Vísir - 08.08.1978, Blaðsíða 18

Vísir - 08.08.1978, Blaðsíða 18
'<r vn£*v«;vv Þri&judagur 8. dgilst 1978 vísir Hveragerðíshreppur notfœrir sér forkaupsrétt að 38 eignum og léðum nálosgt elliheimilinus „Hreppsnefndin telwr að okkur sé ofaukið" seglr Gisli Sigurbjörnsson, forstjéri Ellí- og hjúkrunarheimilisins Ása i Hveragerði geta haft til kaupa ó hús- næði og lóðum. //Það má segja þeim alveg ískalt að ég telji að hreppsnefndinni i Hvera- gerð finnist að okkur sé ofaukið þar", sagði Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri Elli- og hjúkrunarheim- ilisins Ass i Hverageröi. Gisli er mjög sár út i sveitarstjórn Hveragerð- is vegna bess að á síðasta kjörtimabili ákvað hún að notfæra sér forkaups- heimild sem sveitarfélög „Þessari forkaupsheimild skelltu þeir ó 38 eignir og lóöir, allt saman e&a Íangflest i næsta nðgrenni viö okkur,” sagöi Gisli. „Viö erum aö reyna aö • Gisli Sigurbjörnsson viö eitt af húsum heimilisins i ltveragerði. Visismynd: GVA hjálpa gömlu fólki og ég hélt satt aö segja aö hitinn i Hvera- geröi væri ekki of góöur handa þvi.” Þeim leiöist vist aö viö börg- um engin fasteignagjöld, en viö veitum fjöída fólks atvinnu og vorum siöast aö borga 12 mill- jónir króna I Íaun i gær Þetta metui- sveitarstjórnin ekki neins”, ságöi Gisíi. „Ég skil satt aö segja ekki þennan hugsunarhátt og hlýt aö spyrja, hvort ekkert liknarstarf megi vinna I Hveragerði? Má gamalt fólk ekki vera I Hvera- geröi? Megum viö ekki auka at- vinnuna þar?”, sagöi Gisli enn- fremur. Vfsir sneri sér af þessu tilefni til Þóröar Snæbjörnssonar, for- manns hreppsnefndarinnar og innti hann eftir þvi hvort rétt væri aö Hverageröi væri aö þrengja aö starfsemi Ass. Þórð- ur sag&i aö þaö væri sama hvernig Gisli oröaöi hlutina, hiö rétta væri aö hreppurinn heföi einfaldlega áskiliö sér rétt til forgangs um kaup á þeim eign- um sem hann teldi ástæöu tll, ef þær færu á markaö. Visir spuröi hvort hreppsnefndin væri óá- nægö meö þaö hve litil gjöld kæmu frá gamla fólkinu og sagöi hann þá orörétt: „Ja, ég er nú ekki tilbúinn til þess aö tjá mig um þaö. Hins- vegar held ég aö hver maður geti séö einnig máliö frá okkar sjónarhóli i byggöarlagi þar sem svo mörg hús eru byggö af fólki, sem ekki eru gjaldþegnar fyrir byggöarlagiö. Þvi held ég aö ekki þurfi min ummæli um eitt né neitt I þvi sambandi. Þaö gefur auga lelö hvaö þaö þýö- ir”. Þá var Þóröur spurður aö þvi hvort einhugur rikti i hrepps- nefndinni i þessu efni. „Þaö var fyrrverandi hreppsnefnd, sem tók ákvöröun um þetta og eng- inn i þessarl hreppsnefna hefur hreyft neinu i þessu sambandi” svaraöi Þóröur. „A næsta fundi hennar veröur tii umræöu aö nota þennan rétt i fyrsta skipti og þá kann aö koma tií ein- hverrar frekari umræöu úm þetta mál”. —HL Sovéskt-íslenskt samstarf á sviði fiskveiða Við eigum sameigin- legra hagsmwna að gaeta ff segir Vjatseslav Zllanoff, sem á sasti f sovósk-fslenskri neffnd um flskveiðlmál APN: Hvernig er háttaö sam- starfi Sovétrlkjanna og Islands á sviöi fiskveiöa? Zilanof: Samstarf SSSR og Is- lands á sviöi