sem
eiga i launadeilu. Otlit er fyrir að
mestöll umferð um flugvöllinn
geti stöövast um næstu helgi en
Geim-
skoti
frestað
vegna
bilana
Bandariskir vísindamenn hafa
ákveöið að seinka um tvo daga
geimskoti á Voyager 1, sem er
systurskip Voyager 2 sem nil er á
leið til Júpiters. Astæðan fyrir
seinkuninni er, að visinda-
mennirnir telja sig geta komið i
veg fyrir að þau vandræði sem
urðu með útbúnað Voyager 2
endurtaki sig meö Voyager 1.
Voyager 2 stefnir nú i átt til
Júqiters og virðist allt ganga eftir
áætlun. Hraði geimskipsins er
nær 40.000 kilómetrar á klukku-
stund en þrátt fyrir þann mikla
hraða munu tvö ár liða uns það
nær áfangastað. SysturskipiðVoy-
ager 1 mun ná áfangastað viö plá-
netuna Júpiter tveimur mán-
uðum á undan Voyager 2 þó það
leggi viku seinna af stað.
Mareos
slakar
til á
Fikps-
eyjum
Marcos, forseti FilÍRiseyja,
hefur tilkynnt að útgöngubanni
sem i gildi er að nóttu til á eyj-
unum verði senn aflétt og að
efnt verði til sveitarstjómar-
kosninga innan skamms.
Marcos, sem stjórnaö hefur eyj-
unum meö herlögum frá þvi
árið 1972, tilkynnti ennfremur
að pólitiskum föngum, sem ekki
hafa hlotið dóm verði sleppt úr
haldi.
Minni innanlandsókyrrð er nú
á Filippseyjum en undanfarin
ár enþó var tilkynnt um helgina
að skæruliðar aðskilnaðarsinna
I suðurhluta landsins hefðu
oröið 11 manns að bana i árás.
þá hafa flugumferðarstjdrar hót-
að fara I verkfall til áréttingar
kröfum sínum. Starfsbræður
verkfallsmanna á Gatwick flug-
velli við London hafa gripið til
svipaðra aðgeröa og getur komið
til neyðarástands um næstu helgi
ef báðir flugvellirnir lokast. Lagt
hefur verið til að herinn taki við
stjórnflugvallanna ef til verkfalls
kemur en ekki er talið að stjórn
Verkamannaflokksins muni
treysta sér til að gripa til slíkra
aðgerða.
Heathrow-flugvöllur er stærsti
flugvöllur Evrópu og fara um 900
þotuflug um völlinn á degi hverj-
um. t gær varð að aflýsa brottför
43þota frá vellinumog meðaltafir
hjá þeim flugvélum, sem flugu
frá vellinum voru um 5 klukku-
stundir. Allt flug frá íslandi til
Englands fer um Heathrow-flug-
völl.
Heathrow: Lokast þessi stærsti f lugvöllur Evrópu um næstu helgi?
Almennt
herót-
boð í
Eþíópíu
Mengistu þjóðarlei ðtogi
Eþíóplumanna hefur sent út al-
mennt herútboð I landinu. Verða
tugþúsundir manna kvaddir i
herinn til viðbótar þeim 60.000,
sem þar eru fyrir. Leiðtoginn
sagði I ávarpi til þjóðarinnar
um helgina, að Eþiópía berðist
nú fyrir tilveru sinni sem riki.
Sagði Mengistu, að landsmenn
ættu i höggi við innrás Sómala
og tveggja bandalagsþjóöa þess
i austurhluta landsins og i
norðri þyrftu þeir að berjast við
skæruliða, sem nytu stuðnings
arabaþj óðanna. Mengistu
viðurkenndi i fyrsta sinn, að
Eritreumenn heföu náð á sitt
vald tveim mikilvægum bæjum
i héraðinu.
Talið er, að frelsishreyfing
Eritreumanna ráði nú mestum
hluta héraðsinss og að Sómalir
og skæruliðar þeim hliðhollir
hafi á sinu valdi mikil landflæmi
i austur Eþiópiu. Eþiópiumenn
halda þvi fram, að þeir hafi að
mestu þurrkað út flugher Só-
mala með þvi að skjóta niður 18
MIG þotur en flugher Sdmala
mun ekki öllu stærri en það.
♦><
Bcgin: Nýtur stuðnings
meirihluta lsraela þrátt
fyrir ósveigjanlega ‘ stefnu
sina.'
Begin nýtur
óhemjuvin-
sœlda i ísrael
Forsætisráðherra ísraels
Manachem Begin og flokkur
hans, hið hægri sinnaða
Likud-bandalag, njóta stuðn-
ingsmikilsmeirihluta Israela,
ef marka má nýgerða skoð-
anakönnun. Þessar niður-
stöður eru mjög þýðingar-
miklar fyrir Begin, sem nú
stendur i samningaviðræðum
um framtið Israeelsrikis.
Samkvæmt könnuninni telja
70% Israela að Begin sé besti
forsætisráðherra sem völ sé á
og meirihluti aðspurðra sagð-
ist mundu kjósa Likud-banda-
lagið, sem hlaut um þriðjung
þingsæta við siðustu kosn-
ingar, ef efnt yrði til kosninga
á næstunni. Verkamanna-
flokkurinn sem hefur stjórnað
landinu mestan part siðan það
hlaut sjálfstæði frá Bretum
árið 1947 myndi samkvæmt
könnun þessari fá aöeins rúm-
an fjórðung þingsæta ef til
kosninga kæmi.
Begin hefur af ýmsum verið
talin öfgamaður hvað varðar
afstöðu til málefna
Mið-Austurlanda og mjög
hægrisinnaður hvað varðar
afstöðu til annarra þátta
stjórnmála og var þvi haldið
fram að hann myndi kljúfa
þjóðina stjórnmálalega.
Fjöldamorð í Rhódesíu
5000 hafa fallið frá upphafi átaka
Skæruliðar i Rhodesiu frömdu
um helgina eitt alvarlegasta
hermdarverk sem framiö hefur
verið i landinu. Skæruliðarnir,
sem berjast fyrir svartri meiri-
hlutastjórn i landinu, söfnuðu
saman ibúum þorps eins við
landamæri Mósambique og skutu
þar til bana 16 þeldökka landa
sina. Negrarnir höfðu það til saka
unnið að vinna fyrir hvitan land-
eigenda.
Hernaðarryfirvöld i Rhodesiu
tilkynntu i gær, að 16 skæruliðar
hefðu fallið i bardögum siðustu
daga og að fimm óbreyttir borg-
arar hefðu verið skotnir af stjórn-
arhernum fyrir að aðstoöa skæru-
liða. 1 sömu frétt var aðeins getið
um að einn hermaður hefði fallið.
Frá þvi að átök hófust i landinu
hefur 371 hermaður fallið i átök-
um við skæruliða en samkvæmt
tölum stjórnarinnar hafa nær 3500
skæruliðar verið vegnir. Rúm-
lega 1100 óbreyttir borgarar hafa
fallið fyrir hendi skæruliða og
stjórnarhermanna á sama tima.
Flestir hinna óbreyttu borgara
voru þeldökkir.
Fjármagna öfgasamtökin
með fjárkúgunum
Irski lýðveldisherinn og öfga-
samtök mótmælenda á Norður-
Irlandi stunda stöðugt umfangs-
meiri glæpastarfsemitilþess að
fjármagna hreyfingarnar.
Meginhluta tekna þessara öfga-
samtaka er nú aflað með skipu-
lagðri glæpastarfsemi, en auk
vopnakaupa þurfa samtökin
standa undir umfangsmikilli
starfsemi i Belfast og viöar I
héraðinu. Þannig greiða sam-
tökin bætur fjölskyldum þeirra
liðsmanna sinna, sem i átök-
unum falla og sjá fyrir fjöl-
skyldum þeirra, sem fangels-
aðir eru fyrir aðildi sina að
samtökum þessum.
Einna gróðavænlegust við-
skipti samtakanna eru, fjárkúg-
un, en samtökin neyöa flestar
sölubúðir, hótel og krár til að
greiða sér fast gjald. í staðinn
lofa samtökin að sprengja ekki
upp húsnæði viðkomandi. A
þennan hátt hefur öfgamönnum
tekist að afla sér sem svarar
undruðum milljóna islenskra
króna.
Þetta er unnusta Elvis Presley, Ginger Alden, sem stendur
þarna við málverk af hinum látna söngvara. Móðir Alden segir
að þau skjötuhjúin hafi ákveðið að giftast um næstu jól.
Demantshringurinn á fingri Alden er gjöf'frá Presley.
Fundu nœr
þrjú tonn
af hassi
Hafnaryfirvöld i borginni
Heraklion á Krit gerðu I gær
upptæk tæp þrjú tonn af hassi.
Hassið var að verðmæti
semsvarar nær 6 milljörðum
islenskra króna. Hassið var
um borð i skipi, sem var að
koma frá Lfbanon. Talið er að
koma hafi átt hassinu á mark-
að i Hollandi en hassið var
hreinsað og tilbúið til neyslu.
Yfirvöld á Krit sendu menn
um borð i skipið, sem er I eign
grisks skipafélags þegar það
var á siglingu undan ströndum
Kritar.