Vísir - 13.06.1978, Blaðsíða 6
A
okkur
sjá um
að smyrja
bílinn
reglulega
Passat
Audi 100 Avant
OPIÐ FRÁ KL. 8-6
HEKLAh
Smurstöð
VENESÚELA:
Ný aðferð við oliuvinnslu
Nú er farið að dæla oliu úr iðrum jarðar i Venesúela
i Suður-Ameríku eftir nýjum aðferðum. Nýja tæknin
getur orðið til þess að landið verði eitt hinna ríkustu í
heimi. Venesúela ræður yfir miklum olíulindum, en
það hefur reynst erfitt að koma henni upp á yf irborð
jarðar, vegna þess hve þykk hún er. En nú hef ur verið
séð við því og svarta gullið f læðir upp á yfirborðið og
skilar landinu ómældum fjárfúlgum.
Nýja aðferðin var fyrst reynd í hollenskri rann-
sóknarstof u fyrir meira en tuttugu árum síðan. Síðan
hef ur hún þróast og nú loks hef ur verið farið út í risa-
f ramkvæmdir.
Vatni dælt í holurnar
Nýja aöferðin til aö ná oliunni
upp er fólgin i þvi aö dæla miklu ,
magni af sjóöandi vatni i bor-
holurnar. Meö þessu móti næst
olian upp á yfirborðið.
Oliusvæöið er á austurströnd
Maracaibo-vatns i Noröur-
Venesdela. Þar er áætlaö aö
hægt sé að vinna um 34 billjónir
tunna. Meö hefðbundnum að-
ferðum var áætlað aö hægt væri
að vinna 3,4 billjónir tunna, en
nú eru menn bjartsýnir á aö
takist að vinna alla oliuna meö
nýju aðferöinni.
Olia var þjóðnýtt i landinu
áriö 1975 og þaö er oliufélag
rikisins , Maraven, sem hefur
unnið aö tilraunum meö nýju
aöferöina. Forstjóri þess,Nelson
Vasques, sótti þekkingu sina til
Bandarikjanna þar sem hann
starfaði um skeið. Einnig hefur
hann kynnt sér þær aðferðir
sem notaðar eru til aö vinna oliu
i Norðursjó.
Gert hafði veriö ráð fyrir aö
oliulindir i landinu myndu end-
Dælt niður á 500 metra
dýpi
Vatniö i borholurnar er fengiö
úr Maracaibo-vatni. Þaö er leitt
i mikla tanka þar sem það er
soðið. Einnig er allt salt og súr-
efni tekið úr vatninu, áöur en
þvi er dælt i holurnar, en þær
eru um 500 metrar á dýpt. Vatni
er dælt i 19 holur, en 132 brunnar
hafa verið geröiqog sérstaklega
útbúnir, þar sem olian kemur
svo upp.
Ef nýja vinnsluaöferðin tekst
sem skyldi mun olian færa
landinu mikinn auö. Svo mikinn
aö það mun teljast meö rikustu
löndum i heimi.
Þriöjudagur 13. júni 1978 VISIR
Venesúela hefur yfir miklum olíulindum að ráða, en það hefur reynst erfitt að
koma henni upp á yfirborð jarðar.
ast i um tuttugu ár, þar sem
ekki var talið að hægt yrði að
vinna alla oliuna i iðrum jarðar.
Nú hefur hins vegar komið á
daginn að þær endast i hundruð
ára, ef hægt er að ná oliunni
upp á yfirborðið með nýju að-
ferðinni. Stjórnvöld hafa látið
frá sér fara þær upplýsingar að i
landinu öllu séu milli 700 til 2000
billjónir tunna af oliu. Til
samanburðar má geta þess að
talið er að Arabar hafi yfir að
ráða um 170 billjónum tunna, en
þær munu endast i um fjörutiu
ár, að þvi er taliö er.
Kostnaður við að koma upp
öllum þeim búnaði sem til þarf
til að ná oliunni upp á yfirborðið
er komin upp i 35 milljónir
Bandarikjadala. Þessar fram-
kvæmdir marg-borga sig,þvi
talið er að tekjur landsins af oli-
unni muni nema um 300 þúsund
dölum á dag.
Umsjón: Katrin Pálsdóttir
Bandaríkin:
Það hefur lítið heyrst
frá stjórnmálamanninum
bandaríska Wayne Hays,
síðanvinkona hans Eliza-
beth Ray kom af stað
miklu hneykslismáli fyrir
tveim árum. Það mál
varð til þess að hann
þurfti að segja af sér
þingmennsku í öldunga-
deildinni, og draga sig í
hlé. Nú er Hays í sviðs-
Ijósinu að nýju, en það er
ekki vegna hneykslis-
máls, heldur vann hann
mikinn sigur i kosningum
i Ohio-ríki, þar sem hann
situr næstu fjögur ár í
fylkisstjórn fyrir demó-
krata.
Hays var einn valdamesti
Oldungadeildarþingmaður i
Washington þegar hneykslið
kom upp. Hann varö að draga
sig i hlé og láta af öllum em-
bættum eftir að Elizabeth Ray
haföi upplýst að hann hefði sett
hana á launaskrá rikisins og þar
heföi hún fengið greitt kaup
fyrir að vera vinkona hans. Sið-
an hefur Hays sýslaö við hús sitt
i Ohioriki.
1 samtali viö blaðamenn sagöi
hann aö hann hefði ekki haft
nægilega mikiö fyrir stafni og
þvi hefði hann ákveðiö aö bjóöa
sig fram til starfa fyrir rikiö.
Kjósendur létu hneykslismál-
iö ekkert á sig frá og greiddu
Hays atkvæði sitt. Hann haföi
Hays í sviðs-
Ijósið að nýju
starfaö vel fyrir riki sitt meðan
hann sat i Washington og þvi
hafa kjósendur ekki gleymt.
Hays fékk helmingi fleiri at-
kvæði en keppinautur hans um
sætið á fylkisþinginu.
Hays hefur neitað þvi aö saga
Ray sé sönn. Hann hafi aldrei
sett hana á launaskrá hjá rik-
inu. Hún vann við vélritun og
svaraði i simann, sagði hann.
Kjósendur sem spurðir voru
af hverju þeir hefðu kosið Hays,
sögðu aö hann hefði aöeins verið
óheppinn, það heföu margir
menn meira á samviskunni en
hann,sem starfa i Washington.
Wayne Hays þurfti að
segja af sér vegna
hneykslismáls sem
kom upp fyrir tveim
árum og vinkona hans
Elizabeth Ray ljóstraði
upp.