Vísir - 08.08.1978, Blaðsíða 14

Vísir - 08.08.1978, Blaðsíða 14
Ómar Ragnarsson skrifar um bíla: Pylsulaga bílar œttu að eyða 15 prósent minna bensíni en hinir Eitt af þeim ráöum, sem bilahönnuðir nútímans luma á í orkukreppunni er að gera farartæki meira straumlínulaga og minnka með þvi loftmótstöðuna og þar með bensíneyðsluna, auk þess, sem hámarks- hraði er aukinn verulega. Þetta hefur verið gert í nokkrum mæli i bandarísk- um flugvélaverksmiðjum. íveturvar fjallað nokkuð um loftmótstöðu bila hér á bílasiðu, og myndirnar, sem fylgja þessari grein, eru af módeli af bil, sem italski bilahönnuðurinn Pinin— Farina hefur gert, en þar er loftmótstaðan helmingi minni en á venju- legum bil. Á siðustu árum hefur það færst í vöxt, að bila- verksmiðjur hafa gefið upp svokallaða cw-tölu, sem táknar loftmótstöðu. Þessi tala er á meðal-bíl 0,46 á Vessna 310, tveggja hréyfla flugvél, er hún 0,31, og á Mustang-orrustu- flugvél úr síðasta stríði er hún 0,10. Það þótti tíöindum sæta, þegar bandaríski flugvéla- sni llingurinn Lopresti lækkaði loftmótstöðutölu einshreyf lisf lugvélarinnar Mooney 201 ofan í 0,19, og með tillitit til þess er árangur Pinin Farina ótrú- lega góður, að hafa komið loftmótstöðutölu á bíl niður í 0,23, án þess að setja stærðarhlutföll hans úr skorðum. Bíll Farina er á stærð viö Cort- ina, þó aðeins lengri, og á mynd- unum, sem þessari grein fylgja má sjá, að það er einkum aftur- endinn, sem hefur verið lengdur til þess að minnka mótstöðuna og framendinn mjókkaður. Er þó ekki vist, að hinn mjói framendi standist þær kröfur, sem gerðar eru til þess að hann taki við og eyði höggum við árekstur, þótt Farina og menn hans fullyrði, að það hafi verið gert. A venjulegum bil verður loft- mótstaðan meiri en núningsvið- nám á 60 kilómetra hraða, en á bil Piniri Farina er samsvarandi hraði 90 kilómetrar á klukkustund, og | benzinsparnaðurinn er um 15 prósent að jafnaði, og það munar sjálfsagt um minna. Kannski verða það svona pylsu-lagaðir bilar, sem eiga einkum eftir að verða á ferðinni i framtiðinni, og þá verður hægt að fara i bilaum- boð og biðja um eina ameriska ,,með öllu”. Hvaða bill er nú þetta? Chevrolet Nova ,,X” heitir hann. A næstu áruin munu General Motors verksiniöjurnar i Bandarikjunum koma fram með margar nýjar gerðir með þessu lagi, sem svo vinsælt hef- ur orðið i Evrópu (VW-Passat. Lancia Beta, Simca 1307/1508, Rover 3500) Þessar nýju gerðir GM munu hljóta nöfnin Nova, Phoenix, Omega og Appollo, verða framhjóladrifnir og engin leið að koma átta gata vél ofan i vélarrúmið. Chrysler-verksmiöjurnar eru þegar komnar á fulla ferð með framhjóladrifnu Horizon- og muni koma fram Coupé-gerð af Omni-bilana, og sagt er, að senn þeim. Lœrið vélritun Ný námskeið hefjast fimmtudag- inn 10. ágúst. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heima- vinna. Innritun og upplýsingar i síma 41311 eftir kl. 13.00. Vélritunarskalinn Suðurlandsbraut 20 Kannist þið við hann, þennan? Jú, þetta er Cherokee 1979, sem hefur fengið „andlitslyftingu", nýtt grill og ferköntuð framljós.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.