Vísir - 30.04.1979, Blaðsíða 20
20
VÍSIR
Mánudagur 30. april 1979
TIL EYJARINNAR GRÆNU
Þórarínn j. Magnússon spjallar um (rland
feröamannsins
Það er nokkuð sam-
merkt með þeim sem
einu sinni hafa heim-
sóttírland, að þeir geta
varla beðið eftir að
komast þangað aftur.
Einn Irlandsfaranna er
Þórarinn J. Magnússon,
ritstjóri, og við báðum
hann að setja á blað
nokkrar linur um hvers
vegna menn ættu að
heimsækja grænu eyj-
una.
Númer eitt verður að telja
náttúrufegurð og einstaka gest-
risni. Númer tvö má telja hag-
stætt verðlag sem skiptir
Islendinga miklu máli. Og núm-
er þrjú eru fornminjar sem Irar
varðveita mjög vel.
A ferðalagi um Irland er oft
likast þvi sem glugga sé lokið
upp og ferðamanninum gefið
tækifæri til að skyggnast aftur i
fortlðina.
Erum við ekki sammála um
að allt sé vænt sem vel er
grænt? Ef þetta máltæki á ein-
hversstaðar við á það við um ír-
land, sem er gróðri vaxið frá
fjallatindum og niður að fjöru.
Irar umgangast náttúruna af
einstakri virðingu og alúð. Trén
eru iþeirra augum ekki eldivið-
ur og byggingarefni, heldur
miklu fremur til yndisauka.
Gróin tún eru ekki slður fyrir
augað en magafylli búf jár. Alls-
staðar þar sem írar hafa tök á
að rækta blóm eru mögu-
leikarnir nýttir til fulls.
Þvi vil ég segja: Ef þú ætlar
að ferðast um sveitir landsins
þá farðu þér hægt. Njóttuhvers
kilómetra sem best þú getur.
Littu I kringum þig, meiri nátt-
úrufegurð er óviða að finna.
Hestvagn eða hraðbátur
Mig langar tilað vekja athygli
þina á skemmtilegu farartæki
til að ferðast á um sveitirnar.
Það er hestvagn, sem er
óneitanlega dálitið óvenjulegur
farkostur i’ dag.
Slflúr vagnar eru viða leigðir
til lengri og skemmri ferða.
Þessir vagnar eru innréttaðir
eins og litlar fbúðir og það er
stórkostlega gaman að ferðast i
þeim. Hraðinn er alveg mátu-
legur til þess að hægt er að njóta
náttúrufegurðarinnar.
Eins er hægt að fá leigða
rúmgóða hraðbáta, eða nánast
snekkjur, fyrir litinn pening. Og
sé slikur bátur tekinn á leigu má
ekki gleyma að taka veiðistöng-
ina með þvi það er mikið af
Náttúrufegurð er einstök og fornminjar miklar og merkilegar á triandi.
vænum fiski i vötnum trlands.
Margir kjósa að ferðast á
puttanum um Irland, með bak-
pokann sinn. Slikir ferðalangar
njóta allsstaðar góðrar gestrisni
á sveitabæjunum, þar sem þeir
nema staðar.
Syngdu fyrir okkur
Irar taka á móti öllum gestum
sem gömlum vinum. Þér er
allsstaðar tekið opnum örmum.
Heimamenn kappkosta að þér
liði eins og heima hjá þér.
Og það er sama hvort þú kem-
ur á einkaheimili eða bjórkrá,
þú mætir allsstaðar sömu alúö-
inni. Á kránni máttu jafnvel
vera viðbúinn þvi að fá gitar I
hendurnar, með ósk um að þú
syngir eitt eða fleiri lög frá þinu
heimalandi.
Verðlagið erhagstætt, eins og
ég sagði I upphafi og ferðamenn
geta sloppið afskaplega „bill-
ega” ef þeir kæra sig um. Að
visu má finna þarna „túrfeta-
gildrur”, enþaðerlitill vandi að
forðast þær.
Þvi er óhætt að fullyrða að sá
sem bregður sér i sumarfrl til
Irlands kemur þaðan með
minningar sem ekki fölna I
bráð.
„When Irish eyes are smiling.
Visismyndir — ÞG
ÆTUt> ÞIPAP FEEÐAST?
A&VBGHEÞ 4fF T^X'GOIHcyfrré^-PrGr 'BlNOIMr>lSA/W*/OA-/ VIU-
VElkúDA- A»"T4AV<xL_l yiaCAR W- r4AUe>S*Vf\A fGSS -my<SQ3A- SIG-
OGr F’A«Z_Mr4<SDK-lNÍNJ F^YRIR. MlfslOKÁ VMSO ÍHÖPPoM, ScM K-oMMA A£>
ff&iDA -f»íc> rePÐALACM
ABVRfGÐ HF býdur vkucoie t*\zi£cx rouucoMNA ALLTH-EítT
FEKÐATRV6tílliíGU sewt BÆTift 'yxMAjie. M-A- e??riR^ARA^.Dl Tvé>rl\
1* SLYS = óeoriCUBÆTUR., D^KArfZPJteTUR., DA.<xP0MlMGPO2. .
Ttf SJC.YHDILE6 Vtl KIHD4 * l_Ac.iOh'SlLOS-rNPl£>u«-/ AiitCAKoSrMAÐuR Vð«r4A
FÆ®IS OíS IS, AOIOMM lCoSTAiAfetíR. v/iÐ ♦L6IMFLOTM l*lðr.
3.TEI&ÐAR.OF * AotCAkLo JtnACOR. VftútMA ffClMF6R.t>A«.. EMDUR.Or1t-CfftSIA
Ör4£>TAfe>S
4*. ÁBYIiQ€>AR,TJÓN * nCfjðiA ávu.-aA ve«-iíc et>A
ÓHAPPS.
S. FARANGUR* c t>3<$iMaArt>ue*, ^kemmdir o •
L*Yi» spreaftsr fle -þií? Verbist- e^r-R-,£Xtí> I
17 t>Kifl TfZYaGlHúr PVBIR Si-VSAOfiroK. 3 MIU-^nhh.
tHORT-PflRflWrfun. tUÍ- 500-000- IÍOÞTAC. iCR 9.6/O
L.eiTlfc ÞCtfiCflflí U f’PoiíWtffr!
ÁBYRGÐP TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN
UMBOÐSFÉLAG ANSVAR INTERNATIONAL
Lágmúla 5 . 105 Reykjavík . Sími 83533
Pöbbarnir eru eldfjörugir og sjálfsagt að dansa berfætt á planóinu.