Vísir - 07.07.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 07.07.1978, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 7. júli 1978 VISIR Útgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. X ólafur Ragnarsson jM Ritstjórnárfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund ur Pétursson. Umsjón með helgarbiaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdótfir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefáns- son, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson, Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Björgvin Pálsson, Jens Alexandersson. Utlitog hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglysinga- og sölustjóri: Páll Stefá'nsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétyrsson Auglysingar og skrifstofur: Siðumúla 8. simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Jtitstjorn: Siöumjila 14 sjmi 86611 7 ijnur Askriftargjald erkr. 2000 á mánuöi innanlands. I * Verð i lausasölu kr. 100 eintakið. Prentun ] Blaöaprent h/f. PÓUTÍSKT BRASK Segja má að landið sé án ríkisstjórnar um þessar mundir. Fráfarandi ráðherrar sitja að formi til í ráðu- neytunum, en án raunverulegs valds. Ráðleysisástand rikir í viðræðum f lokksleiðtoganna, sem enn hafa ekki komið sér saman um hvernig standa skuli að samningum um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Á meðan þessu fer fram eru hin eiginlegu ráð í þjóð- félaginu í höndum Guðmundar J. Guðmundssonar for- manns Verkamannasambandsins, sem gefur út tilskip- anir ýmist um algjört útflutningsbann eða smá- skammtaheimildir til þess að flytja framleiðsluvörur okkar til sölu á erlendum mörkuðum. Þannig hefur einn þrýstihópur í landinu tekið lög og rétt í sínar hendur. Menn verða að sækja um útf lutnings- leyf i til Guðmundar J. Guðmundssonar rétteins og menn voru háðir opinberum innflutnings- og f járfestingar- leyf um á haftatímanum. Munurinn er þó sá, að þau höft voru ákveðin með lögformlegum hætti af réttkjörnum stjórnvöldum, en útflutningshöftin byggjast á valdtöku þrýstihóps. Hér er ekki um verkfallsaðgerð að ræða, þvi að ekki einn einasti verkamaður hefur farið i verkfall vegna haftareglna Guðmundar J. Guðmundssonar. ( lýðræðis- þjóðfélagi á það ekki að geta gerst að þrýstihópur geti sett á útf lutningshöft eins og þau, sem verið hafa í gildi að undanförnu. Verkamannasambandið tók sér rétt til þess að setja á útf lutningshöft í því skyni að knýja á um að lög um tak- mörkun verðbóta á laun yrðu felld úr gildi. Þessi vald- beiting hef ur haft veruleg pólitísk áhrif nú þegar og hún hef ur leitttil þess að hið raunverulega ástand efnahags- mála er að koma i ijós. Nú stendur upp á Guðmund J. Guðmundsson að svara því, hvort hann ætlar að halda áfram útflutningshöft- unum á sama tíma og f ramleiðslustarf semin í landinu er að stöðvast. Útflutningshöft hans eru ekkert annað en pólitískt verkalýðsforingjabrask. Sannleikurinn er sá, að verðbótatakmörkunin var ekki aðeins óhjákvæmileg í febrúar heldur hefði þurft að f ramkvæma hana fyrir ári síðan ef vel hefði áttað vera. Kjarasamningarnir, sem gerðir voru á síðasta ári, hafa nú enn einu sinni leitt til þess að ekki verður komist hjá verulegri gengisfellingu. Ef taka á þá kröf u verkamannasambandsins til greina að greiða fullar verðbætur á laun samkvæmt samning- um leiðir það til þess eins að fella þarf gengi krónunnar enn meir en fyrirsjáanlegt er miðað við óbreytt ástand. Útflutningshöft Guðmundar J. Guðmundssonar eru því krafa um áframhaldandi víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags, og því raunverulega krafa um meiri verð- bólgu.Það er hægur vandi að ganga að öllum kauphækk- unarkröfum með því að rýra verðgildi krónunnar, en það er ábyrgðarleysi. Þetta hafa meira að segja sósíalistar í meirihlutafor- ystu í borgarstjórn Reykjavíkur viðurkennt með því að hafna kröf u Verkamannasambandsins um óskertar vísi- tölubætur samkvæmt samningum. Útflutningsbannið var frá upphafi siðlaus aðgerð sem liður í pólitísku braski og verður nú siðlausari með degi hverjum eftir því sem atvinnuöryggi er tef It í meiri tvisýnu. Þeir sem hafa tögl og hagldir i stjórn landsmála eins og sakir standa eru pólitískir verkalýðsforystubrask- arar. Á þeim hvílir ábyrgð i f ullu samræmi við það vaid, sem þeir hafa tekið sér. Setiö á ráöstefnu á Hótel Hoiti um væntaniega gerö kvikmyndarinnar. Frá vinstri: Björn G. Björnsson, leikmyndateiknari, Rolf Heydrich, leikstjóri hjá sjónvarpinu I Hamborg, Jón Laxdal, leikari og Hirc- mann einn af forstjórum sjónvarpsins I Hamborg. Visismynd: SHE. Fimm klukkustunda sjónvarpsmynd um Paradísarheimt ,,Viö komum hingaö aöallega til aö spjaiia viö Halldór um væntanlega kvikmyndatöku, og kynnast óskum hans i þeim efn- um”, sagöi Jón Laxdal, leikari, er viö spjölluöum viö hann i morgun, en Jón er nýkominn hingaö til lands. I för með Jóni eru þeir Rolf Heydrich, leikstjóri hjá sjón- varpinu i Hamborg og Hirch- mann, einn af forstjórum þess, en þeir félagar hyggjast ráöast i þaö næsta sumar meö hjálp góöra manna aö hefja kvik- myndun á Paradisarheimt Hall- dórs Laxness. Rolf Heydrich hefur samiö kvikmyndahandrit- iö að Paradisarheimt, en Jón þýddi þaö á islensku. „Ætlunin er aö fara yfir hand- ritið meö Halldóri, og velta fyrir okkur hlutverkaskipan”, sagöi Jón. „Litið hefur veriö ákveöiö um hana ennþá, en þó hefur verið rætt um, aö ég fari meö hlutverk Þjóöreks biskups. I myndinni veröa bæöi islenskir, danskir og þýskir leikarar, og er ljóst, að tslendingar verða i talsvert mörgum hlutverkum. Um helgina munum við svo fara i könnunarleiðangra á staöi, sem til greina kemur að nota viö kvikmyndunina. Meö okkur verðurBjörn G. Björnsson, leik- myndahönnuöur, en hann mun liklega taka þátt i gerð leik- mynda fyrir kvikmyndina. Að sögn Jóns veröur myndin um Paradisarheimt þriggja kvölda sjónvarpsmynd, fimm klukkustunda löng. Veröur hún tekin á tslandi, i Danmörku, i Utah og i Skotlandi. „Ég hlakka mikið til að vinna aö gerö þess- arar kvikmyndar”, sagöi Jón. „Paradisarheimt er dásamleg bók. Þetta er saga um mann, og um leið saga okkar allra. Þarna kynnumst viö fólki sem leitar um allan heim að sannleikan- um, en finnurhannloks þar sem hann var alltaf —■ heima”. EFN/ ALDI danskur kóngur, sem hér hafi orðiðeftir af misgáningi. Um litiö þjóöfélag sem slikt er alls ekki spurt, enda heyrir öll tilfinning fyrir þjóöfélagi oröið undir remb- ing eöa „rembu”, eins og yngra fólk orðar þaö svo smekklega. Það er hin fyrirlitlegasta tilfinn- ing aö láta sig hina „skoplitlu þjóð” einhverju varöa. Nú tala menn helzt um aö hingaö muni koma einskonar útlendur gúver- nor,senduraf erlendum peninga- stofnunum til aö koma óperettu- þjóöfélaginu niöur á jöröina. Þaö yrði óhugnanleg reynsla — aö maöur tali nú ekki um hvernig fara mundi fyrir þrýstihópunum. Þjóðarsátt og kjarasátt Tvö heiti komu upp á yfirborðið i kosningabaráttunni. Það voru heitin þjóöarsátt og kjarasátt, fari ég rétt meö. Hiö fyrra átti Sjálfstæöisflokkurinn en hiö sið- ara Alþýöuflokkurinn. Kannski eru þessi tvö orö fyrirboöi stjórnarmyndunar aö viöbættum þeim flokki, sem enga sátt bauð og hefur foringja sinn á laxveiðum, þegar komast á hjá þátttöku í stjórnarmynd- unum. Þjóöarsátt er mikið viötækara og réttara orö á þeim varhugaveröu timum, sem viö lifum. Hins vegar skal iátið líggja milli hluta, hvort nokkur veit hvaö svona orö þýöa, þegar til framkvæmdarinnar kemur.Or þvi verður næsta rikis- Það fylgja ekki miklar ásókn. Efnahagsmál og breyting á kosningafyrirkomulagi verða helztu mál næstu rikisstjórnar. Vegna kjörbreytinga má alveg eins búast við aö næsta stjórn sitji ekki út allt kjörtimabilið, heldur efni til tvennra kosninga á miöju stjórnartlmabili sinu, og þá fyrst veröi um einhvern stjórnarfrið að ræöa. Engu aö siöur biöur næstu rikisstjórnar að leysa aökallandi vanda i efnahagsmálum, og mun fara um þær úrlausnir eins og Ur- lausnir annarra rikisstjórna, aö þær veröa aöeins frestun og framlengingá núverandi ástandi. Þrýstihóparnir i þjóöfélaginu eiga itök i hverjum flokki, hvort sem þaö eru nú þeir, sem fengu þokkalegt slangur af atkvæðum i nýliðnum kosningum eða ekki. Og | þessir þrýstihópar sjá um, aö | engar varanlegar lausnir finnist. hugmyndir slíkri Dæmið um verðbólguna, sem viöurkennt er af öllum aö gengur fyrir visitölu, sýnir aö þótt orsök- in sé kunn, skal ekkert viö henni hróflaö. Eins konar útlendur gúvernor 1 rauninni eru rikisstjórnir aö fást viö andstæö þjóöfélagsöfl, sem á pólitlskum og efnahagsleg- um vettvangi standa i innbyröis deilum, en snúa sér i sifellu til rikisvaldsins um úrbætur og upp- bætur eftir þvi hvernig kaupin gerast á eyrinni i þessum deilum. Hvorki er leitaö samkomulags eöa skilnings, heldur er úrlausn- anna krafizt, eins og rikisstjórn og meirihluti Alþingis sé höfuð- fjandinn hverju smni, einskonar

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.