Vísir - 13.06.1978, Síða 13
VISIR Þriðjudagur 13. júní 1978
13
Leikstjóri/ höfundur og leikarar Galdralands.
Góðir gestir að norðan
Leikfélag Akureyrar sýnir í Iðnó í tilefni Listakótíðar
„Við sýnum i Iðnó þá
tvo sjónleiki sem verið
hafa á fjölunum hjá
okkur nyrðra i vor,
Hunangsilm og bama-
leikritið Galdraland”,
sagði Brynja Bene-
diktsdóttir, leikhús-
stjóri hjá Leikfélagi
Akureyrar, er við
ræddum við hana.
„Bæði þessi leikrit hafa verið
mjög vel sótt hjá okkur og hafa
hlotið afbragðsgóða dóma gagn-
rýnenda fyrir norðan og i blöð-
um i Reykjavik”.
Hunangsilmur er eftir
Shelagh Delaney. Skrifaði hún
verkið þegar hún var einungis
18áragömul og varð á skammri
stundu heimsfræg. I stuttu máli
fjallar leikritið um viðhorf 18
ára unglingsstúlku til umhverf-
isins. Auk stúlkunnar kom við
sögumóðir hennarsem er frem-
ur létt á kostunum, þeldökkur
piltur, sambýlismaður móður-
innar sem er fremur kvenlegur
en hitt, og viðhald móðurinnar.
Leikstjóri Hunangsilms er Jill
Brook Arnason en hlutverk eru i
höndum Kristinar A. Ólafs-
dóttur, Sigurveigar Jónsdóttur,
Þóris Steingrimssonar, Gests E.
Jónssonar og Aðalsteins Berg-
dal. Leikmynd er eftir Hall-
mund Kristinsson en búninga
gerði Freygerður Magnúsdótt-
ir.
Barnaleikritið Galdraland er
eftir Baldur Georgs og hefur
verið sýnt viða um land við
mjög góðar undirtektir. t leik-
ritinu koma fram 3 trúðar, sem
nefnast Skralli, Malli og Lalli.
Aðalhlutverk leika Gestur E.
Jónasson, Aðalsteinn Bergdal
og Asa Jóhannesdóttir. Beita
trúðarnir ýmsum galdrabrögð-
um og sjónhverfingum, auk
þess sem þeir eru hinir mestu
hrakfallabálkar. Leikstjóri
Galdralands er Erlingur Gisla-
son.
Siðasta sýning á Galdralandi
hér i Reykjavik verður á morg-
un kl. 5 en sýningar á Hunangs-
ilmi verða i kvöld, annað kvöld
og fimmtudagskvöld. Það er
óhættu að hvetja fólk til þess að
sækja þessar leiksýningar Leik-
félags Akureyrar i tilefni Lista-
hátiðar og er þess skemmst að
minnast hve mikla hrifningu
uppfærsla Leikfélagsins á Gler-
dýrunum vakti á siðustu Lista-
hátið. —ÞJH
LÍV
AFSLÁTTUR AF
SUMARFERÐUM
Stjórnir Verslunarmannafélags Reykja-
víkur og Landssambands islenskra versl-
unarmanna, hafa samið við ferðaskrif-
stofurnar Samvinnuferðir og Landsýn um
10.000 kr. afslátt fyrir félagsmenn og fjöl-
skyldur þeirra i sumarleyfisferðir. 5.000
kr. afsláttur er veittur fyrir börn 2-15 ára.
Farið verður til:
COSTA DEL SOL 22/6 7/7 3/8 8/9
JÚGÓSLAVÍU 27/6 12/9 20/9
ÍRLANDS 17/8 7/9
Allar nánari upplýsingar veita ferðaskrif-
stofurnar Samvinnuferðir i sima 27077,
Landsýn i sima 28899.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
Landssamband íslenskra
verslunarmanna
Sigurveig Jónsdóttir og Kristín Á. ólafsdóttir í hlut-
verkum sinum í Hunangsilmi.
REYKJAVÍK:
Samdráttur
í malbikun
„Það verður eitthvað
minna malbikað í ár en
venja hefur verið undan-
farin ár og talsvert
minna í yfirlögnum",
sagði Ólafur Guðmunds-
son, yf irverkfræðingur
hjá embætti gatnamála-
stjóra í Reykjavík, í sam-
tali við Visi í morgun.
„Astæðan er litil fjárveiting”,
sagði Ólafur, ,,en búast má við
að það breytist þegar fjárhags-
áætlunin verður endurskoðuð i
sumar”.
Þess má geta til samanburðar
að áætlað er að malbikað verði
úr 20 þúsund tonnum af malbiki
i sumar en i fyrra var sambæri-
leg tala um 35 þúsund tonn.
—H.L.
Póstsendum um land allt
Strandgötu 34
Sími 52070
Mfttisjakkar
Mikið
úrval
af
nýjum
vörum
Stakir jakkar
DÖMUPILS OG BLÚSSUR
TELPNAPILS OG BLÚSSUR
Jakkar og buxur
Alltaf
eitthvað
nýtt