Vísir - 25.07.1978, Blaðsíða 5
5
VISIR Þriðjudagur 25. júll 1978
t fyrravor útskrifuðust fyrstu
hjúkrunarfræðingarnir frá
Háskóla tslands. Mikið var um
dýrðir og menn virtust almennt
hrifnir af því f ramf araspori
sem hefði verið stigið I hjúkr-
unarmenntun. Nokkrar af þeim
sem útskrifuðust fóru til starfa
hjá rikinu og i vor bættist við
annar hópur sem einnig fór til
starfa á hinum ýmsu sjúkrahús-
um. Alltleit velút á yfirborðinu,
en sagan er ekki nema hálf sögö.
Niðurröðun hjúkrunarfræðing-
anna I launaflokka var eftir og
nú liðlega ári seinna hefur enn
ekki fengist úrlausn I þvi máli.
Hjúkrunarfræðingarnir hafa
á þessu ári þegið laun sam-
kvæmt B-ll kjarasamningi
BSRB við rikið. Sjálfar telja
þær að þeim beri laun sam-
kvæmt B-17 (107) eins og öðru
háskólamenntuðu fólki, sem
hefur 4ra ára háskólanám aö
baki.
Eftir miklar umræður,
upplýsingasöfnum og fundar-
höld komst fyrsti hópurinn að
þeirriniðurstöðuað vegna sam-
eiginlegra faglegra hagsmuna
væri eðlilegast að kanna hugs-
anlega aðild að Hjúkrunarfélagi
Islands.
Viðræður við stjórn félagsins
hófust I april 1977 og 7. júll sama
ár var formanni hjúkrunar-
félagsins otilkynnt að B.Sc.
(bachelor of science)
hjúkrunarfræðingar óskuðu
inngöngu i félagið. Stjórn hjúkr-
unarfélagsins boðaöi siðan hóp-
innáfundsinn. Átti þá aö ganga
formlega frá inngöngu B.Sc.
(Þ.e. háskólamenntaðra)
hjúkrunarfræðinga i félagið,
enda allar undangengnar við-
ræður vinsamlegar.
A þessum fundi tóku málin
óvænta stefnu, að sögn B.Sc.
hjúkrunarfræöinga sem rætt
var við. Fyrir á fundarstað var
kjararáð hjúkrunarfélagsins
hér um ræðir, verður aö lita svo
á, að þeim beri réttur til að
gerður verði sérkjarasamning-
ur við félag þeirra nú eða hann
ákveðinn af kjaradómi”
Segja má að B.Sc. hjúkrunar-
fræðingar hafi unnið hálfan sig-
ur, þar sem loksins er komið að
þvi að ákveða þeim laun. Hjúkr-
unarfræðingarnir hafa nú um
heils árs skeið þegið laun sam-
kvæmt launaflokki sem þær-
telja 6 launaflokkum lægri en
þeim ber. Hjúkrunarfræðingar,
bæði úr Háskólanum og Hjúkr-
unarskólanum, hafa verið I
sama launaflokki, en sam-
kvæmt námsmati hljóta hinar
fyrrgreindu 173 stig, en hinar
siðarnefndu 87 stig.
Þaðskal tekið fram að nemar
i hjúkrunarfræði viö Háskóla
Islands fá engin laun á náms-
timanum, en nemar við Hjúkr-
unarskóla Islands eru hins veg-
ar með hluta af launum hjúkr-
unarfræöings öll námsárin.
Kjaradómur hefur enn ekki
komið saman, en búist er við þvi
að hann komi saman I ágúst og
skeri úr þessu máli. —BA—•
' - Kl
Laugavegi 37 L^iugavegi 89 Mafnarstrœti 17 Glœsibœ
12861 13008 13303
ásamt stjórn þess og vara-
stjórn. Þennan sama dag hafði
kjararáð kynnt nýjar hugmynd-
ir um launamál. 1 þeim fólst aö
nám frá hjúkrunarskóla íslands
og B.Sc. gráða frá Háskólanum
yrði metiö til jafns i launum.
Var þetta að mati B.Sc. hjúkr-
unarfræðinga I ósamræmi við
grundvallarstefnu hjúkrunar-
félagsins i menntamálum. En
þar hefur verið lögð áhersla á
það að aukin menntun yrði
alltaf metin til hærri launa.
Gekk þetta einnig, að matiB.Sc.
hjúkrunarfræðinga i berhögg
við staðhæfingu stjórnarinnar á
fyrri fundum, um að félagið
myndi beita sér fyrir þvi að 4ra
ára háskólanám i hjúkrunar-
fræði yrði metið til jafns við
annaö 4ra ára háskólanám. Við
þetta drógu B.Sc. hjúkrunar-
fræðingar aðildarumsókn sina
til baka.
