Vísir - 25.07.1978, Page 6
6
Laus staða
Aður auglýstur umsóknarfrestur um lausa kennarastöðu i
stærðfræði og efnafræði við Menntaskólann á Akureyri
framlengist hér með til 10. ágúst n.k.
Launsamkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, Reykjavik. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i
ráðuneytinu.
Menntamólaráðuneytið, 20. júli 1978
Innilegar þakkir öllum þeim sem sýndu
okkur samúð við fráfall kæru konu minnar
og móður okkar
Friðrikku Mariu Poulsen.
Jóhann Poulsen
og börn.
^-☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆■☆-íí
ASKUR
Atvinna
*
-tt
-»
«-
«-
«■
«-
«-
«-
«-
ASKUR vill ráða starfsfólk i afgreiðslu og |
sal.
Upplýsingar á ASKI Laugavegi 28 b.
-t!
-tt
•tt
-tt
-ít
•tt
r i BÍLAVAL Laugavegi 90-92 viö hliöina á Stjörnubíó
i ■ Höfum opnað aftur ril SÖlu: Bronco 74 Blazer K5 74 Blazer K5 76 / Datsun diesel 71 Opel Vamaro '69 Fiat 125 og 128 Ford Transit sendib. '68 stærri gerð. Fiat 128 74
BÍLAVAL Símar 19168, 19092 L. : ^
Ólofsvík — Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra i ólafsvik er laust til
umsóknar, umsóknir um starfið ásamt
upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist oddvita Ólafsvikurhrepps,
Alexander Stefánss. fyrir 31. ágúst 1978.
Hreppsnefnd Ólafsvikurhrepps.
m _
Þriðjudagur 25. júli 1978 VISIR
r
v
Umsión; Guðmundur Pétursson
"V
.1}
mr^swnaé'
Veðmálafíknin verri en
áfengissýkin
Eitt af spilavitunum i London, þar sem meiri möguleiki er á þvi aö
tapa Rolls Roycinum en vinna hann.
Bretar eru haldnir
mikilli spilafíkn. Þeir
elska að veðja og
leggja peninga sina á
allt milli himins og
jarðar. Kosningar,
hvað þá annað.
En hestaveðhlaup, og hunda-,
iþróttir eins og knattspyrna,
bingó og lukkuhjól spilavitanna
laða að sér mest af veðfénu, —
og svo auðvitað happdrættin en
það ætti ekki að koma okkur Is-
lendingum svo mjög óvart.
Stjórnvöldum I Bretlandi er
þó farið að þykja nóg um og i
slðustu viku tilkynntu þau, að
þessi vinsælasta þjóðariþrótt
Breta yröi i framtiðinni tekin
fastari tökum. Þau tóku þennan
kipp, þegar niu manna rann-'
sóknarnefnd undir forsæti Rot-
schilds lávarðar skilaði skýrslu
sinni um veðmála- og spilafíkn
Breta. Skýrsla þessi er árangur
tveggja og hálfs árs athugunar
áf járhættuspiliogveðmálastarf-
semi i Bretlandi og tekur yfir 25
ára timabil. Ekki var að undra,
þótt hún fyllti rfimlega 580 blað-
siður.
Rotschild lávarður lét svo
ummælt, þegar hann skilaði af
sér skýrslunni: „Napóleon
kallaði okkur kaupmannaþjóð.
Mér er nær að halda, að fjár-
hættuspilarar hefði verið meira
réttnefni.”
t skýrslunni kemur fram aö
94% ailra fullorðinna Breta
reyni stöku sinnum gæfuna i
veömálum og 39% stundi slikt
fjárhættuspil að staðaldri. Og
þaö eru engar smásummur,
sem menn hafa milli handanna
til þess að þjóna spilafikninni.
Samkvæmt skýrslu Rotschilds
nam veltan árið 1976 7.1 millj-
arði sterlingspunda.
Við lestur skýrslunnar hugga
menn sig þó viö það, að nefndar-
menn töldu ekki að fjárhættu-
spiliö og veðmálin hefðu haft
neina slæma fylgikvilla i för
með sér fyrir þjóöfélagið. Og
raunar taldi nefndin, að þetta fé
hefði mest allt farið aftur I um-
ferö, nema litlar 873 milljónir
sterlingspunda, sem loðað hefðu
viö fingurgóma þeirra, sem
þennan atvinnurekstur stunda.
