Vísir - 13.06.1978, Blaðsíða 18
18
Þriftjudagur 13. júnl 1978 VISIR
Bensínfótarspyrna í Ölfusi
Þaö var Iltiö tekiö upp af kartöflum um helgina. Ekki þar fyrir, aö
| eitthvaö hafi legiö á þvl, enda menn nýbúnir aö setja niöur. En allt
j um þaö fór fram sandspyrnukeppni á vegum Kvartmlluklúbbs
| Reykjavikur aö Hrauni I ölfusi á sunnudaginn aö viöstöddu fjöl-
menni. Snemma morguns voru keppendur mættir á staöinn, lang-
þreyttir eftir mikinn undirbúning en baráttuglaöir og munu
sumir ekki hafa talaö viö annaö eri skiptilykla og topplyklasett
siöustu dægur. Höföu sumir fengiö sérstaka meöferö, svokallaö
! henslnfótarnudd, enda þung áhersla lögö á atgervi þess fótar um-
j fram aöra likamshluta.
Sigurvegarar voru þeir Benedikt Eyjólfsson I jeppaflokki, Jón H.
| Magnússon i mótorhjólaflokki og I flokki fólksbila bar Finnbjörn
[ Kristjánsson sigur úr býtum.
Athygli vakti, aö keppendur stórbættu tima slna frá siðustu
| keppni og viröist sifellt meira lagt upp úr búnaöi tækjanna.
—ÓM
Engin ámoksturstæki, engir vörubílar. Sandurinn f luttur til meö amerískum trylli-
tækjum.
Jón H. Magnússon sigurvegari i mótorhjólaflokki.
Skyldi konan hans vita hver þessi Suzuki er?
Vísismyndir: Þórir
tokum emnig að okkur dreifingu.
er þetta ekki leiðin til tunglsins?
Góðan daginn
Verkstjórarnir reknir?
„Viö munum leggja fram nýj-
ar tillögur til lausnar deilunni á
bæjarstjórnarfundi i dag” sagði
Andrea Þóröardóttir bæjarfull-
trúi Óháöra I Hafnarfirði um
deiluna i Bæjarútgerö Hafnar-
fjarðar er Visir ræddi við hana i
gær. Ekki vildi Andrea skýra
nánar frá efni tillagnanna, en
blaðið hefur fregnað að þar
muni.lagt til að verkstjórarnir
umdeildu veröi reknir strax en
ekki gerð tilraun til að láta nýja
menn taka við störfum þeirra f
stuttan tima meðan málin verði
rædd. Mun þaö skoöun ein-
hverra bæjarfulltrúa, að það
þjóni engum tilgangi að hafa
verkstjórana á launum i tveggja
mánaða tima þar eð verkafólkið
muni ekki frekar sætta sig við
stjórn þeirra aö þeim tima liön-
um. Ekki er vitað til aö nýir
menn hafi fengist til að taka að
sér verkstjórnina.
ÓM
Þessi mynd var tekin er æfing stóö yfir á leikritinu.
FRUMSÝNING í KVÖLD
NORRÆNA FÉLAGIÐ í REYKJAVÍK:
Gylfi Þ. kosinn formaður
Aöalfundur Reykjavlkurdeildar
Norræna félagsins var haldinn
fyrir skemmstu. Guöni Þóröar-
son, forstjóri, sem verið hefur
formaöur deildarinnar s.l. fjög-
ur ár baöst undan endurkjöri og
var Gylfi Þ. Gislason fyrrv. ráö-
herra einróma kosinn formaöur
til næstu tveggja ára.
Aðrir I stjórn deildarinnar eru
Arnheiður Jónsdóttir, Gils Guð-
mundsson, Jóna Hansen,
Magnús Oddsson, Sigurður Þór-
arinsson og Vilhjálmur Þ.
Gislason.
A fyrsta stjórnarfundi var
ákveöið að vinna aö þvi á næsta
hausti og vetri að kynna nor-
ræna sjóði og möguleika á
styrkjum úr þeim. Einnig að
kynna ungu fólki námsmögu-
leika á Norðurlöndum og nor-
ræna námsstyrki. A fundinum
kom fram almennur vilji að
bjóða hingað til lands einum
mikilhæfum og þekktum stjórn-
málamanni og minnast á eftir-
minnilegan hátt 500 ára afmælis
Hafnarháskóla á næsta vetri.
Frumsýnt verður I kvöld I Þjóð-
leikhúsinu leikrit Jökuls
Jakobssonar „Sonur skóarans
og dóttir bakarans”. Er leikritið
sýnt nú I tilefni Listahátlðar og
er vafalaust eitt af þeim afriö-
um hátíðarinnar sem hvað
mesta eftirvæntingu vekur.
Jökull var búinn að vera I fjölda
ára að skrifa þetta leikrit, eða
um það bil 10 ár alls. Hann
fylgdist mjög vel með undirbún-
ingi aö uppfærslu leikritsins og
hafði verið á þremur fyrstu æf-
ingunum er hann lést. Helgi
Skúlason leikstýrir verkinu og
lét hann svo um mælt i viðtali
við Visi, er birtist fyrir
skömmu, að þetta leikrit væri
hið viðamesta er Jökull hefði
samiö. Þetta væri fjölmenn sýn-
ing og spannaði mörg sviö
mannlegra samskipta.
Arnar Jónsson leikur aðal-
hlutverkið en auk hans eru I
stórum hlutverkum þau Róbert
Arnfinnsson, Kristbjörg Kjeld,
Rúrik Haraldsson, Þóra Friö-
riksdóttir, Edda Björgvinsdóttir
og Kristin Bjarnadóttir. „Sonur
skóarans og dóttir bakarans”
verður sýnt tvisvar á Listahátlö
I kvöld og annað kvöld. Aðeins
örfáir miðar á efri svölum eru
til á báðar sýningar.
—ÞJH