Vísir - 05.06.1978, Blaðsíða 9
9
mmmm
„Lntíinn em« flokhur
v<‘röi ráöandi afl i
hinu nýJaHömatarír*
„Tel líkiegt að borgarfull-
trúum ycrði fjölgað í 21”
„Monum óhjákvafmilega
haíu ákveðna foryatu''
GOTT SIÐFERÐI
BARA FYRIR SUMA
Helgi hringdi:
„Hvernig i ósköpunum
stendur á þvi að Alþýðubanda-
lagið i Reykjavik getur notað
húsnæði i eigu Alþýðusambands
tslands,eða Alþýðubankans, við
Grensásveg og húsnæði
Dagsbrúnar og Verka-
mannasambands tslands við
Lindargötu, sem kosningamið-
stöðvar sinar, svo sem þaö
gerði i borgarstjórnarkosning-
unum?
Hver hefur vald til að leyfa
slikt?
Ég hélt að fleira fólk væri i
þessum samtökum launafólks
heldur en bara Alþýðubanda-
lagsfólk. Hvað hefðu Alþýðu-
bandalagsmenn i Reykjavik
sagt ef Sjálfstæðisflokkurinn
hefði notfært sér aðstöðu versl-
unarmannafélagsins, eða þá
hreinlega borgarstjórnarskrif-
stofurnar sjálfar, sem kosn-
ingamiðsvöðvar fyrir sig? Þá
hefði örugglega heyrst hljóö úr
horni. En það er eins og sið-
ferðið sé bara fyrir suma en
öðrum sé allt leyfilegt”.
Bréfaskipti í þógu friðar
Okkur hefur borist bréf frá
Suður-Kóreu, sem hljóðar eitt-
hvað á þessa leið:
Ég er enskukennari i háskóla i
höfuðborg Suður-Kóreu, Seoul.
Hér f skólanum eru 2500
nemendur af báðum kynjum.
Astæðan þess að ég skrifa ykkur
er sú að ég veit að nemendur
minir vilja skrifast á við
stúdenta i öðrum löndum.
Á löngum kennaraferli
minum hef ég lært það, að
bréfaskipti við erlenda penna-
vini hjálpa ekki aðeins
nemendum minum að læra
ensku, heldur læra þeir einnig
að þekkja lönd og þjóðir sem
þeir hafa litið sem ekkert vitað
um áður. Slik bréfaskipti
mundu t.d. auka skilning
nemenda minna á landi og
högum ykkar og með auknum
skilningi þjóða i miHitryggjum
við frið.
Ef þú lesandi góður hefur
áhuga á að kynnast ungu fólki i
Suður-Kóreu þá sendu upp-
lýsingar um nafn þitt, aldui;
heimili og áhugamál til:
Miss Park Jeong Yi
K.P.O. Box 141,
Seoul 110 Korea.
FRÁBÆR LESTUR FRAMHALDSSÖGU
Frú að vestan skrifar:
Mikið voðalega hef ég haft
gaman af þvi að fylgjast með
lestri miðdegissögunnar Gler-
húsin eftir hann Finn Söeborg.
Þetta er alveg guðdómleg saga,
og ekki spillir snilldarlegur lest-
ur Halldórs S. Stefánssonar
fyrir. Sá maður ætti nú bara að
veraáföstum samningi og látinn
lesa allar miðdegissögur. Það
er svo mikið atriði fyrir okkur
sem heima sitjum að hafalesara
sem yljar manni svo mjög með
rödd sinni.
En ég er ekki eins ánægð með
sjónvarpið,hvernig stendur t.d.
á þvi að hann Guðmundur
Hafsteinsson hneigir sig ekki og
segirgott kvöld, svona myndar-
legur maðurinn. Þetta skemm-
ir voðalega mikið fyrir honum
oghér i plássinu höfum við kon-
urnar oft talað um það hversu
glæsilegur hann væri ef hann
hneigöi sig og byði gott kvöld.
Og svo er það hann Bjarni
Felixson. Hann er alveg voða-
legt „krútt” siðan ég fékk lita-
sjónvarpið, og hefur bara batn-
aðmikiðviðþað. Enhannmætti
sitja ögnréttarisætinuenhann
gerir.
