Vísir - 07.07.1978, Qupperneq 7
7
Skattabyltingin
í Kaliforníu
leiddi til lœkk-
unar útgjalda
En hún gœti reynst Jerry Brown, ríkisstjóra, happdrœtti
Skattabyltingin i
Kaliforniu náði upphaf-
legum tilgangi sinum i
gær, þegar Jerry
Brown, rikisstjóri,
beitti neitunarvaldi
sínu gegn hækkun
launa ríkisstarfs-
manna, lagði blessun
sina á minnkun fram-
laga til fóstureyðinga-
sjóða og undirritaði þá
loks fjárlög Kaliforníu,
sem hann kallaði bæði
mögur og ströng.
Lokatölur fjárlaganna vorú
upp á 14.7 milljarða dollara,
sem eru nærri stærstu fjárlög
nokkurs rikis í Bandarikjunum,
en þetta er I fyrsta sinn I 17 ár,
sem tilraun þykir vera sýnd til
þessaðdraga úr útgjöldum þess
opinbera.
Þessi niðurskurður útgjalda
tók einnig til væntanlegra hækk-
ana á almennum tryggingum.
Kemur hann i kjölfarið á at-
kvæðagreiðslu, sem fram fór
fyrir mánuði I Kaliforniu (fjöl-
mennasta riki USA), þar sem
kjósendur greiddu þvi yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða sinna
að dregið skydi úr fasteigna-
skstti
' Umræðurnar fyrir þá at-
kvæðagreiðslu hafa verið kall-
aðar skattabyltingin, þar sem
kjósendur fylktu sér undir slag-
orð á borð við: „Besta leiðin til
þess að koma i veg fyrir eyðslu
þess opinbera, er að láta það
ekki hafa peningana”.
Þessi vakning hefur siðan
bergmálað i öllum rikjum USA,
og leynist ekki lengur andúö al-
mennings á þvi, sem hann kall-
ar „skattpiningu”. — Þykir íik-
legt, að þessi vakning eigi eftir
að breiðast út til annarra landa,
þar sem hún getur viöa fundið
góðan hljómgrunn, og hefur
raunar þegar sýnt sig áður, eins
og I Danmörku þar sem Fram-
faraflokkur Glistrups varð
næststærsti stjórnmálaflokkur
landsins strax i sinum fyrstu
kosningum, en stefna Glistrups
var niðurskurður opinberra út-
gjalda og hann sjálfur frægur af
baráttu sinni við skattalögin.
1 Bandarikjunum hafa stjórn-
málamenn strax áttaö sig á þvi,
hvað klukkan slær, og allir sem
einn lýst sig fylgjandi meiri
sparnaði i umsvifum þess opin-
bera.
En jafnvel með mikilli nýtni
og hagræðingu hjá þvi opinbera
verður naumast komið á móts
við óskir kjósenda um minni
skatta — eða alla vega ekki
meiri hækkun þeirra — öðruvisi
en minnka eitthvað þjónustu
þess opinbera við þá, eins og t.d.
með fækkun I lögregluliði, kenn-
araliði, slökkviliði o.s.frv. Eða
með þvi að halda launum opin-
berra starfsmanna niðri. Það er
ekki alltof liklegt til vinsælda
heldur.
Fyrir hinn 38 ára gamla rikis-
stjóra Kaliforniu, Jerry Brown,
er undirritun þessara fjárlaga
töluvert happdrætti. Brown er
talinn liklegur til þess að keppa
að útnefningu demókrata fyrir
forsetakosningarnar 1980 við
sjálfan Jimmy Carter. Það er
að segja, ef hann nær endurkjöri
sem rikisstjóri núna i nóvem-
ber.
Þegar Brown var kjörinn
rikisst jóri fyrir tveim árum, gat
hann þakkað það að miklu leyti
öflugum stuðningi samtaka
opinberra starfsmanna I Kali-
forniu, sem hann hefur nú staöið
i vegi fyrir að fái launahækkan-
ir.
Dóttir forsœtisróð-
herrans ataði
þingmenn taði
Yana Mintoff, dóttir
forsætisráðherra
Möltu, á yfir höfði sér
að verða sett á saka-
bekk i London, en hún
var önnur þeirra, sem
köstuðu plastpokum,
troðnum af hrossataði,
yfir þingmenn neðri
málstofunnar í gær.
Þingmenn gátu þakkað það
viðbragðsflýti og fótum, ef þeir
sluppu undan þessum sending-
um ofan af áheyrendapöllunum,
þar sem Yana og 24 ára gamall
atvinnulaus Iri létu pokunum
rigna niður i þingsalinn. —
Flestir pokanna sprungu við
snertingu.
Gera varð hlé á þingstörfum,
meðan salurinn var gerður
hreinn aftur.
1 dreifimiðum, sem fyigdu
hrossataðinu sögðust þessi tvö
vilja leiða athygli manna að
kröfum IR A-hryðjuverka-
manna I fangelsum á N-lrlandi,
en þeir krefjast sömu meöferð-
ar og striðsfangar.
Fyrr i gær höfðu fjórar konur
lagst i götuna fyrir framan
Buckingham-höll og fyrir fætur
á hestum iifvarða hennar
hátignar. Gátu vaktaskiptin
ekki farið eðlilega fram, en það-
er athöfn, sem jafnan laðar aö
sér fjölda manns. — Konurnar
fjórar sögöust krefjast betri að-
búnaðar til handa 85 irskum
hryðjuverkamönnum (IRA) i
irskum fangelsum. — Margir
þessara fanga eru i hungur-
verkfalli um þessar mundir.
Draugar
nasista
Hart hefur verið lagt
að dr. Hans Filbinger,
forsætisráðherra kristi-
legra demókrata i Bad-
en-Wiirttemberg, að
segja af sér vegna
dauðadóma, sem hann
kvað upp sem dómari
fyrir 33 árum.
Hinn 64 ára gamli flokksleiðtogi
(sem þessa dagana er I frii i
Sviss) viðurkenndi i gær sann-
leiksgildi blaðafrétta um, að hann
hafi dæmt 2 þýska sjóliða til
dauða I Noregi (á hernámsárun-
um) i april 1945 eða nokkrum vik-
um fyrir styrjaldarlok.
Annar var dæmdur fyrir lið-
hlaup, en hinn fyrir morð og lið-
hlaup. — Hvorugum dauðadómn-
um var fullnægt, þvi að báðir sjó-
liðarnir höfðu sloppið til Sviþjóð-
ar.
Fyrr á þessu ári sætti dr. Fil-
binger gagnrýni fyrir að hafa
krafist dauðarefsingar yfir 22 ára
gömlum liðhlaupa, sem tekinn
var af lifi i Osló i mars 1945.
Fram til þess aö tímaritið
„Stern” birti i fyrradag fréttir af
þessum tveim liðhlaupum til við-
bótar, hefur dr. Filbinger haldið
þvi fram,að mál 22 ára liöhlaup-
ans hefði verið eini dauðadómur-
inn, sem hann hefði átt hlut að. 1
útvarpsviðtali i gær sagði hann,
að hin tvö tilvikin hefðu liðið sér
úr minni.
Stjórnarandstaðan og mörg
blöð V-Þýskalands hafa krafist
þess, að Filbinger segi af sér.
Jafnvel einn áhrifamanna meðal
fiokksbræðra hans hefur tekið
undir gagnrýnina.
Gagnrýninni fyrr i vetur svar-
aði dr. Filbinger með þvi, að hann
hefði ávallt verið andstæðingur
nasismans og hefði einungis fylgt
fyrirmælum.
Meðal
efnis í
Helgar-
blaðinu
w
a morgun:
„Þarna mættust ást-
heitar meyjar og
kraftmiklir sjómenn”
— Ási i bæ er fyrir löngu orð-
inn eins konar þjóðsagnaper-
sóna I vitund Islendinga enda
komið viða við á viöburðariku
æviskeiði. En hvort sem við
tölum um rithöfundinn, sjó-
manninn, lagasmiðinn, út-
gerðarmanninn eða textahöf-
undinn Asa i Bæ verða Vest-
mannaeyjar óhjákvæmilega
umgjörð atburðanna. Sveinn
Guðjónsson, blaðamaður,
ræðir við Asa um lifið i Eyjum
fyrr og nú, um ástir, sjó-
mannsku, skáldskap, tónlist
og fleira.
„Engum eru íslend-
ingar likir”
— segir Guðmundur Danieis-
son, rithöfundur m.a. i siðari
hluta viðtais ómars Þ.
Halldórzzonar við Guðmund
þar sem þeir ræða m.a. um
lifsgátuna og heilbrigða skyn-
semi...
Á bak við tjöldin
Heigarblaðið bregður sér aö
tjaldabaki á Sumargleöi
Ragnars Bjarnasonar og
félaga og fylgist með þvi sem
þar fer fram.
Vikivaki
Páll Pálsson ræðir við sænsk-
islensku hl jóm s v eitina
Vikivaka
Auk þess:
Konur i myndlist:
Svala Sigurleifsdóttir ræðir
við Þuriði Fannberg, mynd-
listarmann.
Svipmyndir af
Ameriku
— eftir ólaf Hauksson
Eitt í einu:
— eftir Steinunni Sigurðar-
dóttur
Og margt fleira helgarlesefni
er i blaðinú að venju.
Missið
ekki af
Helgar-
blaðinu
ó morgun: