Vísir - 11.11.1977, Blaðsíða 28

Vísir - 11.11.1977, Blaðsíða 28
r VÍSIR 'gffnft Qásift 20" litsjónvarpstœki fró ^ími 86611 r Opi6 virka daga til kl. 22.< GUNNARI ASGEIRSSYNI er vinnmgurmn i Sunnudaga kl. 18-22 smáouglýsingahappdrœtti Vísis. DREGIÐ 21 NÓV. » Kristinn segir af sér for- mennskunni í fulltrúarráði Framsóknar- flokksins „Já, það er rétt, ég er búinn að segja af mér sem formaður Fulltrúaráðs Framsóknarf lokksins í Reykjavík", sagði Kristinn Finnbogason í samtali við Vísi í morgun. „Það er at heilsufars- ástæðum sem ég geri það, og sá sem var varafor- maður, Jón Aðalsteinn Jónasson, hefur nú tekið við formennskunni". Kristinn hefur verið forystu- maður i Framsóknarflokknum i Reykjavik um langt árabil, fyrst sem formaður Framsóknarfélags Reykjavikur og siðan sem for- maður fulltrúaráðsins. Hann var siðast endurkjörinn formaður fulltrúaráösins á siðastliðnum vetri, en þá átti hann við mót- framboð að etja i fyrsta sinn. Honum tókst þó að sigra með verulegum atkvæðamun i þeirri kosningu. Kristinn starfar sem fram- kvæmdastjóri við Timann, mál- gagn Framsóknarflokksins. — GA/ESJ. 77 óra gamall maður lést eftir um- ferðarslys Sjötiu og sjö ára gamall Reykvíkingur, Hcrmann Kristjánsson forstjóri, til heimilis að Hvassaleiti 87, lést á sjúkrahúsi i gær, eftir að hafa slasast mikið i umfcrðar- slysi fyrr um daginn. Slysið varð skammt frá gatnamótum Háaleitisbrautar og Miklubrautar um klukkan hálf eitt i gærdag. Stóð Her- mann fyrir aftan bil sinn, þeg- ar annar bill ók á hann. Hafði Hermann heitinn, ásamt öðr- um, verið að reyna að koma bil sinum i gang. — EA Getur Seðhbankmn ekki haldið áfram endurkaupum? Seölabankinn hefur nú mun minna fjármagn en áður til að standa undir endurkaupum birgðalána og annarra rekstrarlána viðskiptabankanna til höf uðatvinnuveganna í landinu. Endurkaupin hafa aðallega verið fjármögnuð með innláns- bindingu. f grein i siðasta tölu- blaöi af Hagtölum mánaðarins sem Seðlabankinn gefur út, kemur fram að fram til ársins 1973 var innlánsb indingin að jafnaði 70-100% hærri en endur- kaupafyrirgreiðslan. Siðan hefur þessi þróun snúist við og i lok september sl. voru endurkaupin orðin 2.413 milljón- um króna hærri en bundna féð. Á sama tima hefur rikissjóður aukið skuldir sinar við bankann um 12.449 milljónir króna og stuttar skuldir innlánsstofnana hafa aukist um 3.925 milljónir króna. Þrátt fyrir verulega bætta stöðu á öðrum innlendum reikningum bankans og mjög mikla aukningu á seðlum i um- ferö hefur aukning endurkaupa umfram innlánsbindingu og skuldasöfnun rikissjóðs og inn- lánsstofnana komið fram i stór- felldri rýrnun á stöðu Seðla- bankans út á við. Gjaldeyrisstaða bankans versnaði um 4.399 milljónir króna á þessu timabili og nú i september var gjaldeyrisforði bankans aðeins 2.273 milljónir króna. Segir i greininni að þessi þró- un endurkaupa og innláns- bindingar, samfara versnandi lausafjárstöðu bankanna hljóti að valda verulegum áhyggjum og kalla á aðgerðir til úrbóta. —SJ Kjörkassarnir á leið í bœinn „Þaðersvo litill hiutiaf gögn- um kominn inn að erfitt er að geta sér til um þátttökuna” sagöi Haraldur Steinþo’rsson framkvæmdastjóri BSRB I morgun. „Viö reiknum með eftir þeim gögnum sem við höfum þegar fengið, að yfir helmingur félagsmanna hafi greittatkvæöi um