Vísir - 08.08.1978, Page 16
Þriðjudagur 8. ágúst 1978
VÍSIg
VÍSIB
Þriðjudagur 8. ágúst 1978
msjórt:
Gylfi Kristjánssón Kjarían L. Pálsson
„Fðtaburöurinn er fallegur”..sagöi einn áhugasamur golfleikari um leið og þessi mynd var tekin af
Björgvin Þorsteinssyni eftir sigurinn 1 Jaöarsmötinu
Visismynd gk—.
íslandsmeistarinn
var í sérflokki!
Björgvin Þorsteinsson sigraði með yfirburðum í Jaðarsmótinu
i golfi ó Akureyri um helgina
Björgvin Þorsteinsson islands-
meistari i golfi sýndi allar sfnar
bestu hliðar er hann sigraöi án
erfiðleíka 1 Jaðarsmotinu á Akur-
eyri um helgina. Björgvin hafði
umtalsverða yfirburði yfir aðra
keppendur og lék 36 holurnar á
147 höggum, aðeins þremur yfír
pari. Næstí maður var 11 höggum
slakari, svo að segja má að
Björgvin hafi þarna verið i nokkr-
um serflokki.
Veöurguðirnir léku á als oddi á
Akureyri um helgina og þeir fjöl-
mörgu kylfingar, sem tóku þátt I
mótinu gátu ekki afsakað sig með
þvi að veðrið hafi verið til trafala.
Menn sem tóku þátt i þessu móti
höfðu mikla skemmtan af, enda
völlurinn góður og þótt erfiöur sé
fyrir suma, ákaflega „sjarmer-
andi”.
Þorbjörn Kjærbo GS varð i 2.
sæti á 158 höggum, og er greini-
lega ,,vel á boltanum” þessa dag-
ana. Siðan urðu þeir jafnir Hilm-
ar Björgvinsson GS og Sigurjón
Gislason GK á 160 höggum. Arni
Jónsson GA, Gylfi Kristinsson GS
og Gunnar Þórðarson GA voru á
162 höggum, Guðlaugur Krist-
jánsson GS i 8. sæti á 164, Jón Þ.
Gunnarsson GA kom næstur á
165 og i 10. - 11. sæti urðu jafnir
Sigurður Pétursson GR og Eyjólf-
ur F. Jóhannesson GK á 169 högg-
um.
Jaðarsmótið gaf stig til lands-
liðs, og gaf i það heila 135 stig.
Björgvin hlaut fyrirsigurinn 25.65
stig, Þorbjörn 22,95, Hilmar og
Sigurjón 18,90 hvor og siðan næstu
menn minna.
Guölaugur Kristjánsson GS
sigraði með yfirburöum i for-
gjafarkeppninni, var á 142 högg-
um nettó, og þrátt fyrir að Björg-
vin Þorsteinsson sé með +1 i for-
gjöf á Jaðarsvellinum varð hann i
2. sæti á 149 höggum.
1 kvennakeppninni sigraöi
Kristin Pálsdóttir GK á 188 högg-
um. Karólina Guðmundsdóttir
GA varð önnur á 199 og Ásgerður
Sverrisdóttir NK þriðja á 211
höggum.
1 forgjafarkeppninni urðu þær
hinsvegar jafnar Asgerður og
Karólina, og sigraði sú fyrr-
nefnda eftir aukakeppni.
Alls voru það 97 kylfingar sem
tóku þátt i mótinu og höfðu allir
mikla ánægju af. Jafnvel Hannes
„kokkur” Garöarsson fór bros-
andi heim, en hann sló mörg
merkileg golfhögg á Jaðarsvell-
inum um helgina.
gk—■
Öruggur sigur
hió Jóni Hauki
Jón Haukur Guðlaugsson NK
sigrabi I Ambassador golf-
keppninni sem fram fór á Nes-
vellinum um helgina. Hann lék
18 holurnar á 72 höggum eöa
tveimur yfir pari vallarins, og
var 5 höggum á undan næsta
manni sem var Þorgeir Þor-
geirsson GS. I 3.-4. sæti urðu
siðan jafnir Kristinn Bergþórs-
son NK og Ólafur Bjarki
Ragnarsson GR á 78 höggum. —
Kristinn varð sigurvegari i
keppninni með forgjöf, var á 64
höggum nettó, sem er mjög
góður árangur.
Fara þeir
báðir
norður?
