Vísir - 08.08.1978, Síða 19

Vísir - 08.08.1978, Síða 19
vism Þriöjudagur 8. ágúst 1978 m$ * : Þau veröa meö I Vlsisrallinu 26.-27. ágúst, en I oliusian losnaöi. Húsa vlkurrallinu uröu þau aö hætta keppni vegna þess aö Mynd J.A. HJÓNIN Á RALL- SKODANUM i 12. rallkynningu Vísis og BIKReru hjónin Sverrir ólafsson og Rainer ólafs- son. Sverrir er 30 ára aö aldri/ myndlistarmaöur, og meö bíladellu frá fæðingu. Önnur áhugamál hans eru veiðar af öllu tagi. Hann er búinn að eiga yfir 20 bila um ævina og t.d. átti hann fyrsta orginal 8 c=yl. jepp- ann hér á landi, og keppti á honum i mörgum jeppa- keppnum. Hann kom líka nálægt Formúlu-keppnum í Bandarik junum fyrir nokkrum árum með kunn- ingja sínum og fylgdist hann mikið með kapp- akstri þar. Rainer er bandariskur rikis- borgari, 31 árs að aldri og iþróttakennari að mennt. Hún keppti fyrir nokkrum árum mikið i sundi i Bandarikjunum og átti þar mörg sundmet. Þau eiga þrjá stráka á aldrinum eins til niu ára, sem allir eru með biladellu. Sverrir er búinn að keppa i öll- um rallkeppnum sem haldnar hafa verið, með misjöfnum árangri. Keypti hann fyrsta sér- smiðaða rallbilinn til landsins, en það var Ford Escort RS 1600, en honum var að mestu um að kenna misjafn árangur. Reyndist hann vera æði óáreiðanlegur og bilana- gjarn. 1 öðru rallinu ’76 keppti Sverrir á konubilnum þ.e. Fiat 127 vegna þess að Escort var enn- þá haldinn fæðingarsjúkdómum. I flestum keppnunum var Hannes Olafsson aðstoðaröku- maður Sverris og var samstarf þeirra frábært. í Páskarallinu var Þorsteinn Tómasson að- stoðarökumaður, en Hannes tók eftir það þátt i Næturrallinu, en þurfti siðan að hætta endanlega vegna anna við fyrirtæki sitt. í Skeifurallinu hóf eiginkona Sverris að aka með honum með frábærum árangri, en Escort var við sama heygarðshornið og bil- aði þegar 20 km voru eftir i mark. Eftir þaö skipti Sverrir um bil, og fyrir valinu varð Skoda RS 130, sem er einn af sérsmlöuöum rallbilum Skodaverksmiðjanna. Sverrir var að þvi spuröur-hvers- vegna Skoda hefði orðið fyrir val- inu, og svaraði hann þvi til að eftir fyrri reynslu og alla þá erfið- leika sem fylgja þvi aö keppa á sérhönnuðum bil, þá hafi orðið uppi á teningnum a finna umboð sem vildi sinna þeim sérþörfum, sem þessu fylgja. Leitaði hann viða og fékk skilningsgóð og vin- gjarnleg svör, og um marga góða bila var að ræða. þö var ein- stakur áhugi og skilningur ráða- manna Jöfurs h.f. og tékkneska sendiherrans lang-þyngstur á metunum, en bill af þessari gerð er ekki á almennum mark- aði, heldur aðeins ætlaður keppnisliðum verksmiðjanna, og gekk þvi á ýmsu áður en það tókst að fá bil sendan til Islands. Frumraun bilsins var svo Húsavikurrallið 8. júli, en vegna þess óhapps að oliusian losnaði hætti Sverrir keppni, en fram að þeim tima voru þau hjónin i fremstu sætum, og Skodinn stóð sig með afbrigðum vel. Nú eru þau búin að láta skrá sig i Visis- rallið 26. og 27. þessa mánaðar, og veröur gaman að fylgjast með árangri þeirra þar. ,,Ég vil fyrst og fremst”, segir Sverrir, „þakka stjórn BIKR fyrir frábæran árangur við að koma af staö mótorsporti, sem alla tið hefur verið mitt stærsta á- hugamál, og ekki siður vil ég skora á önnur bilaumboö og á- hugamenn að bregðast eins drengilega við og Skodaumboðið gerði við okkar beiöni um aðstoð, enda er ekki eingöngu um iþrótt , að ræða fyrir keppendur og áhorf- endur, heldur má benda á að allar tækni- og öryggisnýjungar eru byggðar á reynslu af þessu tagi. Fjármálin takmarka að miklu leyti aöstöðu manna á borð við mig til iðkana á mótorsporti og hafði ég t.d. geysilegan áhuga á að taka þátt i kvartmiluakstri, en fjárhagslegir möguleikar voru ekki fyrir hendi og tek ég þar af leiðandi þá grein framyfir, sem reynir meira á ökuhæfni, ná- kvæmni og samstarf beggja öku- manna, heldur en stærö peninga- pyngjunnar eins og vill verða i kvartmiluakstri, en þeim kvart- milufélögum óska ég alls hins besta engu að siður”. Nú verður hlé á Rallkynningu Visis og BIKR þar til eftir Visis- rallið dagana 26. og 27. ágúst. 1 Þráðurinn verður svo tekinn upp fljótlega eftir keppnina. Það skal jafnframt á það bent, að siðari skráningarfrestur i keppnina rennur út á miðvikudaginn kem- ur, og verður hægt að ganga frá þátttökuumsóknum á skrifstofu BIKR Hafnarstræti 18, simi 12504, og verður opið þar frá 20,00 til i 24.00 og þar verður jafnframt hægt að fá upplýsingar um næsta „rallycross”, sem veröur haldiö 12. ágúst. Hjónin Sverrir og Rainer Ólafsson á Rall-Skodanum á Hafravatnsleið inni. Laugarásbíó Lœknir í horðum leik p I Ný nokkuð djörf bresk gamanmynd, er segir frá ævintýrum ungs læknis með hjúkkum og fleirum. Aðalhlutverk: Nicholas Field, Felicity Devonshire og John LeMesurier. Leikstjóri Derek Ford. tslenskur texti. Sýnd kl. 5-7-9 og 11. Bönnuð börnum innan 16 ára. VÍSIR Nýir umboðsmenn Neskaupstaður , Lilja Gróta Þórarinsdóttir, Þiljuvöllum 36, simi 97-7540. i Hellissandur Þórarinn Steingrimsson Naustabúð 11, simi 93—6673. i» i» ii ii i» . , Hofsós ' Jón Guðmundsson Suðurbraut 2, simi 95—6328. Djúpivogur Bryndis Jóhannsdóttir » Austurbrún simi 97—8853 :• : • ;> Sandgerði Valborg Jónsdóttir Túngata 18, simi 92—7474.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.