Vísir - 16.10.1978, Side 13
visra Mánudagur 16. október 1978
13
Bent Haller. Þessi bók hefur
komið af stað miklum umræðum
og deilum i Danmörku. Bókin er á
mörkum þess að teljast unglinga-
bók.
Gunnel Beckmann er höfundur
bókarinnar Þrjár vikur fram yfir.
Einnig er væntanleg bókin
Draumaheimur Kittu eftir Evi
Bögenæs, en sagan gerist i
Noregi.
Fangarnir i Klettavik er eftir
bandariskan unglingabókahöfund
E.W.Hildick.
Leikhúsmorðið eftir Sven
Wernström fjallar ekki um venju-
legt morð heldur morð á litlu leik-
húsi.
Gúmmltarsan eftir Óle Lund
Kirkegaard kemur út nú, en frá
þessum höfundi hefur áður komið
bókin Fúsi Froskagleypir.
Ekki eru allar barnabækurnar
þýddar og að sögn Jóhanns kem-
ur út ný bók i flokknum um
Sigrúnu eftir Njörð P. Njarðvik.
Nefnist bókin Sigrún flytur.
Plötubók um Barbapapa kemur
út fyrir jól, Barbapapa-plötubók.
Nýlega er komin út bók sem ber
heitið Leikhús Barbapapa.Einnig
hafa verið endurprentaðar fyrstu
bækurnar Barbapapa og
Barbapapa i langferð.
Nýjar bækur koma út um Kalla
og Kötu: Kalli og Kata verða
veik, Kalli og Kata eignast garð.
Þá koma út bækur um Tuma,
Tumi smiðar hús og Tumi tekur
til. Einnig eru væntanlega bæk-
urnar Emma fer I leikhús og
Emmu finnst gaman i leikskólan-
um.
Fyrstu tvær Tumabækurnar
hafa verið endurprentaðar.
Jóhann sagði aö fleiri barna-
bækur væru væntanlegar svo sem
Albin og undraregnhlifin og Albin
og furðuhjólið, Hin fjögur fræknu
og gullæðið og Hin fjögur fræknu
og Róbinson, Gormahreiðrið,
Tembó Tabú og Górilluaparnir.
Fleiri nýjum teiknimyndaflokk-
um verður hleypt af staö, — Viggó
hinn óviðjafnanlegi, Stórvesirinn
Fláráður, Sagan af Alexis
MacCoy og Birna og ófreskjan.
Lögfræöi og önnur alvar-
leg fræði
Að sögn Jóhanns er um þessar
mundir að koma út 2. útgáfa af
Stjórnskipun tslands eftir Ólaf
Jóhannesson, forsætisráðherra.
Ritiö kom fyrst út 1960. Þá verður
gefin út Straumar og stefnur i
islenskum bókmenntum frá 1S50
eftir Heimi Pálsson.
Kennslubók Njarðar P. Njarð-
vik Saga leikrit ljóðkemur út i 2.
og endurskoðaðri útgáfu.
Færeyinga saga kemur út i
flokknum íslensk úrvalsrit
Þetta er önnur og endurskoðuð
útgáfa eftir Ólaf Halldórsson.
Dægurvisa Jakobinu Sigurðar-
dóttur kemur nú aftur út.
Drög að hljóðkerfisfræði eftir
dr. Magnús Pétursson kom út
fyrr á árinu. Ritið Þjóðfélagið og
þróun þesseftir Björn S. Stefáns-
son er og komið út fyrir nokkru.
Um rökfræði nefnist kennslubók
eftir Halldór Guðjónsson og er
væntanleg.
Bók Jóns Hnefils Aðalsteins-
sonar Hugmyndasaga, frá sögn-
um til siðaskiptakom út fyrr á ár-
inu, svo og bókin Foreídrar og
þroskaheft börn, og Erfðafræði
örnólfs Thorlacius . Jóhann
sagði að Iðunn hefði einnig endur-
prentað nokkuð af eldri bókum
sinum þar á meðal íslensk hljóð-
fræðieftir Baldur Ragnarsson og
Almenn vistfræði Ágústs H.
Bjarnasonar, Islenskar bók-
menntir til 1550 eftir Indriða
Gislason og bókina Sigrún fer á
sjúkrahús eftir Njörð P. Njarðvik
Fjórar hljómplötur á árinu
Iðunn sendi frá sér fjórar
hljómplötur á árinu. Nú er ég
klæddur og kominn á ról með
Megasi, Silfurgrænt ilmvatnsvar
plata Melchior, Asi i Bæ var á
plötunni Undrahatturinn og
fjórða platan var með lögum úr
öskubusku
Aö lokum benti Jóhann á það,
að hafin væri útgáfa á ritröð sem
oer nafnið Smárit Kennara-
háskóla tslands og Iðunnar og
koma út fjögur rit á árinu.
—BA—
10 ára matarveisla
Sjálfboðaliðinn Leó Heinege tók upp á þvi fyrir 10
árum að fóðra fjögur andapörá háskólalóð i
Connecticut i Bandarikjunum. Aðsóknin hefur
stöðugt aukist og nú eru yfir 500 endur i föstu fæði
hjá Leó. Allan þennan tima hefur fóðrunin aðeins
fallið niður einn dag. Það var daginn sem mikill
fellibylur gekk yfir svæðið i fyrravetur. Þess má
geta að fæðisgjaldið fer allt á einn reikning:
reikning Leós Heineges.
Hvererforsenda hinnar háu endursölu
vw og Audi bífreiða?
Leyndarmál viðhaldsins veturínánd!
VW ogAudi eigendur fara nœrri um þaÖ
að reghdeg yfirferð, vélarstilling og
skoðun er forsenda góðrar endingar og
hárrar endursölu.
Jafnvel þótt þeir þurfi minna viðhald
en aðrir bílar að öUu jöfnu.
Hekla býður VW ogAudi eigendum
alhliða þjónustu fagmanna á þessu sviði
auk hinnar rómuðu varahlutaþjónustu
og viðgerðarað8töðu.
Því vekjum við athygli á hinrd
hagkvœmu vetrarskoðun okkar auk Ijósa-
stillingar sem framkvœmd er á staðnuni.
Hvort tveggja ráðstafanir sem auka öryggi
og endingu vagnsins í erfiðum vetrarahstri.
L|C|f| A UC
m ■ &!3
Laugavegi 170-172 Sími 21240 og 15450
Látið sérhæföa fagmenn stilla vagninn inná veturinn!