fiskveiöa á sér langa sögu aö baki og hefur allt- af þróast i anda gagnkvæms skilnings meö tilliti til hags- muna fiskimanna i löndunum báöum. Meginsviö samstarfsins er rannsóknir á fiskistofnum Nor- egs- og Grænlandshafs. Þannig hafa visindamenn SSSR og Is- lands haft náiö samstarf sin á milii og einnig viö visindamenn annarra rikja um rannsóknir á liffræði sUdarstofna i Atiants- hafi, grálúðu, karfa og fleiri fiska. Þeir hafa fariö i marga sameiginlega Ieiöangra. Skipti á fengnum uppiýsingum ger&u mögulegt aö uppgötva mikii- væga þætti i lhfsferlá margra fisktegunda og umhverfi þeirra. Þessi þekking er grundvöllur aö verndun fiskistofnanna og skyn- samlegri nýtingu þeirra af háífu fiskimanna beggja landanna. Mig langar aö minna á, aö áríö 1972 undirritu&u fulltrúar So- vétrikjanna, tslands og Noregs mikilvægan millirikjasamning um eftirlit meö síldveiðum á noröurslóðum. í raun var um að ræöa fullt bann viö vei&um á vorsild, ekki aöeins i hafinu um- hverfis tsiands, heldur á öllu svæ&inu þar sem sfldarstofninn heldur sig: Barentshafi, Græn- landshafi og Noregshafi. Síöar varö þessi samningur að undir- stööu undir áætlun NEAKF (samkomulag um fiskveiöar á Norð-Austur-Atlantshafi) um eftirlit meö veiöum, á Atlants- ha'fssildinni fyrir öil íönd, sem hefur þaö markmiö aö endur- nýja stofninn. Arangur þessara ráöstafana er nú þegar farinn aö koma i ljós, en þó vex stofn- inn ekki eins fijótt og æskilegt heföi veriö. En viö erum sann- færöir um aö sá dagur er ekki /langt undan, þegar sto&iinn veröur endurnýjaöur aö fullu. Sovéskir visindamenn mæla ekki meö þvi að veiðar veröi hafnar strax. Þessvegna hiita sovéskir fiskimenn nú banninu viö sildveiöum á Noregshafi, Grænlandshafi og Barentshafi. Gagnkvæmur skilning- ur Vert er aö geta þess, aö þróun sovésk fslenskra samskipta á sviði fiskveiöa felst ekki ein- göngu i sameiginlegum rann- sóknum, sameiginlegum leið- öngrum og sameiginlegum eft- iriitsráöstöfunum, heldur er einnig um a& ræöa gagnkvæman skilning á mikilvægustu vanda- máium fiskiðnaöarins, sem viö stöndum frammi fyrir og þurf- um aö leysa með aöstoð ýmissa alþjóölegra samtaka og stofn- ana. Bæöi rikin eru me&limir fjögurra alþjóöíegra samtaka á þessu sviöi og hafa oft sameig- inlega afstö&u til mála á þeim vettvangi, einkum hvaö varöar skynsamlega nýtingu á auðlind- um sjávarins. Sovétmenn sýndu tslendingum skilning þegar þeir lýstuyfir banni viö togveiðum á ákveðnum svæöum og stækkuöu leyfilega möskvastærö i botn- vörpum og einnig þegar þeir færðu út fiskveiðilögsögu sina, Nægir þar aö geta þess, aö á undanförnum 7-10 áfum hefur enginn sovéskur togari brottö reglur, sem settar hafa veriö um fiskvei&ar náiægt Islandi. Viö þær nýju aöstæöur sem nú rikja, þegar nær öíí lönd viö Noröur-Átlantshaf hafa fært út fiskveiðilögsögu sina, hafá Sovétmenn og Islendirigar undirritaö (25. april-1977) mikil- vægt millirikjasamkomulag var nýtt og mikilvægt skref i átt til erin betri samskipta landanna á þessu sviöi. 