Alþýðublaðið - 29.10.1969, Side 20

Alþýðublaðið - 29.10.1969, Side 20
52 — Alþýðublaðið 50 ára Framh. af bls. 50 og tækju sem minnst mark á þeim óbundnu, sem þeir litu á sem hálfgerð aðskotadýr inn í hreppsnefndina. En þegar til átti að taka, reyndust þeir dá- lítið ragir við að gera það af ótta við, að þá mögnuðust þeir I óbundnu um allan helming í j næstu hreppsnefndarkosning- : um. Á hinn bóginn vildu þeir j óbundnu ekkert við þá tala j og sögðu, að nú væru komnir ; til sögunnar nýir vendir, og ; f þeir þyrftu ekki neitt að vera komnir upp á gamla og af sér gengna kústa. Það þyrfti ekki að gera neina baksamninga, heldur skyldi oddvitinn kalla hreppsnefndina á fund, og síð- an gæti allt gengið sinn gang. Oddvitinn var fyrst tregur til að efna til fundar, meðan ekkert væri vitað um meiri- hlutamyndun í hreppsnefnd- inni, en þegar allar samninga- umleitanir voru komnar í hnút, lét hann þó undan og fundur- inn var haldinn. Oddvitinn setti fundinn og lýsti kjöri hreppsnefndar, og síðan fól hann aldursforseta hrepps- nefndar, sem var hann sjálfur, að stjórna fundi, þar til nýr oddviti hefði verið kjörinn. Síðan var gengið til kosninga um oddvita og auðvitað féllu atkvæði þannig að gamli odd- vitinn hlaut tvö atkvæði, skó- arinn, sem var helzti leiðtogi þeirra óbundnu, hlaut líka tvö atkvæði, og hreppstjórinn, sem nú reri einn á báti framfara- sinnaðra hlaut eitt atkvæði. Þá var ekki um annað að gera en kasta upp um það hvor þeirra oddvitans eða skóarans ætti að verða oddviti. En er hlutkestið skyldi fara fram, kom nýtt babb í bátinn, því að þá vildu báðir aðilar hafa skjaldarmerkið á túkallinum, sem átti að nota. Eftir nokkr- ar umræður tók oddvitinn þó af skarið og kvaðst sem fund- arstjóri hafa vald til að úr- skurða um málið, og hann úr- skurðaði, að hann skyldi hafa skjaldarmerkið, en skóarinn kvaðst . véfengja lögmæti þess úrskurðar og áskildi sér rétt til að kæra kosninguna til félags- málaráðuneytisins. Þá kom nú dálítill svipur á oddvitann, en organistinn stóð þá upp og gekk til hans og hvislaði ein- hverju í eyra honum, sem hin- ir heyrðu ekki. Oddvitinn kink aði kolli og síðan setti hann. upp fundarstjóraandlitið á ný og sagði, að þar sem fyrirhug- aður hlutkestismáti hefði ver- ið véfengdur, leyfði hann sér að leggja til, að hlutkestið yrði látið fara fram með öðrum hætti. Skrifa skyldi nöfn beggja á miða, og síðan yrði fenginn óvilhallur maður til að draga. Skóarinn féllst á þetta — og síðan kom þeim saman um, að bezt væri að láta hrepp- stjórann draga, því að hann var úr spilinu hvort eð var. Miðarnir voru brotnir sam- an í hatt læknisins, sem var meðal áheyrenda á fundinum og síðan kallaði oddvitinn á hreppstjórann. Hreppi hugsaði sig vel um og tók síðan upp annan miðann og rétti hann oddvitanum. — Oddvitinn braut sundur miðann og föln- aði við. Á miðanum stóð nafn skóarans. En svo birti allt i einu yfir oddvitanum, og þegar hann var búinn að lesa upp nafnið, bætti hann við: „Þetta er nafn þess, sem náði ekki kosningu. Samkvæmt þessu er ég réttkjörinn oddviti.“ Við þetta varð skóarinn al- veg æfur, og heimtaði að hlut- kestið yrði endurtekið, því að ekkert hefði verið sagt um það fyrirfram hvort hreppstjórinn ætti að draga nafn þess, sem kæmist að, eða hins sem félli. En oddvitinn kvað það ekki koma til mála að breyta fyrri úrskurði, og þegar skóarinn bar fram formlega tillögu um, að hreppsnefndin lýsti kosninguna ógilda og hún yrði endurtekin, var sú tillaga felld með jöfn- um atkvæðum. Hreppstjórinn sat auðvitað hjá. i Þegar þarna var komið sögú, bað skóarinn, sem var orðinn eldrauður í framan, um fund- arhlé, og oddvitinn taldi sjálf- sagt að verða við þeim tilmæl- um og ákvað, að fundi skyldi frestað í viku. Ef að ekkert gengur í samningamakkinu fyrir þann fund, hefur hann öll skilyrði til að verða skemmtilegur. Þá á nefnilega að kjósa í einar 10 nefndir, og ef að líkum lætur, verður hlut- kesti í þeim öllum. iYTT FRA RAFHA BORBHELLA IVIEÐ 4 HELLUM, þar af 1 meS stiglausri stillingu 56 LÍTRA OFN MEÐ UÓSI, yfir- og undirhita stýrt með hita- stilli. Sérstakt glóðarsteikar- element (grill). Klukka með Timer. iERCOBELTI og BELTAHLUTIR á allar BELTAVÉLAR Höfum fyrirliggjandi á lager hér í Reykjavík og/eða á leiðinni með næsta skipi BERCO belti og beltahluti, svo sem keðjur, spyrnur, spyrnubolta, rúllur, framhjól og drifhjól fyrir beltavélar; og getum við ávallt af- greitt BERCO beltahluti strax eða mjög fljótt. Allar BERCO beltakeðjur eru framleiddar úr sérstöku K-stáli og er því bæði vörumerkið „BERCO" og stálmeikið „K‘“ steypt í hvern einasta BERCO keðjuhlekk og vöru. merkið BERCO jafnframt steypt í endann á hverri eistakri BERCO fóðringu og hverjum einstökum BERCO pinna; auk þess eru allir BERCO beltahlutir með innsteyptu vörumerki BERCO. ■ BERCO umboðið BERCO hefur sannað ógæti sitt við íslenzkar aðstæður undanfarin ór Allar BERCO Beltakeðjur cru úr speciulstáli K r.'-y : :u;rj.tíægtj c Ró'encit: acill.iirfr ■'ijouui go vyy.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.