Vísir - 16.09.1978, Page 5
VtSIK
Laugardagur 16. september 1978
:v ■ HHHj
"Þaö gæti komiö til greina”
Að tala með líkamanum
Okkur hér uppá tslandi finnst
stundum skritið að sjá suðrænt
fólk tala. Frakkar, ttalir og
Spánverjar t.d. virðast ekki
geta sagt eitt orð án þess að þvi
fylgi heilmikið handapat. Þeir
segja hlutina með likamanum
um leið og þeir tala.
En erum við i rauninni nokkuö
frábrugðin? Jú, óneitanlega. En
ekki eins mikið og flestir sjálf-
sagt telja. Viö veifum ekki
höndunum mjög mikiö, en not-
um samt sem áður likamann
býsna mikið til að tjá okkur.
Breski r i thöfundurinn
Desmond Morris, sem skrifaöi
m.a. bókina Nakta apann, sendi
nýlega frá sér bókina „Man-
watching”, þar sem hann fjallar
einmitt um „Likamstungumál-
ið”. Þar kemur m.a. fram að
glöggur maöur getur fylgst
nokkuö með þvi hvort viömæl-
andi hans er að segja sannleik-
ann eða er að Ijúga. Eða hvort
hann er að fela eitthvaö eða að
ýkja. Myndirnar hér á siðunni
ættu að gefa nokkuö til kynna
við hvaö er átt með þessu. Þær
skýra sig að ööru leyti sjálfar.
—GA
,,Þú veist sennilega eins
mikið um þetta og ég”, segir
hann upphátt. En likaminn —
einkum hendurnar og augna-
ráöið yfir gleraugun (merki
um einstakling sem álitur
sjálfan sig meiri en þann sem
hann talar við) gefur til kynna
akkúrat hið gagnstæða: ,,Ég er
sérfræðingurinn”.
,,Við skulum ekki æsa okkur
yfir þessu”, segir hann. En
hann er of afslappaöur, og það
segir þér: ,,Það er ég sem hef
völdin og þú þarft að leggja hart
að þér til að sannfæra mig”.
„Einmitt það? Þá er ég
farinn” segir hann og leggur á-
herslu á það með þvi að hneppa
jakkanum. En fótleggirnir og
fæturnir sýna að hann er ekkert
aðbúa sig undir að fara.Hann er
að reyna að plata.
„Já, ég gæti fallist á þetta
sjónarmið”, segir hann. En
likaminn er i varnarstööu
(krosslagðir fætur og hendur)
og það gefur til kynna aö hann
er langt frá þvi reiöubúinn að
fallast á sjónarmið þitt.
„Ég gæti alls ekki gert yður betra tilboö en þetta” segir hann. En
likaminn segir allt annað: „Ég gæti boöiö þér betur, en af hverju
ætti ég að gera þaö?”
Bjóöum alls konar mannfagnaö velkominn.
Vistleg salarkynni fyrir stór og smá samkvæmi.
Veisluföng og veitingar aó yöar ósk.
Hafið samband tímanlega.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR s mi 22322