Er þá raunar komiö aö boð-
skap bresku stjórnarinnar um
strangari reglur við fjárhættu-
spil i framtiðinni og megintil-
gangi athugunar 9 manna
nefndar Rotschilds. Þaö var að
grafast fyrir um, hversu mikill
ágóði getraunanna, spilavit-
anna,veðmálastofanna og happ-
drættanna væri í raun og veri^
og gera tillögur um leiðir til
þess að það opinbera gæti krækt
sér I stærri skerf þar af — auö-
vitað til ágóða fyrir almenning.
Nefndin vekur athygli á þvi,
að spilavitiseigendur i London
fái fjárfestingu sina 400% til
baka, að Ladbrokes-veðmang-
ararnir (þeir kunnustu i
Bretlandi), tvöfaldi ágóða sinn
átveggja árafresti, og bendir á
ýmsar leiðir fyrir það opinbera
til þess á ná stærri sneiö af kök-
unni.
Mesta athygli i skýrslunni
hafa vakið ýmsar staðreyndir
um happdrættin. Nefndarmenn
vilja vekja athygli á þvi,
hversu örsmár vinningsmögu-
leiki Tjallans er, þegar hann
kaupir sér happdrættismiða. Og
hversu litið brot af happdrættis-
veltunni vinningarnir eru. Samt
sem áöur eru happdrættin
skattlögðllangminnst.
Staðreyndirnar, sem dregnar
eru fram, hafa valdið hneyksli.
Það kemur i ljós, að til happ-
drættanna er efnt undir alls
konar yfirskini velgerðarmála.
Til aö standa straum af starf-
semi góðgerðarfélaga, til að
byggja sundlaugar, eða gera
iþróttavelli og svo framvegis.
En iöllu auglýsingaskruminu er
hinn upphaflegi tilgangur löngu
týndur,- happdrættismiöarnir
seljast þó betur en heitar lumm-
ur og þeir sem að þeim standa
græða á tá og fingri og meira en
spilavitin sem eru undir meiri
skattaálögum.
Mest er samtspilað I spilavit-
unum. Helmingur veltunnar
rennur þar um. Fjórðungur
rennur i gegnum veðmangara-
stofurnar. 2.8 milljónir
Bretaleggja leiö sina einu sinni I
viku til sins veðmangara. 35%
þjóðarinnar spila i knatt-
spyrnugetraununum. Bingó er
hinsvegar á niðurleið. Þaö eru
ekki nema 4% sem sækja orðið
bingósalina. Happdrættin eru
svo um 200 talsins.
Nefndin gerir grein fyrir þvi,
að spilavitin skila mestu af
þessu aftur eða 97,5% af tekjum
sinum. Bingó sömuleiöis. Veö-
mangararnir greiða ekki aftur
(i skatta og vinninga) nema
milli 80-90%. Getraunirnar og
happdrættin halda mestu eftir.
Getraunirnar skila ekki aftur
nema um 30%, og flest happ-
*tri
OFNINN
GEFUR GÓDAN YL
STO ofninn er Islensk framleiðsla og framleiddur fyrir fslenskar aöstæöur. Hann er smiðaður úr 1,5
mm þykku holstáli, rafsoðinn saman að mjög miklu leyti meö fullkomnum sjálfvirkum vélum, sem
tryggja jöfn gæði suöunnar.
STÖ ofninn hefur þá sérstööu að allar mælingar á hitanýtingu og styrkleika hafa verið gerðar á Is-
landi af Rannsóknarstofnun Byggingariðnaðarins að Keldnaholti, og þá notuð hitaveita.
STÓ ofninn er stilhreinn og fer alls staðar vel. Þeir fagmenn sem hafa kynnt sér STó ofninn mæla
sérstaklega með honum, ekki eingöngu vegna útlits, heldur miklu frekar hvernig hann er upp-
byggöur, hve vel hann nýtir hitann, og handhægt er að leggja pipulagnir að honum.
Leitið nánari upplýsinga. Gerum föst verötilboö
VELDU STÓ OFNINN OG HANN MUN YLJA ÞÉR UM ÓKOMINN TÍMA:
STÁLOFNAR HF. SSHSSi"