„Þetta verður flott hjá okkur i
vetur vegna þess aö viö erum að
fá tvo toppmenn að sunnan”,
sagði einn af körfuknattleiks-
mönnum Þórs á Akureyri, sem
við hittum þar nyrðra um helgina
, Erlend Markússon frá tR og
Bjarna Jóhannesson úr KR og
verðum með toppliö i úrvalsdeild-
inni næsta vetur”, bætti viömæl-
andi okkar við.
Þvi miður tókst okkur ekki að
ná i þá Erlend og Bjarna i gær til
að fá þetta staðfest, en Helgi
Agústsson, formaður Körfuknatt-
leiksdeildar KR, tjáði okkur i gær
að hann hefði heyrt um tilboð frá
Þórsurum, sem Bjarni hefði feng-
ið.
Fari svo aö þeir Bjarni og
Erlendur fari norður má fara að
Stórsigur
Liverpool
í Sviss
Enska knattspyrnuliðið Liverpool
var á keppnisferðalagi i Sviss um
heigina, og leikmenn liðsins
sýndu þá hvers þeir eru megnug-
ir. Þeir léku gegn i. deildarliðinu
Basle og hinir 11 þúsund áhorf-
endur sáu Liverpool vinna átaka-
lausan 6:0 sigur.
Þeir sem skoruðu mör k Liver-
pool voru Kenny Dalglish, Emlyn
Hughes, Jimmy Case og Ray
Kennedy < 2). Eitt markið var síð-
an sjálfsmark bakvarðarins
Bladinger.
taka Þórsliðið sem eitt af þeim
liðum sem koma til með að berj-
ast um Islandsmeistaratitilinn.
Þjálfarinn og leikmaðurinn Mark
Christenssen er væntanlegur til
Akureyrar innan skamms og
mun þá hefja æfingar með liðinu,
og er mikill hugur i þeim norðan-
mönnum.
gk-.
United
vann
stórt í
Madrid!
Leikmenn Manchester United
voru i miklu stuði er þeir léku
gegn spænska liðinu Real Madrid
um helgina. Þarna var um vin-
áttuleik að ræða, og fór hann
fram á velli Real Madrid að við-
stöddum 49 þúsund áhorfendum,
Leikmenn United sýndu
snilidartakta, og eftir aðeins 34
minútur höfðu þeir náð þriggja
marka forustu. Það voru þeir
Sammy Mcllroy (2) og Jimmy
Greenhoff sem þá höfðu skorað.
1 upphafi siðari hálfleiks gerði
Alex Stepney markvörður United
sér litið fyrir og varði vitaspyrnu
frá Pirri, og Greenhoff skoraði
sittt annaö mark stuttu siðar. Or-
slitin þvi 4:0 fyrir United, ákaf-
lega athyglisverður sigur.
BIKARSLAGUR
íLAUGARDAL
Fyrri leikurinn I undanúrslit-
um bikarkeppni Knatt-
stprnusambandsins verður háð-
ur á Laugardalsvelli i kvöld, og
munu eigast við þar Þróttur og
Valur. Siðari leikurinn fer hins-
vegar fram annað kvöld, og
keppa þá Breiðablik og Akranes
á Kópavogsvellinum.
Bikarmeistarar Vals eiga
sennilega erfiðan leik fyrir
höndum I kvöld, þvi að Þróttar-
arnir eru ákveðnir i að standa
sig vel. Verður fróðlegt að fylgj-
ast með viðureign liðanna, og þá
ekki sist ntéð þvi hvort Vals-
mönnum tekst að halda markí
slnu „hreinu”. Valur hefur nú
leikið I margar vikur án þess að
fá á sig mark, og þær minútur
sem Valsmarkið hefur verið
„hreint” nálgast nú þúsundið
óðfluga.
„Ég saumaði þessar buxur sjálf,” sagði þessi unga mær frá Húsavik.
Hún var mætt á tiskusýninguna með Einari Guðnasyni, og greinilegt
var aö það fór vel á með þeim.
Vlsismynd gk-.
„Það verður
geysilega
hörð keppni"
„Hérná er bannað að leggja”. — Mac Wilkins heimsmeistari i kringlukasti brá sér I hlutverk stæðisvarðar við Hótel Esju i
gær, og að sjálfsögðu var Einar Karlsson, Ijósmyndari VIsis, mættur á staðinn.
„Ég veðja á Björgvin, en það
verður geysilega hörð keppni”,
sagði Ingimundur Arnason,
golfmaöur á Akureyri, er við
spurðum hann hver yröi
tslandsmeistari i golfi. tslands-
mótið hefst i dag með sveita-
keppnien á morgun byrjar slag-
urinn fyrir alvöru. Þá hefst
keppnin i öðrum flokkum, og
beinist athyglin að sjálfsögðu aö
meistaraflokknum.
Keppni meistaraflokksmann-
anna fer fram á vellinum i
Keflavik, og stóra spurningin er
hvort Björgvin Þorsteinssyni
tekstað veröa lslandsmeistari i
6. skiptið i röð.
„Ég hef mesta trú á þvi að
þeir Sveinn Sigurbergsson,
Óskar Sæmundsson og Geir
Svansson veiti Björgvini ein-
hverja keppni”, sagði lngi-
mundur. „Þetta verður hörku-
keppni, en mér sýnist á öllu að
Björgvini muni takast að bæta
einum titli { safnið sitt I viðbót.
Eins og fyrr sagði stendur
einstaklingskeppni tslands-
mótsins yfir næstu daga, og
meistaraflokksmenn leika á
Hólmsvelli I Leiru. 1 liafnarfirði
leika þeir sem eru i 3. og 1.
flokki, og vestur á Seltjarnar-
nesi fer keppni 2. flokks og
kvenna fram. Það veröur þvi
Hoffum fyrirliggjandi
Farangursgrindur
og bindingar á
allar stœrðir
fólksbíla,
Bronco
og fleiri bíla.
Einnig skíðaboga
Bílavörubúdin Fjöðrin h.f.
Skeiían 2, simi 82944.
mikið um að vcra á golfvöllun-
um hér syðra næstu daga, og
sjálfsagt veröa slegin mörg
merkileg högg þá daga sem
keppnin stendur yfir.
gk--
Ingimundur Arnason.
Kemur heimsmet
í Laugardalnum?
Mac Wilkins kringlukastari er mœttur til leiks og segir að heimsmetið
gœti „fokið" annað kvðld
,,Það getur vel farið svo” sagði
bandariski heimsmeistarinn i kringtu-
kasti, Mac WSkins, er við ræddum við
hann i gær og spurðum hann hvort hann
ætlaði sér að setja heimsmet á Laugar-
dalsvelli i vikunni. Wðkins er hingað
kominn til að taka þátt i Reykjavikur-
leikunum, sem fram fara annað kvöld
og á fimmtudagskvöldið.
Wilkins kom til landsins i gær og brá
sér strax á æfingu inn i Laugardal. Þar
gerði hann sér litið fyrir og kastaði um
66 metra, en heimsmet hans er 70.86
metrar. Er viö spurðum hann hvernig
honum hefði litist á aðstæður sagðist
hann vera ánægður með þær, og hann
ætti von á spennandi keppni.
Við spurðum Wilkins að þvi hvort*
hann teldi að það myndi hjálpa til að fá
gott „sunnlenskt rok” i kringlukast-
keppninni. „Það spillir örugglega ekki
fyrir, en þaðerfleirasem þarf aö vera i
lagi til að árangur náist. En ég á von á
spennandi keppni, og það verður gaman
að keppa hér við Knud Hjeltnes frá Nor-
egi. Hann er góður kastari.
„Éghef ekki komið hérna áður, en ég
vissi ýmislegt um land og þjóð áður en
ég kom hingað. KUluvarparinn A1
Feuerbach hafði sagt mér ýmislegt en
hann keppti á Reykjavikurleikunum
hérna i fyrra, og þaö sem undrar mann
einna mest er hversu marga góða
iþróttamenn þið eigið, bæði kúluvarp-
ara, kringlukastara og lyftingamenn.”
gk—.
TISKUSYNING A
GOLFVELLIAKUREYRINGA
„Ég verð að segja að þetta tókst mjög
vel, og ég held að fdlk hafi kunnað aö
meta þetta framtak okkar'sagði Einar
Guðnason forstjóri Taks h.f. á Akureyri
i viðtali við Vísi um helgina. Tak var
með nýjung á Jaðarsmótinu i golfi, en
það var sýning á golffötum, og menn
gátu keypt sér þar golffatnað ef þeir
höfðu áhuga á.
Fjölmargir voru viðstaddir tiskusýn-
inguna sem Tak hélt fyrir utan golfskál-
ann, og að henni lokinni gátu menn
skoðað vörur fyrirtækisins nánar og
verslað ef þeir höfðu áhuga á.
Þessi nýjung mæltist vel fyrir, og má
fastlega búast við áframhaldi á þessu af
hálfu fyrirtækisins að sögn Einars
Guðnasonar forstjóra.
Reykjavíkurleikarnir í frjólsum íþróttum: