Vísir - 07.07.1978, Page 24

Vísir - 07.07.1978, Page 24
Sleppt wr gœslu Gæsluvarðhald mannsins/ sem réðst inn í íbúö í Vestur- bænum, ógnaði konu með hnífi og neyddi til samræðis, rann út á miðvikudag og var honum þá sleppt. Maðurinn hafði þá setið 30 daga f gæslu- varðhaldi og gengist undir geðrannsókn. Arnar Guömundsson, deildarstjóri Rannsóknar- lögreglu rikisins, sagði i morgun, að niðurstaða geð- rannsóknar hefði ekki gefið tilefni til að óska eftir framlengingu á gæsluvarð- haldinu. Rannsókn málsins væri aö ljúka og það siðan sent rikissaksóknara. —SG Skuld ríkissjóðs við Seðlabankann 26 milljarðar Jókst um tvo milliarða ó einum mónuði i Skuld ríkissjóðs við Seðlabankann var við siðustu mánaðamót tæpir 26 milljarðar krónaog hafði aukist um 2 milljarða frá því greiðsluáætlun gerði ráð fyrir. Rikið ætti sem sagt 1,5 milljarð inni hjá við- skiptavinum sinum. í lok-maí s.l. samkvæmt þeim upplýsingum, er Vísir fékk hjá Höskuldi Jónssyni, ráðu- neytisstjóra í f jármálaráðuneytinu. Höskuldur sagði að þessi greiðslustaða eða skuldaaukning rikissjóðs væri heldur lakari en bú- ist hefði verið við. Þetta stafaði einkum af þvi aö greiðslur i rikissjóð eða fjármagnsinnstreymi hefði verið um 1,5 milljörðum minna en Hins vegar hefði ekkert misræmi komið á milli tekna og gjalda sam- kvæmt greiðsluáætlun rikissjóðs. Að visu hefði hvortveggja breyst með aukinni verðbólgu. Nánar sundurliöað skiptist skuld rikisins við Seðlabankann þannig, að yfirdráttarskuldir á hlaupareikningi voru 7,1 milljaröur, annarskonar lán ógengistryggð 3,2 milljarðar, gengistryggð lán 12,6 milljarðar og gengismunur 3 milljarð- ar. Meginstofn þess, sem nefnt er annars konar lán, er skuld frá siöasta ári, sem breytt var i föst lán i siðasta mánuði. — KS Erveriðvarað vinna að framkvæmdum, þar sem hinn nýi miðbær á aö risa, var af slysni farið með gröfu í tólf tommu plaströr, sem lá þar í leyni einhversstaðar neðanjarðar. Af því stafar þessi myndarlegi vatnsstrókur, sem við sjáum hér á myndinni. Menn frá Vatnsveitunni komu þó f Ijótt á vettvang og skrúfuðu fyrir dýrðina. Vísismynd GVA Steingrímur viff vinstri stiórn „Já, ég er enn sama sinnis", sagði Steingrímur Hermannsson, ritari Framsóknarf lokksins, þegar Visir innti hann eftir því hvort hann væri enn þeirrar skoðunar að Framsóknarflokkurinn ætti ekki að útiloka stjórnaraðild með Alþýðubandalagi og Alþýðu- flokki. „Ég undirstrika það hins vegar að é i tel að sigurvegarar kosninganna eigi að hafa allan veg og vanda af slíku." ,,En Framsóknar- flokkurinn á aö minu mati áö stuðla að þvi”, sagði Steingrimur ennfremur,” aö annaö hvort verði þeir i minnihlutastjórn eða viö meö þeim i stjórnarsam- starfi, verði ekki um annan kost að ræða.” Visir innti Steingrim eftir þvi, hvort hann teldi að skoðun hans ætti mikiö fylgi innan flokksins, og sagöi hann, að erfitt væri að svara þeirri spurn- ingu, en hann teldi þó almennan vilja fyrir þvi að stuöla að myndun minnihlutastjórnar eða meirihlutastjórnar meö hlutleysi eða fullri aöild. Steingrimur sagði, að með þvi að samþykkja málefnasamning minni- hlutastjórnar Alþýðu- flokks og Alþýðubanda- lags, yrði flokkurinn að vissu leyti ábyrgur, en meiri ábyrgð fylgdi beinni þátttöku. „Þetta eru meira og minna fræðilegar hugmyndir og Framsóknarflokkurinn mun ekki eiga neitt frum- kvæði i þessu efni”, sagði Steingrimur. Gsal/ÓM Vilja samstarf við Samtökin Ákveðinn hópur ráðandi manna innan Framsóknarflokksins hefur fullan hug á því að hef ja senn formlegar viðræður við full- trúa Samtaka frjálslyndra og vinstri manna um samstarf þessara tveggja stjórnmálaflokka. Óformlegar viðræður áhrifamanna beggja flokkanna hafa þegar farið fram og mun Stein- grimur Hermannsson,rit- ari Framsóknarflokksins, hafa m.a. tekiö þátt i þeim. Ekki er vitað um hug formanna flokkanna hvaö samstarf áhrærir, en vilji mun vera fyrir hendi af hálfu ýmissa manna úr báðum flokkum fyrir sem viðtækustu samstarfi. A fundi i Félagi ungra Framsóknarmanna i fyrrakvöld báru þessi mál á góma og voru undirtektir fundarmanna góðar. Þó mun þvi ekki að leyna að verulegur ágreiningur rikir um þetta mál sem önnur á framsóknarheimilinu um þessar mundir og er mál manna að hart sé nú bar- ist um völdin innan flokksins. „Hreinsunar- deildin” svonefnda sem er allsráðandi i FUF i Reykjavik og heimtar m.a. framkvæmdastjóra Timans úr stóli sinum og róttækar breytingar á flokksmálgagninu virðist þess albúin að leggja til frekari atlögu gegn flokksforystunni. Þykir ýmsum sem ekki séu ólik- ir timar nú innan flokks- ins og þegar „Möðru- vallahreyfingin” var upp á sitt besta. Fundur verður i fram- kvæmdastjórn flokksins i dag og þykir næsta vist að þessi mál verði rædd þar. Drykkja í Keflavík Keflavikurlögreglan hafði mikið að gera i nótt. Af ástæðum, sem ekki eru kunnar, var geysimikið fyllerí þar syðra i nótt, og fanga- hús lögreglunnar fylit- ist sömuleiðis. Drykkjan fór fram i heimahúsum og á göt- um miðbæjarins. —GA Árásar- maðurinn ófundinn Árásarmaöur- inn, sem réðst á 18 ára stúlku í Hljómskálagarð- inum i fyrrinótt er ófundinn. Mál- ið er i höndum rannsóknarlög- reglunnar. —GA Kúrekamynd í Vísisbíói Sölu- og blaðburðarbörn Vísis eru boðin í Laugarásbíó á laugardaginn klukkan þrjú. Þar verður sýnd kvikmyndin Ferðin til Shiloh, sem er hörkuspennandi kúreka- mynd. Ekki sést frá 18. júní I.ýst er eftir 25 ára göml- um manni, Gunnlaugi Vilhjálmssyni, Miklubraut 70, Reykjavik. Gunnlaugur er um 179 sm á bæð, grannur, skolhærð- ur, stutthærður. Gunnlaug vantar vinstri handlegg frá olnboga, notar krók. Gunnlaugur var klæddur i hvíta iopapeysu, með bekk, Ijósar gallabuxur og var I sandölum. Þeir sem einhverjar upp- lýsingar geta gefið um ferðir Gunnlaugs eftir 18. júni s.I. eru vinsamlegast Gunnlaugur Vilhjálmsson beðnir um að láta lögregl- una I Rcykjavík vita. VÍSIR-SMÁAUGLÝSINGAf Opið virka daga til kl. 22 Laugardaga kl. 10-14 Sunnudaga kl. 18-22 VISIR Simi 66611 VlSIR VISIR Simi 86611 VÍSIR VÍSIR Simi 86611 VÍSIR

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.