Vísir - 19.04.1978, Síða 6
SÍMASKRÁIN 1978
Afhending simaskrárinnar 1978 hefst mánudaginn 24.
april til simnotenda.
I Reykjavik verður simaskráin afgreidd á aðalpósthúsinu,
gengið inn frá Austurstræti, daglega kl. 9—18 nema
laugardaginn 29. april kl. 9—12.
í Hafnarfirði Verður simaskráin afhent á
Póst- og simstöðinni við Strandgötu
í Kópavogi verður simaskráin afhent á
Póst- og simstöðinni, Digranesvegi 9.
Þeir simnotendur, sem eiga rétt á 10 simaskrám eða fleir-
um, fá skrárnar sendar heim. Heimsendingin hefst miö-
vikudaginn 19. april n.k.
í Reykjavik, Kópavogi og Hafnarfirði
verður simaskráin aðeins afhent gegn af-
hendingaseðlum, sem póstlagðir voru i
dag til simnotenda.
Athygli simnotenda skal vakin á þvi að
simaskráin 1978 gengur i gildi frá og með
sunnudeginum 7. mai 1978
Sfmnotendur eru vinsamlega beðnir að eyðileggja gömlu
simaskrána frá 1977 vegna fjölda númerabreytinga, sem
oröið hafa frá þvi að hún var gefin út, enda er hún ekki
lengur i gildi.
Póst- og simamálastofnunin
HÚS TIL SÖLU!
Til sölu og sýnis á sumardaginn fyrsta er
hús við Þórsgötu 23. Hagstæð kjör ef sam-
ið er strax. Uppl. i sima 25958.
Byggingafélag
verkamanna Reykjavík
Til sölu:
þriggja herbergja ibúð i 1. byggingarfl.
við Meðalholt og fjögurra herbergja ibúð í
7. byggingarfl. við Nóatún.
Félagsmenn skili umsóknum sinum til
skrifstofu félagsins að Stórholti 16 fyrir kl.
12 á hádegi þriðjudaginn 25. april n.k.
Félagsstjórnin.
Kjörskró
Kjörskrá til Alþingiskosninga er fram
eiga að fara 25. júni n.k., liggur frammi
almenningi til sýnis i Manntalsskrifstofu
Reykjavikurborgar, Skúlatúni 2, 2. hæð,
alla virka daga frá 25. april til 23. mai n.k.
frá kl. 8.20 f.h. til kl. 4.15 e.h., þó ekki
laugardaga.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa
borist skrifstofu borgarstjóra eigi siðar en
3. júni n.k.
Reykjavik, 19. april 1978
Borgarstjórinn i Reykjavik.
Auglýsing
Aðalfundir SAMVINNUTRYGGINGA
g.t., LÍFTRYGGINGAFÉLAGSINS
ANDVÖKU og ENDURTRYGGINGA-
FÉLAGS SAMVINNUTRYGGINGA h.f.,
verða haldnir fimmtudaginn 1. júni n.k. að
BIFRÖST i Borgarfirði og hefjast kl. 10
f.h.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félag-
anna.
Stjórnir félaganna.
Miðvikudagur 19. april 1978 vism
Umsjón: Guömundur Pétursson
233
Neðanjarðar-
fjölmiðlar
Pollands
Pólskum blaöamönnum hefur nýlega verið tryggður réttur til þess að fá að vita
sannleikann, um það sem er að gerast í rikisverksmiðjum og ýmsum deildum
ráðuneyta sem þeir vilja skrifa um.
Ný reglugerð hefur verið sett sem kveður á um það/ að embættismenn megi ekki
draga dul yfir erfiðleika eðamistök, þegar þeira veita fréttamönnum upplýsingar
um fyrirtækin eða stofnanirnar.
Hversvegna svona opinskáir
skyndilega? Jú, skrifstofubákn-
ið i Póliandi er orðiö of einangr-
að og pukurslegt, er svarað.
Enginn þrætir fyrir þaö. En þeir
sem þekkja orðið vel til i Pól-
landi telja hina raunverulegu
ástæöu þess, aö pressan i Pól-
landi, sem eilift er undir hæl
yfirvaldsins, skuli nú hvött til
þess aö vakna, sé að finna i
öðru.Nefnilega samkeppnihinna
óopinberu fjölmiðla, neðanjarð-
arútgáfunnar sem ritskoðun
þess opinbera nær ekki til.
Um 25 óopinber tímarit og
dreifiritlingar eru gefnir út af
ýmsum hópum i Póllandi, og
dreiföir opinberlega manna á
meöal, og svo hefur verið frá þvi
1976. Eitt þessara rita sló öllum
öörum við með sprengifrétt
þegar það birti upplýsingar af
skjölum sem einn fyrrverandi
ritskoðandi rikisins i Cracow lét
eftir sig, þegar hann flúði til
Sviþjóðar.
önnur fjölmiðlun, sem rit-
skoðunin getur ekki tekið til, eru
hinir opinberu fyrirlesarar
fræðimanna ýmissa inni á
einkaheimilum i Varsjá og öðr-
um stórborgum. Þessar neðan-
jarðarsamkomur hafa státað
af ýmsum virtum fyrirlesur-
um, sem mikið mark er tekið á.
Er sagt, áð þessi erindi og fyrir-
lestrar hafi haft mikil áhrif á
það, sem kennt er i háskólanum.
Margt er þar dregið fram, eins
og til dæmis úr sögu Póllands,
sem sagnaritarar kommúnista
hafa þagað um.
Yfirvaldi og flokksvél
finnst þau vera aö missa tökin
ef þessari neðanjarðarfjölmiðl-
un er sýnt umburöarlyndi og af-
skiptaleysi. Ýmsir haröjaxlar
innan flokksins vilja láta taka
strangar á andófsmönnum.
Virðist sem þeir fái vilja sinum
framgengt. Nýlega var tiltölu-
lega frjálslyndum menningar-
málaráðherra vikið fra en
hörkutól úr flokknum settur til
hans embættis.
Þetta ætti að falla Kremlherr-
unum vel i geð einnig. A fundi,
sem, framkvæmdastjórar
kommúnistaflokkanna austan-
tjalds héldu i siöasta mánuði i
Búdapest, var hvatt til aukinnar
samvinnu gegn andófi íjand-,
manna hugmyndafræðinnar.
Sumum þeirra finnst Pólland
ekki ganga nógu hart fram.
Með þvi að veita opinberu
fjölmiölum greiöari aðgang að
upplýsingum er reynt að auka
áhrif þeirra i samkeppni við
neðanjarðarblöðin. Það verða
áfram undir ritskoðuninni engu
að siður.
Fara I geitarhús eg
loka augunum
fyrir nágrannanum
Eftir aö hafa f jallað um striðsglæpina í Víetnam 1967-68, og haröstjórnir í Suöur-
Ameriku, einkanlega Chile, 1973-74, váldi Russell-dómstóllinn sér til fyrirtektar
mannréttindamál i Vestur-Þýskalandi.
Eins og menn muna var dómstóllinn settur á laggirnar að undirlagi Bertrands
Russells og friöarhreyfingar hans, skipaður mannvinum og andstæöingum harð-
stjórna og striösrekstrar.
1 byrjun þessa mánaöar
komst dómstöllinn að þeirri nið-
urstöðu, aö ekki ættu ailir borg-
arar Vestur-Þýzkalands jafnan
aðgang að embættum og opin-
berum störfum vegna stjórn-
málaskoðana þeirra, en slikt
væri alvarlegt brot á mannrétt-
indum.
Þessi nefnd sem skipuð er .
mönnum af ýmsum þjóðernum,
varði fjórum dögum til þess að
hlusta á vitnisburði i tóif tilvik-
um,,Berufsverbot” — sem er
bann við þvi að vinna ákveðinn
störf. t regluferð, sem Willy
Brandt kanslari lét setja 1972 og
samþykkt var af forsætisráð-
herra allra rikja sambandsfik-
isins, Verða opinberir starfs-
menn að sverja hinu frjálsa lýð-
veldi hollustu sina. Hugmyndin
var sú að aftra öfgasinnum i að
komast til áhrifaembætta, hvort
sem það væru fasistar eða of-
stækissinnaöir vinstrimenn. A
þeim sex árum, sem siðan eru
liðin, hefur ein milljón manna
veriö yfirheyrð og, látin sverja
hollustueiöa lýöræöinu, meðan
4,000 umsækjendum hefur verið
synjað um störf.
Russell-dómstóllinn sem
mestmegnis er skipaður mönn-
um, sem sjálfkrafa mundu
þykja falla undir ,,Berufsver-
bot” (og ekki vera veitt starf
hjá þvi opinbera), ætlar ekki að
láta þarna skilið við Vestur-
Þýskaland. Næsta janúarmán-
uð ætlar hann að korna aftur
saman til þess að fjalla um,
hvort ritskoðun eigi sér stað i V-
Þýskalandi og hvernig máls-
meðferö dómstóla sé i málum
„pólitiskra fanga”.
Auðvitað var það von þeirra,
sem að dómstólnum standa, að
fyrirtekt þeirra vekti meiri
athygli, bæði i V-Þýskalandi
sem ertfendis, en raun varð á.
Það hefur engum rjulist hversu
vinstrihneigður „dbmstóllinn”
hefpr veriði verkefnavali máls-
meðferð og niðurstöðum, og
fékk hann þvi strax „kerfið” i V-
Þýskalandi á móti sér. Meira að
segja vinstrivængurinn i social-
demókratafiokknum og verka-
lýðssamtökin lýstu þvi yfir, að
„réttarhaldið” væri ekkert ann-
að en tilraun til að rógbera
Sambandsrikið með þvi að
reyna að skipa þvi á bekk með
einræðisrikjum S-Ameriku. A
hinn bóginn „fengu” dómendur
Maóista upp á móti sér með þvi
að reyna að bera á móti þessu i
lokayfirlýsingu sinni og_ neita
þvi að hafa reynt að setja fas-
istastimpil á V-Þýskaland.
Flestum sjáandi og hugsandi
mönnum þykir þó undarlegt
verkefna.val dómstólsins og
þykir hann fara i geitarhús að
leita sér ullar, þegar hann tekur
til rannsókna rhannéttindabrot i
V-Þýskalandi, en leiðir hjá sér
hinn hluta Þýskalands þar sem
örugglega má ganga að visri
margfalddi uppskeru slikrar
leitar.
En ef niðurstaöa dómstólsins
fær stjórnmálaflokkana i V-
Þýskalandi til þess að taka
„Berufsverbot” til endurskoð-
unar mætti segja, aö þetta heföi
eitthvert gildi.
Auglýsið í Vísi