Vísir - 11.11.1977, Page 3
3
VÍSIR
Föstudaeur 11. nóvember 1977
Flugsamgöngur við um
heiminn hafa sérstöðu
sem öryggismál
„Öheftar flugsam-
göngur íslands við um-
heiminn eru ekki venju-
legt hagsmunamál, held-
ur öryggismál. Því öryggi
má ekki eyða í eldi verk-
falla og vinnudeilna",
segir í ályktun sem stjórn
Flugleiða hefur sam-
þykkt.
1 kjölfar nýafstaðinna vinnu-
stöðvana, sem lömuðu flugsam-
göngur til og frá landinu um
tveggja vikna skeið lýsir stjórn
Flugleiða áhyggjum sinum
vegna tiðra verkfalla sem raska
eða stöðva rekstur fyrirtækisins
og grafa undan afkomu þess.
Stjórnin minnir á að flugsam-
göngur við Island hafi algjöra
sérstöðu umfram samgöngur til
og frá öðrum löndum, vegna
legu landsins og einangrunar.
Séu flugsamgöngur rofnar,
brestur sá strengur sem tengir
Island viö umheiminn á ótal
sviðum, viðskiptalegum, menn-
ingarlegum, persónulegum og
ekki sist öryggislegum.
Stjórn Flugleiða hvetur
stjórnvöld, samtök vinnuveit-
enda og stéttarsamtök til þess
að leita nýrra úrræða i þessum
efnum. —sg
Lögbannsmálið á Neskaupstað:
„Þeir vilja
reisa ráðhús
á lóðinni"
„Bæjaryf irvöld hafa
ekki gef ið mér nein viðhlít-
andi svör um, hvers vegna
mér var neitað um leyfi
fyrir þessari viðbyggingu,
en það eru uppi ráðagerðir
um að byggja ráðhús þar
sem hús mitt stendur",
sagði Pétur Óskarsson
byggingameistari á Nes-
kaupstað í samtali við Vísi.
Viðbyggingin sem hann byggði
við hús sitt þrátt fyrir lögbann
stendur enn óhögguð, en yfirvöld
gáfu honum frest til 5. nóvember
að rifa hana.
,,Eina skýringin sem ég hef
fengið á neitun fyrir leyfinu er sú
að húsið muni þá hækka i verði og
bæjarsjóður geti þá ekki keypt
húsið. Leiguréttur á lóðinni er
hins vegar ekki laus fyrr en eftir
25 ár og ef þeir fara ekki út i beint
eignanám þá get ég ekki séð
hvernig þeir geta staðiö á neitun-
inni”, sagði Pétur ennfremur.
Hús Péturs stendur að Egils-
braut 9 og er miðsvæðis i bænum
á mjög góðum stað. Hann sagði
að þarna vildu ýmsir láta byggja
ráðhús en um það væri ekki sam-
staða i bæjarstjórn og engin aug-
lýsing um breytt skipulag hefur
komið fram.
Pétur Öskarsson sagði aö það
væri hart að þurfa að standa i
hörkudeilum til þess að byggja 26
fermetra viðbyggingu i þeim til-
gangi einum að bæta við lélegan
húsakost fjölskyldunnar.
Bæjarstjórn Neskaupstaðar lét
setja lögbann á viðbygginguna og
setti 250 þúsund króna tryggingu.
Viðbyggingin reis samt sem áöur
og hefur fógeti málið nú til með-
ferðar. Þá óskaöi bæjarstjórn eft-
ir þvi við byggingarnefnd að hún
ógildi löggildinu Péturs sem
bvggingameistara þar til hann
rííi bygginguna. .
Að sögn Loga Kristjánssonar
bæjarstjóra er málið nú i höndum
lögfræöings bæjarins.
—SG
Vilja upplýsingar um
samskiptin við
fulltrúa Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins
,,Barátt uhrey fingi n gegn
heimsvaldastefnunni” hefur sent
frá sér orðsendingu, þar sem þess
er farið á leit „við Islensk stjór.n-
völd, að þau geri héðan I frá opin-
berlega grein fyrir öllum sam-
skiptum embættismanna rfkisins
við IMF og við systurstofnun
þess, hinn svokallaða Alþjóða-
banka”.
1 orösendingunni er þvl lýst yf-
ir, að IMF — eða alþjóða gjald-
eyrissjóðurinn — sé tæki Banda-
rlkjanna og hafi það markmið
,,aö koma þjóðum heimsins á
klafa fjölþjóða banka og auö-
hringa”. Fulltrúar sjóðsins hafa
undanfarna daga átt viðræður við
islenska ráðamenn hérlendis.
— ,esj
MEGAS OG SPIL-
VERKIÐ SAMAN Á
NÝRRI PLÖTU
Megas og Spilverk
Þjóðanna hafa gert nýja
hljómplötu, „Á bleikum
náttkjólum", sem Iðunn
gefur út. Þar eru flutt
Ijóð og lög AAegasar.
„Þessi nýja plata Megasar og
Spilverksins er ólik fyrri plötum
Megasar að þvi leyti, að hann
sýnir á köflum meiri hlýju en
áður. Eri á þessari plötu er einn-
ig aö finna efni og flutning, sem
vafa laust mun hneyksla
marga, svo sem tvö lög sem
flokkast gætu undir svonefnt
ræflarokk”, segir I frétt frá út-
gefenda.
Auk Megasar og Spilverks
Þjóðanna leika á plötunni Karl
Sighvatsson, Helgi Guðmunds-
son, Eggert Þorleifsson og
Viðar Alflreðsson.
—ESJ
Bahamakynning 10.-16. nóvember
P í samvinnu við Flugleiðir hf. efnir Hótel Loftleiðir til Bahama-
kynningar í hótelinu dagana 10. - 16. nóvember n.k.
Framreiddur verður þjóðarréttur Bahamabúa, Conch fritters
(skelfiskur).
Hin víðkunna hljómsveit Count Bernadion kom beint frá
Bahamaeyjum til þátttöku í þessari kynningu. Hljómsveitin
flytur fjörug og fjölbreytt skemmtiatriði af þeim léttleika og
lífsgleði, sem einkennir íbúa Karabísku eyjanna.
Vinningur: Flugfar til Bahamaeyja fyrir tvo.
Matarmiði gildir sem happadrættismiði. Vinningurinn.flugfar
til Bahamaeyja fyrir tvo verður dreginn út 21. nóvember n.k.
Spariklæðnaður
Borðpantanir hjá veitingastjóra í síma 22321
HÓTEL
LOFTLEIÐIR