Vísir - 11.11.1977, Blaðsíða 6

Vísir - 11.11.1977, Blaðsíða 6
Föstudagur 11. nóvember 1977 vism Spáin gildir fyrir laugar daginn 12. nóvember. Hriiturinn 21. mars—20. april Þú hefur skemmtilegu hlutverki aö gegna i dag. Þú þarft að stjórna einhverjum fram- kvæmdum i dag, sem munu reyna mjög á hæfileika þina. Nautiö 21. april-21. mai Einhverjar breytingar eru fyrirsjáanlegar á högum þinum i dag. Hindraðu ekki fram- kvæmdir sem eiga sér stað á heimili þinu. Tviburarnir 22. mai—21. júni Þú skalt treysta á áreiðanleika annarra i dag. Þetta er góður dagur til að eyða i lærdóm eöa rannsóknarstörf. Vinur þinn hefur sömu löngun og þú. Krabbinn 21. júnl—23. júli Þú verður mjög heppin(n) á sviði fjármála i dag. Þú gætir gert mjög góð kaup. Gerðu ráð- stafanir til að ná einhverjum samningi. Ljónið 24. jiíll—23. ágúst Þú kemst i góð sambönd i dag og færð tækifæri til ferðalaga. Biddu ekki eftir, að hlutirnir gerist af sjálfu sér. Taktu frum- kvæmið i þinar hendur. Meyjan Ww 24- ágúst—23. sept. Þú sérð hlutina i nýju ljósi i dag og finnur lausn á einhverju máli, sem þér hefur fundist erfitt aö leysa. Framkvæmdu hlutina strax. , Vogin \Ii 24. sept. -23. okt. Þér gengur vel að umgangast og vinna með öðru fólki. Þú kynnist einhverri persónu, sem kemur til með að veröa góður vinur þinn seinna. Drekinn 24. okt.—22. nóv. Viðskipti þin og framtiðaráætl- anir verða fyrir miklum áhrif- um i dag. Þú veröur óvænt heið- urs laö,njótandi á vinnustað. Bogmaðurinn 23. nóv.—21. des. Það verða miklar breytingar á lifi þinu þessa dagana. Þú getur séð fyrirfram það, sem mun gerast. Gerðu langtimaáætlan- ir. Steingeitin 22. des,—20. jan. Þú flækist i einhverju fjármála- braski með einhverjum vini þin- um, og þú ættir að geta haft töluvert upp úr þ.vi. Kvöldið ætti að geta orðið liflegt. Vatnsberinn 21.—19. febr. Nýja tunglið kemur til með að hafa mjög góð áhrif á hjóna- band þitt eða félagsskap. Þetta er hagstæður dagur til að undir- rita samninga. Fiskarnir 20. febr,—20. mars Þú ert mjög heppin(n) i dag og þó sérstaklega hvað fjármálum við kemur. Þér gengur vel i starfi og átt von á einhverri stöðuhækkun. IHBMHH mm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.