samkomulagið. Hjá sumum félögum er þátttakan yfir sextiu prósent, en minni hjá öðrum. Kosningunni lauk almennt i gærkvöldi, en eittfélag , Starfs- mannafélag rikisstofnana. fékk undanþágu til að hafa atkvæða- greiðsluna i dag. Gögnin þaðan koma til okkar i kvöld og viö vonumst til að geta byrjað aö telja á morgun. Það er mikið umstang að ná kjörkössunum frá hinum ýmsu félögum útá landi saman. Þeir mega ekki fara i póst, þvf þeir gætu lokast inni yfir helgina, og þvi eru öll önnur tiltæk ráð not- uð tii að koma þeim til okkar i tæka tið’/ sagði Haraldur að lok- um. —klp — Þessi mynd var tekin á lögregiustöðinni I gær, er þar voru iögregluþjónar að greiða atkvæöi um sam- komulagiðsem gert var á dögunum eftir sögulegt verkfall. Ljósmynd JA • V Prófkjör hjó Fromsókn í janúar „Það er búið að ákveða að þaö verður prófkjör hjá Framsóknarmönnum 21.og 22, janúar”, sagði Jón Aðalsteinn Jónasson, hinn nýi formaöur Fulltrúaráðs Framsóknar- fiokksins i samtaii við Visi i morgun. Ákvörðun þessi var tekin á fundi Fulltrúaráðsins i gær- kvöldi. Prófkjörið á einungis við Reykjavik og verður væntanlega með svipuðu sniði og prófkjör annarra flokka. „Eftir er þó að ganga frd reglum um það hvernig það verður i framkvæmd”, sagði Jón Aðalsteinn. Framsóknarmenn eiga sem kunnugt er tvo þingmenn i Reykjavik, þá Þórarinn Þórarinsson og Einar Agústsson. —GA Nú blœs að norðan Hlýju vetrarfötin koma að góðum notum um helgina, ef að likum lætur, og það ættu skautarnir lika að gera. Veðurstofan býst við kóln- andi veðri i norðanáttinni, tveggja til fimm stiga frosti hér suðvestanlands. 1 morgun var hitinn við frostmark I Reykjavik. Hlýjast var á suð- austanverðu landinu 3ja-4ra stiga hiti, en kaldast á Vest- fjörðum 5 stiga frost. -SJ Endurgreiða uppsafnaðan söluskatt á útfluttum iðnaðarvörum þessa úrs: Iðnrekendur vilja 4% jöfnunargjald á inn- fíuttar iðnaðarvörur . Ákveðið hefur verið að endurgreiða uppsafnaðan söluskatt á útfluttum iðnaðarvörum þessa árs, samtals að upphæð um 235 milljónir króna. Þessi ákvörðun er í samræmi við eina af þeim tillögum, sem Félag íslenskra iðnrekenda gerði til Alþingis í byrjun þessa mánaðar um iðn- þróunaraðgerðir og fjár- mögnun þeirra á næsta ári. 1 tillögunum er gert ráð fyrir að tekna til iðnþróunaraðgerða verði aflað með tvennu móti. Annars vegar verði tollalækkun- um á fullunnum vörum frá EFTA/EBE frestað um eitt ár, en það ætti að gefa 800 milljón króna tekjur. Hins vegar verði 4% jöfnunargjald lagt á allar innfluttar samkeppnisvörur is- lensks iðnaðar, en það ætti að sögn iðnrekenda að gefa 1200 milljónir i tekjur. Þetta fjár- magn vilja iðnrekendur siðan að verði notað til ýmissar fyrir- greiðslu við iðnaðinn. Þá hafa iðnrekendur einnig gert tillögur til Alþingis um breytingar til samræmingar á starfsaðstöðu undirstöðuat- vinnuveganna, en þar er eink- um um að ræða að launaskattur verði greiddur af fiskveiðum og landbúnaði og söluskattur af oliu til fiskiskipa en á móti fái þessir atvinnuvegir niður- fellingu á aðflutningsgjöldum af vélum og tækjum fiskiðnaðar og landbúnaðar og endurgreiddur verði uppsafnaður söluskattur af útfluttum sjávarafurðum. Aætla iðnrekendur að ríkis- sjóður myndi græða 535 milljón- ir á þessum breytingum á næsta ári. —ESJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.