Vísir - 24.06.1978, Blaðsíða 16
Laugardagur 24. júni 1978
Rœtt við brœðurna Kristján og Sigurð Finnbogasyni um
óvenjulega reynslu þeirra í þjónustu Mafiunnar
Eftir þvi sem best er vitað hefur
starfsemi Mafiunnar litið komið við
daglegt lif okkar íslendinga enda höf-
um við gjarnan litið á þetta fyrirbæri
úr fjarlægð og látið okkur fátt um
finnast.
Bræðurnir Kristján og Sigurður
Finnbogasynir hafa þó aðra sögu að
segja. Þeir voru i þjónustu þessara
illræmdu glæpasamtaka fyrir nokkr-
um árum og i eftirfarandi viðtali
skýra þeir frá óvenjulegri re>nslu
sinni.
Frásögn þeirra bræðra tengist
einnig á sérstæðan hátt afdrifum
gömlu Esjunnar, sem flestir lands-
menn muna frá strandferðunum hér i
eina tið. Og sjálfsagt eru þeir fáir,
sem vissu að kaupendur Esjunnar
voru Mafiuforingjar.
í hendur Mafiunnar
ViB byrjum á byrjuninni og það
er Kristján sem hefur orBiB:
„UpphafiB má rekja til þess
þegar gamla Esjan var seld áriB
1969. Ég var þá vélstjóri og áhöfn-
in sem sigldi skipinu út var is-
lensk, aB undanskildum skip-
stjóranum, sem var enskur
maBur aB nafni Patric Corfe
Cother. ViB þann mann átti ég
seinna eftir aB hafa mikil sam-
skipti og æriB misjöfn en hann var
fulltrúi eða skósveinn þeirra sem
keyptu Esjuna en þeir tilheyrBu
amerisku Mafiunni, eins og
seinna kom á daginn. Liklega hef-
ur enginn hér heima vitaB þaB þá,
a.m.k. vissi enginn af skipshöfn-
inni þaB.
ViB sigldum frá Reykjavik til
Englands þar sem áhöfnin fékk
nýja einkennisbúninga og siöan
varhaldiðtil Madeira. Þar tókum
viB oliu og sigldum siðan beint
yfir Atlantshaf með stefnuna á
Bahamaeyjar, sem var áfanga-
staðurinn. ViB sáum ekki land i
tólf sólarhringa og hefBum aldrei
fundiB Bahamaeyjar ef áhöfnin
hefði ekki veriB islensk.
Þeir rifust mikiB um stefnuna
GarBar Þorsteinsson 1. stýri-
maBur og skipstjórinn, en sann-
leikurinn var sá aB karlinn hafBi
ekki hundsvit' á siglingafræBi.
Hann hafði fengiB einhvers konar
pungapróf út á aB sigla prömm-
um um Thames auk þess sem
hann haföi eitthvaB fengist viö aB
sigla snekkjum fyrir auðkýfinga
m.a. fyrir kvikmyndaleikarann
Eroll Flynn. En hvaö um þaB,
Kristján bendir blaða-
manni Helgarblaðsins á
undirskrift eins Mafiufor-
ingjanna Tom Timinsky,
en þeir deildu hvað mest
vegna yfirvinnunnar eins
og kemur fram í viðtalinu.
hann var allavega ekki fær um aB
stjórna skipi á úthöfunum. A
leiöinni'til Bahamaeyja þurftum
við að sigla beint i súður til aö
forðast fellibyl og þá missti karl-
inn stefnuna og vissi ekki sitt
rjúkandi ráö. Garðar tók þá viB
og kom okkur heilu á höldnu á
áfangastað sem var eyjan Grand
Bahama.11
Guðfaðirinn
„Höfuöborgin á Grand Bahama
héitir þvi góðkunna nafni Free-
port. Þar ræður rikjum fyrirtæki
sem nefnt er „Grand Bahama
Portauthority” en forráöamenn
þess áttu eyjuna ef svo má segja.
Þeir réöu yfir öllum verðmætum
sem þarna voru og stjórnuöu öll-
um fyrirtækjum, þar á meðal út-
gerðarfyrirtækinu sem keypti
Esjuna. Auk þess áttu þeir öll finu
hótelin, spilavitin, skemmtistaöi
og helstu verslanirnar og starf-
ræktu þarna vinframleiöslu og
getnaðarvarnarverksmiðjur svo
eitthvað sé nefnt. Og eftir þvi sem
ég best veit er starfsemi þeirra
þarna á eyjunni enn i fullum
gangi.
Höfuðpaurinn, sem i þessu til-
felli má kalla „guðföðurinn” er
maður sem kallaður er Mr.
Groves en hann á nokkuB sér-
stæða sögu aö baki sér.' Hann’
hafði veriB bankastjóri i Seattle,
þar sem hann dró sér stórfé en
kom peningunum undan til Sviss.
Bankinn fór á hausinn og Mr.
Groves var stungið inn þar sem
Vlðfal: Sveinn Guðjonsson
Mýndir: Gunhttr Andrésson o.fl.
j þjónustu Mafiunnar