Vísir - 19.04.1978, Blaðsíða 11

Vísir - 19.04.1978, Blaðsíða 11
11 vism Miðvikudagur 19. april 1978 SUMARSTARF BARMA OG, UNGLINGA I REYKJA VIK Hinrik Bjarnason framkvænidastjóri Æskulýðsráðs Reykjavikur og Stefán Kristjánsson iþróttafulltrúi borgarinnar kynna það sem verður á boðstólum fyrir börn og unglinga i suntar. Kynning á því sumarstarfi, sem börnum og unglingum i Reykjavík gefst kostur á aö þessu sinni, stendur nú yfir. I dag verður bæklingi sem kynnir það sem fram er boðið dreift i skólum í Reykjavík í um 15.300 eintökum. Starfið verður með hefðbundnum hætti og ekki eru neinir alveg nýir þættir kynntir. Sundnámskeið, reiðskóli, vinnuskóli meðal f»ess sem boðið er uppá Starfsþættirnir eru miðaðir fyrir börn á aldrinum 2-16 ára og eru aðstandendur þeirra: Fræðsluskrifstofa Reykjavikur og Æskulýðsráð, Leikvallanefnd borgarinnar og tþróttaráð og loks Skólagarðar og Vinnuskóli Reykjavikur. Hinrik Bjarnason fram- kvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykjavikur sagði á blaða- mannafundi þar sem bæklingur- inn var kynntur að reynsla undanfarinna ára sýndi, að eftir þvi sem skipulagið væri i fastari skorðum nýttist það betur. Æskulýðsráð miðaði starf sitt að mestu leyti við börn 16 ára og yngri. Þeir sem eldri væru reyndu yfirleitt að koma sér inn i atvinnulifið á sumrin og sæktu yfirleitt ekki mikið það sem stæði þeim til boða. Það væri helstað 16-18 ára unglingar sæktu diskótekin i Bústöðum og Fella- helli, en annað ekki. Hann var spurður að þvi hvort einhver lausn væri fyrirhuguð á þvi unglingavandamáli sem kennt er við Hallærisplan. Hinrik svaraði þvi til að nokkuð stór hluti af þeim unglingum sem þar söfn- uðust saman væri utanbæjarfólk, en hvað snerti Reykjavikurungl- ingana taldi hann orsökina vera skort á aðst'óðu i miðbænum. Unglingarnir hefðu engan stað til að sækja þar. Hinrik skýrði frá þvi að vonandi yrði unnt að taka i notkun innan mjög langs tima félagsmiðstöðv- ar i Arbæjarhverfi og i Félags- heimjli Þróttar við Sæviðarsund. Ungþngar i vesturborginni og miðbænum ættu að notfæra sér meira þá aðstöðu sem er til Saltvík Þátttaka i reiðskóla þeim sem starfræktur er i Saltvik hefur ætið verið mjög góð. Að skólanum standa Æskulýðsráð Reykjavikur og Hestamannafélagið Fákur. Sundnámskeið Námskeiðin verða haldin i 5 sundlaugum i borginni. Er reiknað með um 1500 þátttakend- um. Yngstu börnin sem geta sótt námskeiðin eru þau sem fædd eru 1971. iþrótta- og leikjanámskeið Þau verða haldin fyrir krakka 6-12 ára á 8 stöðum i borginni. Bústaðir — Fellahellir A báðum stöðum verður margs konar þjónusta við félög og einstaklinga i hverfunum. Starfsvellir Átta starfsvellir verða starf- ræktir á barnaskólalóðum. Þar geta börn á aldrinum 6-12 ára stytt sér stundir við smiðar og föndur. Myndin er tekin á borðtennismóti gagnfræðaskólanna sem haldið var í Fellahelli í þessum mánuði. Þátttakendur i mótinu voru úr þremur efstu bekkjum grunnskóla. I fyrsta sæti varð A sveit Hagaskóla í öðru sæti A sveit Réttarholtsskóla og þriðja A sveit Hliða rskóla. fundarhalda i húsi Æskulýðsráðs að Frikirkjuvegi 11. Siglingar í Nauhólsvík Siglinganámskeið fyrir byrj- endur verða haldin i Nauthólsvik og verða þau 5 daga i viku. Hinrik gat þess að starfiö i Nauthólsvik hefði meira verið fært yfir á dag- timann, þar sem stór hópur barna á aldrinum 10-12 vildi koma þarna um hádegi og vera fram eftir degi. Kynnisferðir í sveit Dvalið er þrjá daga á sveita- heimilum i Austur- og Vestur- Landeyjum. Dvölin er ókeypis, en þátttakendurskuldbinda sig til að veita jafnöldrum úr sveitinni fyrirgreiðslu i Reykjavik. Vinnuskóli. Hann er starfræktur fyrir nem- endur úr 7. og 8. bekk grunnskóla. Skólagarðar Þeir starfa á fjórum stövðum. Við Holtsveg hjá trjágarði i Laugardal. Við Asenda sunnan Miklubrautar. 1 Arbæ vestan Ar- bæjasafns. 1 Breiðholti við Stekkjarbakka. Aldur miðaður við 9-12 ára börn. ÁTAK SKAL GERT Páll Bergþórsson skrifar: ---- y Mér hefur borist til umsagnar meðfylgjandi frumvarp til laga um' nýja námsbraut í islensk- um fræðum i hljóðvarpi og sjónvarpi, svokallaða Sverrisbraut. Flytjendur frumvarpsins eru þjóð- lega hugsandi menn úr öllum flokkum nema ein- um, og á það þvi vísan framgang á Alþingi. Ekki ætti að þurfa að fara mörgum orðum um svo þarft mál sem þetta, og skal það heldur ekki gert, enda brestur mig tungutak til að f jalla um frumvarpið á þann hátt sem vert væri. En hvað sem öðru líður, þá hljóta menn að vera i stakk bún ir til að viðurkenna að hér þarf alfarið að gera mik iö átak, og það á árs grundvelli. Frumvarp til laga um Sverrisbra'ut hina nýju 1. grein. Stofna skal nýja námsbraut i islenskum fræðum i hljóðvarpi og sjónvarpi. 2. grein. Námsbrautin skal alfarið heita Sverrisbraut hin nýja. 3. grein. Tilgangur Sverrisbrautar er að gera stórt átak eða átök til þess að efla alfarið kunnáttu i islensku máli. 4. grein. Til þess að hafa yfirumsjón með starfsemi Sverrisbrautar skal Alþingi kjósa 13manna ráð með réttum pólitiskum hlutföll- um, þannig að Magnús Torfi verði þar hvergi nærri, né aðrir þeir, sem ekki eiga þar erindi. 5. grein. Ráðið skal alfarið gera átak til þess að beina málfari lands- manna inn á réttar brautir. Skulu ráðsmenn að fornum sið kallast birkibeinar. 6. grein Sérstakt átak skal gert til þess aö menn tali með fullri virðingu um Alþingi og alþingismenn, ekki aðeins á opinberum fána- dögum, heldur alfarið 365 daga á ársgrundvelli. 7. grein. Mikið átak skal gert til að út- rýma erlendum slettum úr mál- inu, einkum rússneska orðinu komisar. / 8. grein. Gera skal landsmenn alfarið i stakkinn búna til þess að ræða af skynsamlegu viti um verð- bólguna og með hæfilegri fyrir- litningu, og verði réttum aðilum ætið um hana kennt, það er verkalýðshreyfingunni að und- anskildum verslunarmönnum. 9. grein. Kenna skal landsmönnum fagran framburð, sérstaklega i enda hverrar setningar. Skal þá ætið lögð þung áhersla með svipbrigðum á siðasta hluta sið- asta orðs, til dæmis allsherjar- NEFND. 10. grein. Ráða skal hæfan mann, til dæmis Halldór E. Sigurðsson, til að halda sjónvarpsfyrirlestra um geldeyririnn i lantinu. auk þess sem honum veröi heimilað að sita nefnd i málið. 11. g'rein. Til þess að menn sjái og heyri réttan og fagran setuframburð skal Sverrir Hermannsson framvegis annast þáttinn Blandað á staðnum i sjónvar-p- inu i félagi við nafna sinn Runólfsson og hafa ótakmark- aðan ræðutima á ársgrundvelli. 12. grein. Tepruframburður verði sér- stök námsgrein i Sverrisbraut. 1 þvi skyni að gera átak i þvi máli verði Gylfi Þ. Gislason fenginn til að flytja daglega i sjónvarp- inu'hina gagnlegu auglýsingu: Gleraugu há ekki börnunum. 13. grein. Lög þessi öðlast þegar gildi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.