1 samkomulaginu segir m.a.: „Báöir aöilar viöur- kenna þá ábyrgð og skyldur sem þeim er iögö á heröar til aö gera dugandi ráöstafanir til vernd- unar, endurnýjungar og skyn- samlegrar nýtingar fiskistofn- anna, og þá einkum þeirra fiski- stofna sem báöir aöilar hafa áhuga á”. Margvislegt samstarf APN: Hvaöa möguleikar telj- iö þér áö séu fyrir hendi á gagn- kvæmu samstarfi á sviði fisk- veiða eftir aö fiskveiöilögsagan hefur veriö færö út i 20 milur? Zilanof: Fulltrúar landanna gerðu meö sér áöurnefnt sam- komulag með tiliiti tii þeirrar staöreyndar að bæöi rikin hafa nú fært lögsögu sina út í 200 mií- ur, Sem kunnugt er, stunduöu fiskimenn landanna beggja ár- um saman veiöar á sömu mið- um. Þrátt fyrir þaö var um ýmiskonar mismun aö ræöa: ólikar veiöiaöferðir, aörar teg- undir fisks, og þarafleiöandi ólik tækni viö vinnsluna. Aður en f iskveiðilögsagan var færð út skildum við vel, aö fyrir is- lenska fiskimenn voru fiski- stofnanir lífsnauösynlegir. Þessvegna höfum viö aldrei fengist viö rannsóknir og veiöar á þessum slóöum á tegundum einsog þorski,ýsu,lúöu ogýms- um skélfisktegundum. Rann- sóknir okkar hafa beinst ýmist að tegundum sem hafast við á miklu dýpi, eöa tegundum sem islenskir sjómenn veiöa litt eða ekki. Mörg þeirra svæöa sem við höfum rannsakaö eru nú aö hluta eöa öllu leyti innan 200 milna lögsögu Islendina. Eins oggefur aöskiljaþarf bæöi tima og peninga til þess að islenskir sjómenn og tæknimenn geti tíl- einkað sér þessi miö og þessa stofna, þ.e., þeir þurfa að byrja frá núlli. Sennilega væri skyn- samlegra aö skiptast á fengnum upplýsingum og nýta þannig á gagnkvæmum grundvelli þá já- kvæðu reynslu sem þegar er fengin. Fyrsta skréfið' serii stigið hef- ur veriö i þessa átt fellur undir áöurnefnt samkomulag. A fyrsta fundi sameiginlegu nefndarinnar, sem haldinri var i Reykjavik 17.-19. mai s.í. samd- ist báöum aðilum svo, aö þeir myndu halda áfram samstarf- inu innan ramma IKES. Sam- timis var ákveðiö aö skiptast á upplýsingum varöandi vinnslu nýrra tegunda. Viö búum einnig yfir jákvæöri reynslu varöandi vinnslu á mörgum tegundum sem lslendingar þekkja vel. Samstarf er einnig mögulegt á fleiri sviöum, t.d. aö þvi er varöar tækni togveiöa á djúp- miðum og rannsóknaraöferöir. Sameiginlegir hags- munir APN: Hvaða óleyst verkefni biða helst sovésk-islensku nefndarinnar? Zilanof: Ekki er um aö ræða nein óleysanleg vandamál, né heldur vandamál sem ekki rikir gagnkvæmur skilningur á. Nefndin er nýtekin til starfa og stigur nú sin fyrstu skref. Okkur er ljóst, að nauösyn ber til aö ákvaröahver þau vandamál eru sem báöir aöilar hafa áhuga á að iey sa, og lausn hverra verður bæði tslendingum og Sovét- mönnum i hag. MeÖ Öðrum orð- um: þaö er nauðsynlegt aö finna áhuga hins aðilans á að halda áfram nánu samstarfi við hinar nýju aöstæður, og nýta i þvi skyni allar hliðar fiskveiö- anna: rannsóknir og leit, veiði- tækni og fiskvinnslutækni. Viö erum sannfæröir um að so- véskt-islenskt samstarf á sviði fiskveiða á framtiö fyrir sér. Við eigum sameiginlegra hags- muna að gæta.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.