STRÍÐSDANS MORGUNBLAÐSINS
Lesandi skrifar:
Þaðhefur verið dálitið gaman
að fylgjast með skrifum
Morgunblaðsins undanfarinn
hálfan mánuð og þó sér i lagi nú
siðustu vikuna.
Fyrir kosningar voru birtar
stórar f jölskyldumyndir af
frambjóðendum Sjálfstæðis-
flokksins til borgarstjórnar.
Voru þeir þar mættír með
maka, börnum og best þóttí ef
hægt var að fá barnabörnin
lánuð meðan á myndatöku stóð.
1 leiðurum blaðsins var
hamast nótt sem nýtan dag og
borgarbúar minntir á að vofa
stæði við dyr borgarinnar tíl-
búin að hremma stólinn hans
Birgis ísleifs að loknum kosn-
ingum.
m---------------------►
Það er af sem áöur var. Heil-
siðan birtist þriðjudaginn eftir
kosningar en litla innfellda
fréttin kom á föstudaginn.
Kosningarnar fóru fram,talið
var upp úr kössunum og sjá:
undrið gerðist, meirihlutinn f éll,
og stóll á lausu handa Marx
karlinum.
Fram á miövikudag hamaðist
Morgunblaðið eins og rjúpa við
staur að sannfæra lesendur um
að sundrung og upplausn væri i
nýkjörnum meirihluta. Af ein-
hverjum „dularfullum”
ástæðum sljákkaði i
Mogganum á föstudaginn. Sem
kunnugt er komu þriflokkarnir
sér saman um kjör forseta
borgarstjórnar og kjör borgar-
ráðs. Þessu voru gerð skil
með smá-myndasögu inni i
blaðinu. A annarri siöu var svo
litil einsdálksfrétt um aö þri-
flokkarnir ætluðu að gera með
sér málefnasamning.
Hvergi sundrung, og þá eru
fimm dálka fyrirsagnirnar
geymdar niðri i skúffu. Það er
nefnilega engin frétt þegar
Elokkarnir standa saman — það
er lóðið.
Morgunblaðið — sem að
sjálfsögðu er ekki háð neinum
stjórnmálaflokk'i — reyndi ai
koma fávisum kjósendum i
skilning um það að sundrung og
upplausn myndi koma i borgar-
stjórnina ef Sjálfstæðisflokkur-
inn tapaði meirihlutanum.
i
Electrolux
Mjög kraftmikil ryksuga (loftflæði 2.0 rúmm/min.)
Hún slckkur sjálfkrafa á sér, þegar pokinn er fullur.
Dregur snúruna inn i hjólið.
Vegur aðeins 7 kg. og er með 6 m. langa snúru.
/mi Kraftmikil ryksuga (loftflæði 1.9 rúmm/min.)
Hún sýnir hvenær pokinn er fullur.
Snúran dregst inn i lijólið.
Pokinn er sjálflokandi þ.e. rykiö dreifist ekki þegar skipt er um poka. Veg-
ur 7 kg og er með 6 m langa snúru.
Verð kr. 67.500.-
/:t02 Mjög ódýr og meðfærileg ryksuga en með góðan sogkraft
(loftflæði 1.65 rúmm/min.)
Vegur 5.7 kg og er með 7 m langa snúru.
Verð aðeins kr. 52.500.-
Vörumarkaðurinn hf.
ÁRMuLA 1A — SlMI 06117 ?
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar, er
verða til sýnis þriðjudaginn 6. júni 1978,
kl. 13—16,1 porti bak við skrifstofu
vora að Borgartúni 7
Ford Cortina fólksbifreið árg. 1974
Volkswagen 1200 fólksbifreið árg. 1973
Chevrolet Blazer árg. 1971
Ford Bronco árg. 1973
Volkswagen Micro-Bus
fólksbifreið árg. 1975
Volkswagen pallbifreið árg. 1974
Ford Transit-Bus fólksbifreið árg. 1971
UAZ 452 torfærubifreið árg. 1971
Land Rover,lengri gerð, bensin árg. 1970
Land Rover bensin árg. 1970
Wiliy’s jeppi árg. 1966
Dodge W 200 pick-up árg. 1971
Skoda 110 L fólksbifreið árg. 1971
Opel Rekord fólksbifreið árg. 1971
Tempo mótorhjól árg. 1972
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30
að viðstöddum bjóðendum. Réttur til að
hafna tilboðum sem ekki teljast
viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006