Sótt um einstaklings-
aðild að BHM
1 framhaldi af þessu sóttu
B.Sc. hjúkrunarfræðingar um
einstaklingsaðild að Bandalagi
háskólamanna, samkvæmt
heimild I lögum Bandalagsins.
Fengu þeir inngöngu i septem-
ber sama ár.
Fulltrúar rikisvaldsins voru
ekki til viðræðu um launakröfur
einstaklinga innan B.H.M. fyrr
en samningar höfðu tekist við
öll aöildarfélög B.H.M..
Það var ekki fyrr en 10. mars
1978 sem loks var haldinn
formlegur samningafundur meö
lögfræöingi Bandalagsins og
samninganefnd rikisins, en ekki
tókst samkomulag um hjúkr-
unarfræðingana sem höfðu
einstaklingsaðild og nokkra
fleiri.
Málinu var þá visað af hálfu
B.H.M. til kjaradóms.
Pétur Bjarnason frá
Patreksfirði varð sigur-
vegari í getraunakeppni
Visis í sambandi við
heimsmeistaramótið í
knattspyrnu. Hann hlaut
því verðlaunin, hundrað
þúsund krónur.
„Ég lá á Borgar-
spítalanum þegar keppn-
in stóð yfir," sagði Pétur
i gær þegar hann kom til
að taka við verðlaun-
unum, af Davíð
Guðmundssyni, fram-
kvæmdastjóra Vísis.
,,Eg hafði því ekki
margt annað að dunda
við. Enég hef líka mikinn
áhuga á knattspyrnu,
keppti með Völsungum
hér í gamla daga og tek
enn spretti á eftir boltan-
um öðru hvoru."
Pétur kvaöst alls ekki hafa
notað ágiskunarregluna við aö
ákvarða úrslitin. „Ég var viss
um að þaö yröi annaðhvort
Argentina eða Holland, og þótti
Argentína liklegri”. Og Pétur
hélt heim til Patreksfjarðar,
hundraö þúsundkrónum rikari
en þegar hann kom I bæinn.
Kjaradómur visar frá
Kjaradómur kom saman 12.
mai' i vor þar sem tekið var fyrir
mál launamálaráðs Bandalags
háskólamanna, fyrir hönd 11
r i k i s s t a r f s m a n n a , um
einstaklingsaðild að B.H.M.,
gegn fjármálaráðherra, fyrir
hönd rikissjóðs. Niðurstaðan
þar várð sú að málinu var visað
frá með þeim rökstuðningi, aö
sóknaraöilar i málinu væru ekki
félag og fullnægðu þvi ekki
skilyrðum laga um kjarasamn-
inga opinberra starfsmanna til
þess að sækja mál fyrir Kjara-
dómi. Fjármálaráöherra hafði i
sinum málflutningi gert kröfu
um frávisun.
Þennansama dag hafðistjórn
Hjúkrunarfélags Islands sent
B.Sc. hjúkrunarfræðingum
bréf. Þar sagði aö stjórnin teldi
að nám I hjúkrunarfræðum við
Háskóla Islands skuli ekki met-
ið lægra til launa en annað sam-
bærilegt hðskólanám.
Þá minnti stjórnin á þá yfir-
lýstu stefnu Hjúkrunarfélags
Islands, að allt nám 1 hjúkr-
unarfræðum verði fært á
háskólastig, þar sem þjóð-
félagsleg þörf geri auknar kröf-
ur til betri menntunar.
Útgarður einstaklings-
aðildarmanna stofn-
aður
1 lok mai var haldinn stofn-
fundurfélagsfyrirþá sem höföu
einstaklingsaðild að BHM. Var
félagið, sem hlaut nafniö
ÚTGARÐUR, tekið inn i banda-
lag háskólamanna 1. júni siðast-
liðinn.
Kjaradómur kom aftur
saman 3. júli siöastliðinn og tók
fyrir mál launamálaráðs
Bandalags háskólamanna fyrir
hönd Utgarðs gegn fjármála-
ráðherra fyrir hönd rikissjóös.
Fjármálaráðherra krafðist aft-
ur frávisunar.
I úrskurði Kjaradóms sagði
meöai annars: „Félagið
uppfyllir þau skilyrði, sem i
þessusambandierusett i lögum
og öðlast samningarétt viö
stofnun þess. Með þvi aö ekki
eru i gildi sérkjarasamningar
fyrir þá rikisstarfsmenn sem
Daviö Guðmundsson, framkvæmdastjóri VIsis (tv.) afhendir Pétri
Bjarnasyni ávisun upp á hundrað þúsund krónur, en Pétur sigraði I
getraun Visis um sigurvegara I heimsmeistarakeppninni I knatt-
spyrnu.
VANN 100 ÞÚSUND
í GETRAUN VÍSIS
Launamál hjúkrunarfrœðinga frá
HÍ enn í ólestri eftir heilt ár