Vísir - 13.06.1978, Blaðsíða 3
VISIR Þriöjudagur .13. júní 1978
3
Anna Juliana er gædd miklum sónghæfileikum
segir Gabriel Chmura.
að komast út fyrir borgarmörk-
in”, sagði Chmura.
Áðspurður sagðist Chmura
aldrei hafa unnið meö Birgit Nils-
son áður, en hann hlakkaði til
samstarfsins. Hann sagðist ekki
hafa hugmynd um hvers vegna
hún hefði kosið að hann stjórnaði
hljómsveitinni. „Hún hlýtur að
hafa heyrt min einhvers staðar
getið”, sagði Chmura brosandi.
,,Ég held að þið íslendingar
getiö veriö hreyknir at' Sinióniu-
hljómsveitinni ykkar, þvi að við
fyrstu kynni virðist mér hún góð
ogmeðlimir hennar mjög áhuga-
samir. En mér finnst mikil synd
að þið skuluð ekki eiga betri stað
til tónleikahalds en Laugardals-
höllina. Þetta er auðvitað fyrst og
fremst iþróttahöll en við munum
reyna að gera okkar besta til að
vel takist”, sagði Gabriel
Chmura að lokum. SE
100 árum of
seint á ferð
Umferðarráð sendir
einum átjánþúsund
börnum pésana sina
„Ungir vegfarendur”.
Böm byrja að fá þessi
fræðslurit þegar þau
em þriggja ára gömul.
Ein viðtakendanna er Hall-
dóra Bjarnadóttir á Blönduósi,
sem nú er fjögurra ára, plús
hundrað ár. Halldóra, sem er
fædd 14. október 1873, dvelst nú
á Héraðshælinu á Blönduósi.
Hún er vel hress,fer i hjólastól
á hverjum degi, les blöð og
skrifar bréf. Hinsvegar er hún
litiðá ferli á götum úti og hefur
þvi kannske ekki beinlinis þörf
fyrir fyrrnefndar sendingar.
Hjá umferðarráði fékk Visir
þær upplýsingar að við út-
sendingar væri farið eftir lista
sem fenginn væri frá þjóð-
skránni. Þótti mönnum þar dá-
litið skrýtið að Halldóra skyldi
hafa fengið sendingu frá þeim.
Ekki tókst að finna nafn Hall-
dóru á lista yfir móttakendur á
Blönduósi og er þvi málið hálfu
dularfyllra en ella. En þar sem
sendingarnar eru öllum að
meinalausu gerir það liklega
ekkert til. —óT
Eurofish 79 haldin í
Kaupmannahöfn
I júni á næsta ári verður hald-
in sýning á fiskveiðibúnaði i
Kaupmannahöfn. Nefnist sýn-
ingin Eurofish ’79. Hér er um
samskonar sýningu aö ræða og
þá sem Hampiðjan tók þátt i i
Kanada á s.l. ári með ágætum
árangri, en hana sóttu um 25
þúsund manns frá fjölmörgum
löndum. Að sögn Magnúsar
Gústafssonar forstjóra Hamp-
iðjunnar er ekki enn ráðið hvort
fyrirtækiö tekur þátt i þessari
sýningu en hinsvegar benti
Magnús á, að tslendingar
myndu væntanlega taka þátt i
sýningunni Nordfish sem fram
fer fOsló i nóvember næstkom-
andi.
V L
TEK VI
GÓÐU
D Segir
JBT nýkjðrinn
m ii oddviti
BUI Hvammstanga
,,Ég er nú ekki farin
að átta mig vel á þessu
ennþá” sagði Ragn-
hildur Karlsdóttir sem
kosin var oddviti á
Hvammstanga siðast-
liðin sunnudag og mun
jafnframt vera fyrsta
konan sem gegnir þvi
starfi þar.
„Það mæðir sjálfsagt mest á
sveitastjóranum hvað varðar
allar framkvæmdir; ég er svona
nokkurs konar forseti bæjar-
stjórnar, kalla saman fundi,
sæki ráðstefnur og þess háttar.
Annars hefur hreppnum verið
vel stjórnað undanfarin ár, svo
það má segja að ég taki við góðu
búi” sagði hinn nýkjörni odd-
viti.
Ragnhildur er ekki alveg
ókunnug hreppsnefndarmálum
þar sem hún var fyrsti vara-
maður i hreppsnefnd siðastliðið
kjörtímabil.
Aðspurð sagði Ragnhildur að
uppbygging hefði verið mjög
hröö á Hvammstanga undan-
farin ár og mikið verið byggt og
næg atvinna heföi verið. Hún
sagöi og að hin nýkjörna
hreppsnefnd myndi halda
áfram að vinna að uppbyggingu
bæjarfélagsins.
,,Ég á nú ekki von á að þetta
starf hafi neinar afgerandi
breytingar i för með sér hvað
varðar heimilislif fjölskyldunn-
ar. Þetta er á margan hátt
þægilegtstarf og ég þarf ekki að
vera mikið að heiman” sagði
Ragnhildur Karlsdóttir að lok-
um.
-SE.
NÝKOMIN
Vorum að fá þessi
glaesilegu hollensku
táningahúsgögn
Sendum í pástkröfu um land allt