Vísir - 11.11.1977, Side 4
Nœst verða
það byssur
Spánn lét Marokkó eftir Vestur-Sahara eftir að
350 þúsund Marokkómenn fóru þangað i
„Grœnu gönguna" vopnaðir kóraninum einum.
En svo virðist sem byssur verði að koma
i bókar stað ef Marokkó á að verja Sahara
fyrir Polisario hreyfingunni - og Alsír
Græna gangan: Meö kóraninn og fána að vopni.
Hótun stjórnar Marokkó
um að láta hersveitir sínar
elta skæruliðasveitir Polis-
ario hreyfingarinnar til
bækistöðva þeirra í Alsír
kemur í kjölfar tveggja
ára harðrar baráttu, sem
hófst um leið og Spánn lét
Marokkó og Máritaniu eft-
ir Vestur-Sahara.
Hassan, konungur Marokkó,
„hertók” eiginlega þetta um-
deilda landsvæði með vopnlausri
innrás. Þrjúhundruð og fimmtiu
þúsund Marokkómenn, vopnaðir
kóraninum einum saman,
streymdu þangað og hugöust reka
Spánverja á brott.
Spánska stjórnin var ekki alveg
á þvi og kvaddi út mikið herlið
sem fór til móts við göngumenn-
ina. Hvorugur aðilinn vildi þó
lenda i átökum og þeim tókst lika
aö forðast þau.
Hassan beið þó nokkurn póli-
tiskan ósigur, fyrst i stað, vegna
þess að Spánverjar neituðu öllum
samningaviðræðum fyrr en
göngumennirnir hefðu snúið aftur
til sins heima.
Rikisstjórn og fáni
Gangan bar þó þann árangur að
14. nóvember 1975 eftirlét Spánn,
Marokkó og Máritaniu þetta
svæði,og þessi lönd hafa skipt þvi
með sér siöan.
Polisario hreyfingin, sem er
samtök vinstri þjóðernissinna,
undi þessu fyrirkomulagi hins-
vegar ekki betur en yfirráðum
Spánverja. Hreyfingin krefst
sjálfstæðis fyrir Vestur-Sahara
og hefur haldið uppi látlausum
skæruliðaárásum á Marokkó-
menn i eyðimörkinni, siðastliðin
tvö ár.
Alsirstjórn styður hreyfinguna
og brást illa við hótun Marokkó
um eftirför. Polisario hefur sett
á stofn rikisstjórn, komið sér upp
þjóðfána og lýst yfir stofnun
„Arabiska lýðveldisins i
Sahara”.
Alsirstjórn er hinsvegar eina
rikisstjórnin sem hefur viður-
kennt þetta nýja riki. Stjórn Mar-
okkó segir þetta ómerka
„pappirs-rikisstjón”.
„Stjórnin” hefur heldur ekkert
landsvæði á sinu valdi, eina land-
ið sem hún hefur til umráða er
það sem stjórn Alsir hefur látið
henni i té, innan eigin landa-
mæra.
Fengu menn á þing í Rabat
Þrátt fyrir stöðugar skæruliöa-
árasir hefur Marokkó varið millj-
ónum dollara til að sýna fram á
að þaðan verði ekki hörfað.
Fyrsta verk Hassans, þegar
hann fékk yfirráð yfir Vestur-
Sahara var að senda þangað tutt-
ugu þúsund hermerín, sem tóku
við á hernaðarlega mikilvægum
stöðum, þegar spönsku hersveit-
irnar sneru heim.
AÐGÁT SKAL HÖFÐ
CARDY - 8
blóðþrýstimœlirinn
er handhægur og gerir þér
kleift að fylgjast með blóð-
þrýstingnum án utanað-
komandi aðstoðar eða
hlustunartækja. Þú spennir
aðeins mælinn á handlegg-
inn, og elektrónískir mælar
segja þér nákvæmlega blóð-
þrýstinginn.
Austurstrœti 7
Sími 10966
í kjölfar þeirra komu þúsundir
borgaralegra starfsmanna rikis-
ins, kennarar, læknar og tækni-
menn. Hlutverk þeirra var að
innlima og aðlaga landið aö Mar-
okkó.
Þarna voru haldnar kosningar i
ár, eins og annarsstaðar i Mar-
okkó og Sahara búarnir fengu
fjóra menn á þingið i Rabat.
Stjórn Marokkó segir að eftir-
gjöf Spánverja á landinu og kosn-
ingarnar taki af allan vafa um að
þetta svæði tilheyri Marokkó.
Þrátt fyrir aðgerðir Polisario
hreyfingarinnar er þvi haldið á-
fram að gera það „marokkókst”.
islenska aðferðin notuð
Hassan konungur sló 245 millj-
ón dollara lán hjá þjóðinni, með
innlendri skuldabréfaútgáfu og af
þeirri upphæð var i ár varið 63
milljónum dollara til alls konar
framkvæmda i Vestur-Sahara.
Enn frekari fjárfestingar verða
á næsta ári.
Eitt af fyrstu verkefnunum var
aö koma á nýju stjórnskipulagi og
i þvi skyni var Sahara skipt i þrjú
héruð. Um leið var byrjað að
tryggja samgöngur og til dæmis
er verið að byggja þrjár hafnir,
þar af eina á Atlantshafsströnd-
inni, gegn Kanarieyjum. Frá
þessum höfnum verða einnig
stundaðar fiskveiðar.
Tugir skóla og hundruð nýrra
heimila hafa verið reist, að við-
bættum sjúkraskýlum, verslun-
um og marköðum. Milljónum
dollara hefur verið varið til að
iðnmennta fólk og þegar er farið
að framleiða töluvert af leður- og
málmvörum.
Skemmdarverk Polisario
Verið er að gera mikið átak til
að auka landbúnað i eyðimörkinni
og miklar vatnsveitufram-
kvæmdir eru þvi samfara. Mestu
auðlindir Sahara eru þó fosfat-
námurnar.
Spönsku námurnar einar sam-
an geta framleitt fjórar milljónir
lesta af fosfati á ári og mörg
svæði eru enn með öllu ónýtt.
Fosfat er nauðsynlegt við blöndun
tilbúins áburðar. Þar sem land-
búnaður verður áfram stundaður
i heiminum, um ófyrirsjáanlega
framtið, á Marokkó þarna
miklar auðlindir i jörðu.
Það hefur háð framleiðslunni
töluvert að skæruliðar Polisario
hafa unniö skemmdarverk á hinu
95 kilómetra langa færibandi sem
liggur frá spönsku námunum, að
verksmiðjunum. Þetta hefur i för
með sér að námurnar ná ekki
eðlilegum afköstum og kostar það
stjórnina töluvert fé.
Skæruliöar Polisario hafa lika
viðar ráðist fram og reynt að
vinna allt það tjón sem þeir geta,
allsstaðar þar sem þeir geta.
Vestur-Sahara er viðáttumikið
svæði og her Marokkó er ekki sér-
lega vel búinn til eftirlits þar. Það
er þvi erfitt fyrir hann að hafa
hendur i hári skæruliðahópa sem
læðast yfir landamærin frá Alsir
að nóttu til og flýja þangað aftur
að morgni.
Þessvegna er Hassan konung-
ur, að missa þolinmæðina og hef-
ur hótað að elta skæruliðana til
stöðva þeirra i Alsir. Stjórn Alsir
tekur þvi ekki þegjandi og það má
þvi búast við frekari fréttum af
þessu svæði á næstunni.
En nú er lið Marokkó í Vestur-Sahara, grátt fyrir járn-
um.